Fréttablaðið - 14.04.2012, Side 82
14. apríl 2012 LAUGARDAGUR50
lifsstill@frettabladid.is
50
ZUCKERBERG SAMDI SJÁLFUR Eins og greint hefur verið frá keypti Facebook fyrirtækið
Instagram á dögunum fyrir einn milljarð dollara. Mark Zuckerberg, forstjóri Facebook, er ekki vanur að gera
slíka samninga sjálfur en ku hafa verið maðurinn á bak við kaupin, nánast frá upphafi til enda.
CHLOE
FLAKSANDI BUXUR Skósíðar og víðar
buxur eru nánast skyldueign fyrir sumarið
og sáust slíkar buxur víða á tískupöllum
síðasta árs. PROENZA SCHOULER
BLÓMLEG SKYRTA
Litríkar, blómlegar
og alls kyns munstraðar
skyrtur fást víða.
Flaksandi síðbuxur, fallegir blazer-jakkar og munstraðar flíkur eru
það sem vorvindarnir munu bera með sér til landsins. Sumar dagurinn
fyrsti er rétt handan við hornið og því tímabært að leiða hugann
að helstu straumum vor- og sumartískunnar. Litir og munstur
verða sérstaklega áberandi ásamt síðbuxum, helst víðum og
flaksandi. - sm
Blómlegt sumar
MUNSTUR
OG PRENT
Munstraðar
flíkur verða mjög
áberandi í vor og
haust og skiptir þá
engu hvort um er
að ræða skyrtur, kjóla
eða buxur. Blómamustur
verður sérstaklega vinsælt.
JIL SANDER
ISABEL MARANT
BLAZER-JAKKAR Blazer-jakkinn ætlar að tolla
í tískunni ár eftir ár enda sniðið klassískt og
fallegt. Mjúkir pastellitir verða vinsælir í vor
og sumar og þá helst ferskjugulur, fjólublár
og myntugrænn. PHILIP LIM
NORDICPHOTOS/GETTY
HEILSA Það er heilsubætandi að
vera íþróttaaðdáandi ef marka
má niðurstöðu rannsóknar sem
gerð var við Murray-háskólann í
Kentucky.
Vísindamenn við háskólann
komust að því að sjálfsmynd
þeirra er styðja ákveðið íþrótta-
lið sé oft betri en þeirra er ekki
styðja ákveðið lið í íþróttum.
„Því meira sem menn samsama
sig liði því betri verður andleg
líðan þeirra,“ sagði prófessor
Daniel L. Wann og bætir við að
íþróttaaðdáendur séu ekki aðeins
með betri sjálfsmynd en margur
annar heldur verði þeir síður
einmana.
Verða síður
einmana
STELLA
MCCARTNEY
HOLL IÐJA Það þykir hollt fyrir sálina að
vera stuðningsmaður íþrótaliðs.
NORDICPHOTOS/GETTY