Fréttablaðið - 14.04.2012, Side 87
LAUGARDAGUR 14. apríl 2012 55
NÚ Í FULLUM GANGI
FRÁ 5. TIL 29. APRÍL
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ 11 TIL 18
GÍFURLEGT ÚRVAL AF ÖLLUM TEGUNDUM
TÓNLISTAR, HLJÓÐBÓKA OG DVD MYNDA
13 titlar BD limited extended editi
on
Strákarnir í Trackshittaz, sem keppa í Euro-
vision fyrir hönd Austurríkis, hafa breytt sviðs-
framkomunni í atriði sínu fyrir keppnina í Bakú.
Í atriðinu í austurrísku undankeppninni var
mikið notast við neonljós á sviðinu og voru dans-
ararnir til dæmis klæddar í samfestinga með
neonröndum. Af öryggisástæðum verður ekki
hægt að hafa sviðið í Bakú alveg myrkvað og
mun neonlýsingin því ekki skila sér eins vel til
áhorfenda. Fjölmiðlafulltrúi hópsins, Roman
Horacek, sagði aðdáendur þó ekki þurfa að
örvænta því von væri á flottara atriði fyrir vikið.
Austurríki keppir í fyrri undankeppninni þann
22. maí, ásamt okkur Íslendingum, og verða
strákarnir þeir sextándu í röðinni á sviðið. - trs
Engin neonljós
HRESSIR TRACKSHITTAZ-DRENGIR Öryggisreglur gerðu það
að verkum að austurrísku strákarnir þurftu að breyta atriðinu
sínu fyrir keppnina í Bakú.
42 DAGAR í aðalkeppni Eurovision
Sjónvarpstjarnan Khloe Kardashian segist
hafa varað systur sína Kim við hjóna-
bandi hennar og Kris Humphries körfu-
boltastjörnu.
Í viðtali við Ellen DeGeneres viður-
kennir hún að hafa líkað við Kris sem
persónu en ekki sem eiginmann
systur sinnar. Hún segir einnig
frá því að hún var sú eina sem
var hreinskilin og sagði Kim
að henni litist ekki vel á
samband þeirra.
Khloe líkar mun
betur við þá hugmynd
að Kim og Kanye West,
sem er fjölskylduvinur
Kardashian- fjölskyldunnar,
verði saman.
Varaði við Humphries
Leikkonan Jennifer Love Hewitt
lýsti því yfir í spjallþætti Ellen
Degeneres að henni þætti söngv-
arinn Adam Levine myndarlegur
og að þau gætu orðið flott par.
„Þetta er mikið hrós og þetta
var fallega sagt af Jennifer, en ég
mun ekki láta ummælin stíga mér
til höfuðs,“ sagði Levine þegar
hann var spurður út í ummælin.
Söngvarinn hætti nýverið með
ofurfyrirsætunni Önnu V.
Þakkar Love
fyrir hrósið
ÞAKKAR HRÓSIÐ Adam Levine þakkaði
Jennifer Love Hewitt falleg orð í sinn
garð. NORDICPHOTOS/GETTY
HREINSKILIN Þær Khloe og
Kim eru hreinskilnar systur.
Leikkonan Anne Hathaway fer
með hlutverk Kattarkonunnar,
eða Catwoman, í væntanlegri
kvikmynd um Batman. Hathaway
þurfti að gangast undir stranga
líkamsþjálfun fyrir verkið.
Að sögn leikstjóra myndarinnar,
Christopher Nolan, verður Kattar-
konan dekkri og sterkari en áður
og því þurfti Hathaway að undir-
búa sig líkamlega fyrir hlutverkið.
„Ég þurfti að taka miklum líkam-
legum breytingum og ég gekk út af
fyrsta fundinum með Christopher
og beint inn í líkamsræktarsalinn.
Ég var þar næstu mánuðina,“ sagði
leikkonan sem leitaði einnig fanga
hjá leikkonunum Hedy Lamarr og
Jean Harlow og til teiknimynda-
bókanna um Batman.
Dekkri og
sterkari
STERKARI Kattarkona Anne Hathaway
verður sterkari og dekkri en áður.
NORDICPHOTOS/GETTY