Fréttablaðið - 14.04.2012, Qupperneq 74
14. apríl 2012 LAUGARDAGUR42
Fáðu þér góða
mjólkurskvettu!
www.ms.is
krakkar@frettabladid.is
42
Skemmtilegur leikur í sumar
Á FIMMTUDAGINN verður komu sumarsins fagnað um allar grundir. Á félags-
svæði hestamannafélagsins Fáks verður opinn dagur milli 13 og 16, þar sem
krökkum verður meðal annars boðið á hestbak og mörg hesthús á svæðinu verða
opin fyrir gesti og gangandi. Frekari upplýsingar er að finna á www.fakur.is.
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Stína: Mamma, mamma,
krakkarnir segja að ég sé með
gæsahúð!
Mamma: Hvað er athugavert
við það?
Stína: Fæ ég þá kannski fjaðrir?
Bóndinn við ferðamanninn:
Hér í sveitinni vekur haninn
okkur á hverjum morgni.
Ferðamaðurinn: Frábært! Stilltu
hann endilega á klukkan átta.
Lögreglumaður ber að dyrum
og ungur drengur kemur til
dyra.
Lögreglumaður: „Er pabbi þinn
heima?“
Drengur: „Neibb.“
Lögreglumaður: „En mamma
þín.“
Drengur: „Nei, hún hljóp líka
og faldi sig þegar þú barðir að
dyrum.“
Hvað er að frétta af þér, Frans-
ína? Ég er að vinna í Afríku. Ég
er að hjálpa Kalíhander frænda
mínum. Hann er ævintýra-
gangavörður þar og það er alltaf
svo mikið að gera hjá honum.
Er Afríka mikið öðruvísi en
Ísland? Afríka er sko miklu
stærri. Á Íslandi var ég alveg
svolítið stór en Afríka er svo
svakalega stór að ég verð
bara minni. Mér finnst það
dálítið skrýtið, en líka voðalega
gaman.
Hvernig er veðrið í Afríku? Það
er eiginlega alltaf sól hérna.
Stundum er samt rigning og
einu sinni rigndi froskum. Mér
fannst það mjög fyndið en þeir
meiddu sig smá þegar þeir duttu
úr skýjunum. Það var samt allt í
lagi með þá. Ég er eiginlega allt-
af með sólgleraugu og stundum
er ég líka í sundbol. Bleikum
sundbol. En ég er bara í honum
ef það rignir.
Eru margar óþekkar mýs þar
sem þú býrð núna? Já, sjúklega
margar. Sumar eru hvítar og
brúnar og svartar. Sumar mýsn-
ar verða líka gular út af sólinni.
Saknarðu Björgvins Franz? Já,
ég sakna hans oft því hann var allt-
af að búa til eitthvað vesen. Mér
finnst hann svo fyndinn. Hann
skrifar mér oft bréf og ég skrifa
honum til baka. En mest sakna ég
allra krakkanna á Íslandi. Þeirra
sakna ég alveg heilan helling!
Hvað er best að borða í Afríku
og á Íslandi? Í Afríku er best að
borða ost og á Íslandi er best að
borða ost. Stundum fæ ég mér
litlar flugur og set þær inn í
ostinn minn. Samt bara á laugar-
dögum.
Prumparðu þá mikið á laugar-
dögum? Nei, ekkert sérstak-
lega. Ég prumpa mikið alla
daga, því það er best í heimi.
Hvenær kemurðu aftur heim?
Ég veit það ekki. Ég kom samt
heim um jólin til að heimsækja
mömmu og öll systkinin mín.
Það var mjög gaman. Sérstak-
lega af því að ég fékk fimm
pakka.
Var gaman í f lugvélinni á
leiðinni til Afríku eða varstu
hrædd? Heyrðu nú mig, ég fór
auðvitað bara til Afríku með
töfralyklinum mínum. Ég nenni
ekki að eyða tíma í flugvélar.
Svo er ég líka lofthrædd. Ég var
bara nokkrar sekúndur á leið-
inni. Ég gat ekkert lagt mig, en
það var samt gaman og dimmt.
Hvað ætlarðu að verða þegar
þú ert orðin stór? Ég er sko
stór. Miklu stærri en allar
aðrar mýs. Af því að ég á töfra-
duft. Ég vil allavega ekki verða
stærri. En kannski verð ég
söngkona. Ég held að ég syngi
mjög vel. Engum öðrum finnst
það samt. Börnin í Afríku
syngja fyrir mig. Þau eru ótrú-
lega skemmtileg og stundum
erum við á tánum saman.
FRANSÍNA FLUTT TIL AFRÍKU
Fransína mús, sem var vinkona Björgvins Franz í Stundinni okkar, býr núna í
Afríku þar sem hún hjálpar frænda sínum, Kalíhander ævintýragangaverði.
FRANSÍNA MÚS Músinni finnst gaman í Afríku, sem er miklu stærri en
Ísland.
Nú er sumardagurinn fyrsti
á næsta leiti og því vel við
hæfi að læra eða rifja upp
nokkur vorlög.
Allir krakkar á kreik
Allir krakkar á kreik,
komum strax út í leik
því að vorið og sólskinið kallar.
Leikum fjörugt og létt,
eins og lömbin á sprett,
út um ljómandi grundirnar
allar.
Tra la la la la la…
Nú er sumar
Nú er sumar,
gleðjist gumar
gaman er í dag.
Brosir veröld víða.
Veðurlagsins blíða
:,: eykur yndishag.:,:
Látum spretta,
spori létta
spræka fáka nú.
Eftir sitji engi,
örvar víf og drengi.
:,: Sumarskemmtun sú:,:
Tíminn líður,
tíminn býður
sælan sólskinsdag.
Yndi er úti á grundum,
yndi er heim þá skundum
:,:seint um sólarlag.:,:
Við göngum
Við göngum mót hækkandi
sól, sól, sól
og sjáum hana þíða allt er
kól,kól, kól.
:,:svo vætlurnar streyma og
vetrinum gleyma,
því vorið er komið með sól,
sól, sól:,:
Orðskýringar:
gumar = drengir
fákar = hestar
víf = stúlka/stúlkur
Merkið :,: þýðir að vísu-
hendingin er endurtekin.