Fréttablaðið - 14.04.2012, Side 30
14. apríl 2012 LAUGARDAGUR30
V
ið byrjum á að kaupa okkur
fræ. Ef við erum að tala um
grænmeti í lítinn heimilis-
garð þá er sniðugt að sá í litla
plastdalla undan mjólkur-
vörum, fylla þær af næringar-
lítilli mold, dreifa þar 15 til 20 fræjum af
hverri tegund og vökva. Muna bara að
merkja hvað er hvað,“ byrjar Jóhanna
B. Magnúsdóttir leiðbeiningar sínar um
matjurtarækt. Hún er stödd í sexstrenda
gróður húsinu sínu sem er hennar aðal-
vinnustaður á þessum tíma árs. Þar er hún
með þúsundir smáplantna sem fyrir alúð
hennar eiga eftir að vaxa og dafna og verða
að hollri fæðu. Sumra þeirra sáði hún til í
mars. „Íslenska sumarið dugar ekki öllum
grænmetistegundum til að ná þroska og því
þarf að sá snemma til þeirra sem lengstan
vaxtartíma þurfa. Það eru til dæmis stein-
selja, púrrulaukur og rósakál. Nú er hins
vegar hárrétti tíminn til að forsá flestum
káltegundum, til dæmis grænkáli, blómkáli,
brokkáli og hvítkáli,“ segir hún.
Fyrst hiti svo svali
Jóhanna segir dollurnar með fræjunum vel
settar á volgum stað til að byrja með, til
dæmis í stofuglugga og mælir með að dag-
blað sé breitt yfir þær fyrstu dagana. En
um leið og fræin fara að spíra þarf að koma
þeim fyrir í svalara herbergi (12-18 gráð-
um) og mikilli birtu, annað hvort með sól-
ríkum glugga eða flúrperu, til dæmis bíl-
skúr eða gestaherbergi sem stendur ónotað.
Eftir viku til tíu daga er komið að því að
færa kálplönturnar í aðra potta, eða plast-
dalla, eina í hvern, lyfta þeim varlega upp
og pota þeim svolítið dýpra í seinni pott-
inn sem á að vera fullur af næringarríkri
mold. Sáir hún aldrei neinu úti á þessum
árstíma? „Nei, en ég veit um fólk sem gerir
það og það getur alveg lukkast.
Fer auð vitað eftir tíðarfarinu,
en það er hægt að breiða yfir
ræktunina. Mér finnst best að
bíða með það fram í maí að sá
úti og þá fer gulrótafræið fyrst
niður. Ég sái gulrótunum ekki
fyrr en um 10. maí.“
Gulrótum líkar vel sendinn
jarðvegur að sögn Jóhönnu. „Ég
sái gulrótunum í raðir, bý til eins
til tveggja sentimetra djúpar
raufar með 20 til 25 sentimetra
millibili, það auðveldar illgresis-
hreinsun á milli. Svo er gott að
hafa í huga að gulrótafræ spíra
alveg upp í 90% svo maður má
ekki setja fræin mjög þétt. Gott
er að setja smá sand yfir fræin
og mold líka og þjappa að. Svo
er rosalega mikilvægt að vera
duglegur að vökva, gulrótafræ
eru mjög viðkvæm fyrir þurrki
og mega ekki þorna á meðan
þau eru að spíra.“ Jóhanna
mælir með því að nota plássið
á milli raðanna og sá hreðkum
( radísum) þar. „Þá er komin
hreðku-uppskera áður en gul-
ræturnar þurfa plássið,“ segir
hún. „Þær eru svo fljótar til.“
Þurftafrekar plöntur
Jóhanna er með garðyrkjustöð á
Dalsá. Þar selur hún plöntur til
framhaldsræktunar og græn-
meti þegar að uppskerunni
kemur. „Ég rækta bara lífrænt
þó ég hafi ekki enn haft fjár-
magn til að fá mér vottun. Kann
það og vil í rauninni ekki kunna
neitt annað,“ segir hún. Notar
hún þá húsdýraáburð og ekkert
blákorn í garðana? „Já bara
húsdýraáburð og safnhauga-
mold. Matjurtir þurfa mjög
næringarríka mold og það þýðir
ekkert annað en að setja töluvert
af húsdýraáburði og þangmjöli í
garðinn vegna þess að þetta eru
þurftafrekar plöntur.“
Besti tíminn til að undirbúa
útibeðin fyrir væntanlega mat-
jurtaræktun er einmitt núna,
að sögn Jóhönnu. „Það er gott
að vera snemma í að vinna
garðinn, setja skítinn í hann og
stinga hann upp,“ segir hún. En
er ekki erfitt að ná í húsdýra-
áburð í þéttbýli, til dæmis hér
á höfuðborgarsvæðinu? „Nei,
það er hægt að fá nóg af skít
hjá hrossaeigendum. Þeir þurfa
alltaf að losa sig við hann og
borga fyrir það. En hrossa skítur
þarf að vera minnst þriggja
mánaða gamall þegar hann fer
í garðana og það getur verið
vandamál að ná í hann með
stuttum fyrirvara. Maður þarf
líka að snúa sér til einhvers hesteiganda sem
notar ekki mjög mikið af spónum. En svo er
líka hægt að leita til ýmissa fyrirtækja, svo
sem Gæðamoldar og Gámastöðvarinnar og
ná sér í moltu úr safnhaug. Moltan er ekki
alveg eins sterk og næringarrík og hrossa-
skítur en ef vel er að gerð hennar staðið eru
öll næringarefni í henni.“
Eitt enn. Er auðvelt að rækta lauk? „Já,
það er auðvelt. Hvítlauk setur maður niður á
haustin, stingur bara niður rifjum. En aðrar
tegundir af lauk er hægt að setja niður núna
og gróðrarstöðvarnar selja sáðlauka. Það
þarf bara að setja skeljasand í beðin áður
og áburð. Laukarnir þurfa kröftugan jarð-
veg með góðum áburði.“
Jóhanna kveðst hafa verið að rækta frá
því hún man eftir sér því hún er alin upp
við það bæði í Biskupstungunum og á Snæ-
fellsnesi. „Ég hef verið að rækta hvar sem
ég hef verið og alltaf haft mestan áhuga á
mat jurtunum enda bragðast eigið græn-
meti alltaf best,“ segir Jóhanna brosandi.
Hún ætlar að veita leikskólakrökkum leið-
sögn í að rækta matjurtir í vor og kallar sig
„ömmu náttúru“ í því hlutverki.
Það er gott
að vera
snemma í
að vinna
garðinn,
setja skítinn
í hann og
stinga hann
upp
Eigið grænmeti bragðast best
Íslenska sumarið er of stutt fyrir ýmsar grænmetistegundir. Því þarf að drífa í að sá fyrir kálplöntunum í apríl. Það segir Jóhanna
B. Magnúsdóttir garðyrkjufræðingur á Dalsá í Mosfellsdal sem rekur garðyrkjustöð og heldur námskeið um ræktun matjurta þar,
úti um land og í leikskólum. Gunnþóra Gunnarsdóttir fékk fræðslu um forsáningu grænmetis og undirbúning jarðvegsins.
JÓHANNA B. MAGNÚSDÓTTIR Kann vel við sig í gróðurhúsinu sem er hennar aðalvinnustaður á þessum tíma árs.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VORLEGT Hér eru margar ólíkar tegundir grænmetis
í uppvexti í gróðurhúsi Jóhönnu.
PRIKLUN Þessi pattaralega planta er á leið úr
fjölbýli í einbýli.
Forræktun innan dyra
Sáning Tegundir
Um miðjan mars salvía, rósmarín, timjan
Í lok mars rósakál, púrrur, steinselja,
sellerí
Um miðjan apríl blómkál, hvítkál, spergilkál,
grænkál, rauðkál
Eftir miðjan apríl gulrófur, næpur, hnúðkál,
rauðrófur, vorlaukur, höfuð-
salat, spínat, ertur og baunir
Sáð beint út í beð
Sáning Tegundir
Eftir miðjan maí gulrætur, radísur, næpur
Í lok maí spínat, klettasalat, blaðsalat,
vorlaukur, koríander
Salati, spínati, vorlauk, ertum og baunum er gott
að sá innandyra snemma vors og svo aftur seinna
að vorinu beint út í beð. Þá dreifist uppskeran.
Einnig getur verið gott að sá næpum, klettasalati og
fleiri tegundum úti með 2-3 vikna millibili í sama
tilgangi.
■ SÁNINGARTÍMI MATJURTA - VIÐMIÐ
Velja gott fræ - lífrænt (organic) eða F1. Kíkja á gildistíma aftan á pökkunum.
Kaupa nýtt gulrótafræ á hverju vori, kálfræ geymist milli ára.
Sáðmoldin – létt, næringarsnauð, gott að blanda með fínum vikri.
Bakkar – pottar. Mikið úrval til. Einnig hægt að nota plastbakka undan mat-
vælum úr kæliborðum eða undan mjólkurvörum.
Mikilvægt að þvo notaða bakka.
■ SÁNING INNAN HÚSS
STEINSELJA Jóhanna sáði í þennan bakka í mars og nú þarf hún að
fara að prikla.