Fréttablaðið - 14.04.2012, Side 81
LAUGARDAGUR 14. apríl 2012 49
Velkomin í framsækinn
alþjóðlegan háskóla
Opið fyrir umsóknir í meistaranám til 30. apríl
www.hr.is
„Þetta var frábært tækifæri til
að bæta mig í faginu, og læra
af góðu fólki - eftir námið gat
ég farið að tækla mjög flókin
verkefni.“
Árni Már Jónsson
Á fjórða tug lista- og fræðimanna
taka þátt í sýningunni Núningur/
Friction, sem opnar í Listasafni
ASÍ í dag. Þar verða í öndvegi
hugmyndir listamanna sem nýtt
hafa sér þær sérstæðu aðstæður
sem borgin býður upp á til list-
sköpunar, til dæmis með því að
stofna til samstarfs við stofnanir,
fyrirtæki og einstaklinga sem
stutt geta framkvæmd eða þróun
hugmynda. Sýningarstjórar eru
þeir Einar Garibaldi Eiríksson,
Kristinn E. Hrafnsson og Ólafur
Gíslason. Allir hafa þeir mikinn
áhuga á fjölþættum tengslum
myndlistar og borgarsamfélags
og byggir sýningin á hug myndum
sem þeir hafa rætt og mótað á
undan förnum misserum.
Sýningin í Listasafni ASÍ er eins
konar miðstöð eða vinnustofa verk-
efnisins en verk listamannanna
verða sett upp á ólíkum tímum og
í margvíslegum birtingar myndum,
á víð og dreif um borgina, á þessu
ári. Sýningin miðlar bakgrunns-
upplýsingum um verk og at hafnir
listamannanna, auk þess að vera
yfirlit um verkefnið í heild sinni.
Þannig verður sýningarrýmið
eins konar rannsóknarmiðstöð á
borgar umhverfinu á myndlistar-
legum forsendum. Vikulega á
meðan á sýningu stendur verður
boðað til málþings um verkefni
listamannanna og málefni sem
tengjast þeim. Meðal þátttakenda í
sýningunni eru Ásdís Sif Gunnars-
dóttir, Ásmundur Ásmundsson,
Haraldur Jónsson, Harpa Arnar-
dóttir, Hjálmar Sveinsson, Hlynur
Hallsson, Ósk Vilhjálmsdóttir,
Ragna Sigurðardóttir, Þorvaldur
Þorsteinsson og Æsa Sigurjóns-
dóttir. Sýningin stendur til 13. maí.
Sýning um tengsl myndlistar og borgarsamfélags
NÚNINGUR Listamaðurinn Christian
Hasucha sýnir meðal annars verk sitt
Kleine Welten á sýningu sinni.
23.00 AK-Extreme snjóbretta- og
tónlistarhátíð verður haldin á Græna
Hattinum, Akureyri. Fram koma Agent
Fresco, Endless Dark, Ugly Alex og Vin-
tage Caravan. Miðaverð er kr. 1.500.
23.00 Beatur er í stuttri heimsókn á
Íslandi og heldur tónleika á Ob-La-Dí
Ob-La-Da, Frakkastíg 8. Aðgangseyrir er
kr. 1.000.
23.59 Stórhljómsveitin Greifarnir spila
á SPOT, Kópavogi. Dans, söngur og
brjálað stuð. 20 ára aldurstakmark.
➜ Leiðsögn
14.00 Katrín Briem myndlistarmaður
og myndmenntakennari mun leiðbeina
gestum í teikningu á sýningunni Ásjóna
í Listasafni Árnesinga. Allt efni er á
staðnum og aðgangur er ókeypis.
15.00 Tinna Gunnarsdóttir, hönnuður,
tekur þátt í leiðsögn um sýninguna
Rætur. Þetta er síðasta sýningarhelgi
sýningarinnar sem einblínir á íslenska
skartgripahönnun.
➜ Umræður
13.00 Heilaafritun verður viðfangsefni
smiðju LornaLABs og Listasafn Reykja-
víkur í Hafnarhúsi. Halldór Úlfarsson
myndlistarmaður og Deepa Lyengar hjá
MindGames eru meðal frummælenda.
Viðburðurinn fer að hluta til fram á
ensku og er aðgangur ókeypis.
➜ Útivist
10.00 Hjólreiðaferð verður farin frá
Hlemmi í 1-2 klukkutíma um borgina á
vegum LHM. Þáttaka er ókeypis.
Sunnudagur 15. apríl 2012
➜ Félagsvist
14.00 Félagsvist verður spiluð í Breið-
firðingabúð, Faxafeni 14.
➜ Sýningar
13.00 Vorsýning Félags áhugamanna
um tréskurð heldur áfram í Gerðubergi.
Heiðurssýnandi er Örn Sigurðsson tré-
skurðarmaður.
14.00 Ólöf Helga Helgadóttir frum-
sýnir vídeoverk sitt 7 hnettir, Helena
Hansdóttir frumsýnir verkið Hornsteinn,
Kláði og Sjón og Ríkharður H. Frið-
riksson frumsýnir hljóðinnsetningu
sína Massar á sýningu í Freyjugöturóló,
Freyjugötu 9. Sýningin er aðeins opin
um helgina.
➜ Umræður
15.00 Margrét Jónsdóttir Njarðvík,
vararæðismaður Spánar á Íslandi, og
listamaðurinn Rebekka Rán Samper
taka þátt í spjalli um katalónska menn-
ingu og sögu á Kjarvalsstöðum. Spjallið
er í tengslum við sýningu listamannsins
Antonis Tápies sem stendur þar yfir.
➜ Dansleikir
20.00 Dansleikur Félags eldri borgara
í Reykjavík verður haldin að Stangarhyl
4. Danshljómsveitin Klassík leikur létta
danstónlist. Aðgangseyrir er kr. 1.500,
en kr. 1.300 fyrir félagsmenn FEB.
➜ Leiðsögn
14.00 Ágústa Kristófersdóttir, sýningar-
stjóri, mun leiða gesti um sýninguna
TÍZKA - kjólar og korselett í Þjóðminja-
safninu. Leiðsögnin er áhugasömum að
kostnaðarlausu.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.