Fréttablaðið - 14.04.2012, Blaðsíða 35
TVEIR
HEIMAR
„Ég hlakka til að
koma aftur heim í
Kísildal, því hluti af
almennri vellíðan
er að vera í sínu
vanalega umhverfi
og sinna fastri
rútínu.“
Mikið úrval af
fallegum skóm
og töskum
25 ár
á Íslandi
112 Grafarvogi - Sími: 586 1000 - www.husgogn.is
Kojur í bjarga málunum
Margar stærðir og gerðir af kojum og rúmum,
litlum og stórum, breiðum og mjóum
fyrir barnaherbergið og sumarbústaðinn!
Sérverslun með kojur og fylgihluti
Vefverslun
husgogn.is
erum á
Facebook
■ FRAMHALD Á SÍÐU 2
SVANFRÍÐUR FAGNAR
Gömlu kempurnar úr Svanfríði fagna 40 ára afmæli hljóm-
sveitarinnar á tónleikum í Austurbæ í kvöld. Eiríkur Hauks-
son söngvari tekur að sér hlutverk Péturs W. Kristjáns sonar
heitins sem hefði orðið sextugur á árinu. Einnig koma
fram söngvararnir Elvar Örn Friðriksson og Pétur Örn
Guðmundsson. Rifjuð verða upp vinsæl lög.
Dagurinn fer í samveru og kveðju-stund með fjölskyldu og vinum. Það kostar alltaf trega og nokkur
tár, því maður veit aldrei hvenær næstu
endurfundir verða. Á móti kemur að
tíminn líður fljótt og áður en varir
verðum við komin aftur í faðm fjöl-
skyldunnar hér heima,“ segir Sólveig
sem á morgun á fyrir sér tólf tíma ferða-
lag með eiginmanni og þremur litlum
börnum til annarra heimkynna í San
Francisco; nánar tiltekið í Kísildalinn
þar sem þau hafa verið búsett síðast-
liðin níu ár.
TÖFRAR Í SAN FRANCISCO
„Við fluttum upphaflega út árið 1999 til
að stunda framhaldsnám í verkfræði
við Michigan-háskóla. Við ætluðum
síðan að koma aftur heim en eitt leiddi
af öðru og okkur buðust spennandi
störf sem freistuðu til að afla okkur
reynslu hér úti,“ segir Sólveig. Hún
vinnur nú sjálfstætt að ýmsum verk-
efnum, en eiginmaður hennar Arnar
Hrafnkelsson starfar hjá Google.
„Okkur líkar afskaplega vel í San
Francisco. Loftslagið er dásamlegt og
svæðið allt skemmtilegt. Daglegt líf fer
að mestu í vinnu, skólaskutl og tóm-
stundir með börnunum, en um helgar
njótum við útivistar í borginni og ein-
stakri náttúrunni allt um kring,“ segir
Sólveig og bætir við að á veturna fari
fjölskyldan oft á skíði í nálægum fjöllum
og á sumrin í tjaldútilegu við eitthvert
vatnanna inni í landi.
„Á þessu svæði eru ótrúlega fjöl-
breyttir útivistarmöguleikar; allt frá
Ólympíu- skíðasvæðinu í Squaw Valley
til dásamlegra stranda við vötn og
Kyrrahafið á sumrin. Á Íslandi förum
við svo flesta daga í frábærar sund-
laugarnar og gæðum okkur á íslenskum
mat sem við fáum ekki úti, eins og
lambakjöti sem er í uppáhaldi.“
EINFALDIR SAMFUNDIR
Eftir að Sólveig og Arnar fluttu vestur
um haf hafa þau eignast þrjú börn sem
nú eru á þriðja til áttunda ári og una
hag sínum vel vestra.
„Úti höfum við hins vegar enga fjöl-
skyldu upp á að hlaupa með barnaupp-
eldið og þurfum því alfarið að treysta á
okkur sjálf. Það krefst svo góðs skipu-
HVENÆR ERTU LAUS?
SKIPULÖGÐ Sólveig Kjartansdóttir, rafmagnsverkfræðingur í Kaliforníu, eyddi
páskafríinu heima, en hún hefur hannað einstaka skipulagssíðu á netinu.
ÍSLENSK Í AMERÍKU
Sólveig og Arnar með
börnunum Freyju Katrínu,
Kjartani Páli og Atla
Nikulási. Fjölskyldan talar
alltaf saman á íslensku úti
og börnin því tvítyngd.
MYND/VALLI