Fréttablaðið - 14.04.2012, Blaðsíða 33
ÍSBÚÐIR
LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2012
Kynningarblað
Jógúrtís, rjómaís,
bragðarefur,
sjálfsafgreiðsla og
Stuðmenn í ísnum.
Emmessís hefur síðan í fyrra boðið upp á jógúrtís undir vörumerkinu Joger. Ísinn er
einstaklega hollur og fitulítill og
algjör nýjung hvað varðar hollustu.
Leifur Grímsson, framkvæmda-
stjóri Emmessíss, segir að nú sé
það engum vandkvæðum háð að
fá sér ís og upplifa hámarksánægju
án samviskubits yfir því að vera að
innbyrða óhollustu eða ótalmargar
hitaeiningar.
Hágæða Jógúrtís
„Joger jógúrtís er einstakur miðað
við annan jógúrtís hvað varðar holl-
ustu og gæði,“ segir Leifur. „Hann
inniheldur engan hvítan sykur og
er því með afar lágan kolvetnast-
uðul, eða tæp 15 prósent. Aðal-
uppistaðan er fersk undanrenna,
fersk jógúrt, lífrænn agave-safi og
ávaxtasykur. Í hverjum hundrað
millilítrum eru einungis 62 kalorí-
ur sem ætti að teljast nokkuð gott
miðað við bragðgóðan, ferskan og
hollan ís.“
Fljótlegt og þægilegt
Í dag er Jogerísinn fáanlegur í fimm
ísbúðum sem allar byggjast á sjálfs-
afgreiðslu. Þar sér kúnninn sjálfur
um að dæla ísnum og skammta sér
það meðlæti sem hann kýs að fá
sér með ísnum. „Það næst miklu
betra flæði með sjálfsafgreiðslu og
fólk þarf ekki að bíða. Þú einfald-
lega færð þér það sem þú vilt og
býrð til þá blöndu sem þér dettur í
hug,“ segir Leifur. Ísbúðirnar bjóða
upp á ferska ávexti, hnetur og fleira
með ísnum en fólk hefur einnig val
um að fá sér sælgæti kjósi það svo.
„Þá minnkar auðvitað hollustugild-
ið en ísinn er alltaf jafn hollur þótt
nammið sé óhollt.“
57 bragðtegundir
Það er ekki hægt að segja að það
skorti fjölbreytni hvað bragðið varðar
þegar kemur að Jogerís, en til eru 57
bragðtegundir af ísnum. Aðeins er þó
boðið upp á tíu tegundir í einu í búð-
unum og er þeim skipt reglulega út
fyrir utan súkkulaði, vanillu og jarð-
arber sem eru fastar bragðtegundir.
Bragðefnið er hágæðabragðefni, inn-
flutt frá Bandaríkjunum.
Ísköld útrás
Jogerísinn hefur vakið athygli út fyrir
landsteinana og hefur Emmessís gert
samning við finnska ísframleiðslu-
fyrirtækið Ingman Icecream, sem er
í eigu Unilever, stærsta ísframleið-
anda í heimi. „Við höfum gert samn-
ing um kaup á um eitt hundrað tonn-
um af Joger jógúrtísblöndu sem þeir
ætla að selja til ísbúða víðs vegar um
Finnland og í Eystrasaltslöndunum
og samsvarar um sjö hundruð
þúsund skömmtum af jóg-
úrtís,“ segir Leifur ánægð-
ur með árangurinn. Ís-
lendingar geta því fengið
sér íslenskan Jogerís á
ferðalagi um Finnland
eða Eyst rasa lts-
löndin og ef til vill
víðar. Frekari
útrás Joger-
íss er í píp-
unum svo
það lítur út
fyrir að hann
verði fáanleg-
ur í enn f leiri
löndum í fram-
tíðinni.
Fersk og fitulítil hollusta
Vilji maður borða ís án þess að hafa áhyggjur af því að innbyrða óhollustu eða ótalmargar hitaeiningar þá er Jogerísinn svarið.
Hann inniheldur engan hvítan sykur og innan við eitt prósent fitu og það eru aðeins 62 hitaeiningar í 100 millilítrum.
Leifur Grímsson
Til eru 57 tegundir af
Jogerís. Tíu tegundir
eru á boðstólum hverju
sinni en þeim er
reglulega skipt út.