Fréttablaðið - 17.04.2012, Qupperneq 42
17. apríl 2012 ÞRIÐJUDAGUR30
sport@frettabladid.is
N1-DEILDIN
ÚRSLITAKEPPNI 2012
Þriðjudagur | 17. apríl | Kl. 19:00
FH–AKUREYRI
Kaplakrika | Leikur 1
Miðvikudagur | 18. apríl | Kl. 19:30
HAUKAR–HK
Schenkerhöllin | Leikur 1
ÚRSLITAKEPPNI KARLA
GUNNAR HEIÐAR ÞORVALDSSON tryggði Norrköping 2-2 jafntefli í Íslendingaslag á móti Sundsvall í sænsku úrvalsdeildinni í
fótbolta í gær. Skúli Jón Friðgeirsson og félagar í Elfsborg unnu Gefle 2-1 en Alfreð Finnbogason og félagar í Helsingborg þurftu að sætta sig
við 1-1 jafntefli. Þetta var líka gott kvöld fyrir Íslendingalið í Noregi. Kristján Örn Sigurðsson, Arnór Sveinn Aðalsteinsson og félagar þeirra
í Hönefoss unnu Stabæk 2-0 og Indriði Sigurðsson og félagar í Viking unnu á sama tíma 1-0 heimasigur á meisturum Molde.
HANDBOLTI Haukamaðurinn
Sveinn Þorgeirsson var í gær
valinn besti leikmaður umferða
15-21 í N1-deild karla en hann var
einnig valinn besti varnarmað-
urinn.
Haukamenn voru farsælir í
kjörinu en Aron Kristjánsson
var valinn besti þjálfarinn og
svo eru þrír leikmenn liðsins í
úrvalsliðinu. Akureyri fékk enn
og aftur verðlaun fyrir bestu
umgjörðina og svo voru Ingvar
Guðjónsson og Jónas Elíasson
valdir bestu dómararnir. -hbg
Úrvalslið umferða 15-21:
Markvörður: Aron Rafn Eðvarðsson, Haukar
Vinstra horn: Bjarki Már Elísson, HK
Vinstri skytta: Stefán Rafn Sigurmanns., Haukar
Miðjumaður: Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK
Hægri skytta: Ólafur Gústafsson, FH
Hægra horn: Bjarni Fritzson, Akureyri
Línumaður: Heimir Óli Heimisson, Haukar
Verðlaun í N1-deild karla:
Sveinn bestur
SVEINN ÞORGEIRSSON Hefur spilað vel
með Haukaliðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Bayern München og Real
Madrid mætast í kvöld í fyrri leik
sínum í undanúrslitum Meistara-
deildarinnar en leikur kvöldsins
fer fram í Þýskalandi og er að
sjálfsögðu í beinni útsendingu á
Stöð 2 Sport. Fréttablaðið fékk
knattspyrnuspekinginn Reyni
Leósson til að velta fyrir sér
þessum leik.
„Fyrri leikurinn í undanúrslit-
um Meistaradeildarinnar er oft
lagður upp eins og „skák“. Þjálf-
ararnir leggja mikið upp úr því
að leikmenn fari rólega af stað
og geri engin mistök. Ég er samt
á þeirri skoðun að þessi leikur
eigi eftir að bjóða upp á mikla
skemmtun. Leikurinn í kvöld er
konfektkassi sem er fullur af
fótboltagóðgæti. Real Madrid
er vissulega stór biti fyrir FC
Bayern München en ekki of stór
biti,“ segir Reynir Leósson og
bætir við:
„Ég tel að FC Bayern sé það lið
sem geti veitt spænsku liðunum
hvað mesta keppni í Meistara-
deildinni. Þjóðverjarnir hafa
verið gríðarlega öflugir og þá
sérstaklega í meistaradeildinni.
Þeir eru að missa af meistaratitl-
inum í heimalandinu en Meist-
aradeildin hefur verið þeirra
mót í vetur. Að mínu mati getur
FC Bayern hæglega slegið Real
Madrid úr leik.“ - seth
Spænska liðið Real Madrid:
Ekki of stór biti
fyrir Bæjara
CRISTIANO RONALDO Búinn að skora 59
mörk á tímabilinu. NORDICPHOTOS/GETTY
ÚRSLTIN Í GÆR
Iceland Express karla í körfu
Grindavík - Stjarnan 65-82 (34-46)
Stig Grindavíkur: Þorleifur Ólafsson 16 (6
stolnir), J’Nathan Bullock 12, Giordan Watson
9 (7 stoðs.), Ómar Örn Sævarsson 6, Páll Axel
Vilbergsson 5, Ólafur Ólafsson 5, Ryan Pettinella
5, Jóhann Árni Ólafsson 3, Björn Steinar
Brynjólfsson 2, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 2.
Stig Stjörnunnar: Jovan Zdravevski 18, Justin
Shouse 16 (6 stoðs.), Renato Lindmets 14, Keith
Cothran 14, Marvin Valdimarsson 12 (11 frák.),
Sigurjón Örn Lárusson 6, Guðjón Lárusson 2.
N1 deild kvenna í handb.
ÍBV - Grótta 24-19 (11-7)
Mörk ÍBV: Guðbjörg Guðmannsdóttir 7, Georgeta
Grigore 7, Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 5,
Marijana Trbojevic 2, Ivana Mladenovic 1, Drífa
Þorvaldsdóttir 1, Kristrún Ósk Hlynsdóttir 1.
Mörk Gróttu: Sunna María Einarsdóttir 8, Björg
Fenger 3, Unnur Ómarsdóttir 3, Tinna Laxdal
Gautadóttir 2, Rebekka Guðmundsdóttir 1, Sigrún
Birna Arnardóttir 1, Elín Helga Jónsdóttir 1.
ÍBV mætir Fram í undanúrslitum.
Enska úrvalsdeildin
Arsenal - Wigan 1-2
0-1 Franco di Santo (7.), 0-2 Jordi Gomez (8.), 1-2
Thomas Vermaelen (21.)
STAÐA EFSTU LIÐA
Man. United 34 26 4 4 82-28 82
Man. City 34 24 5 5 85-27 77
Arsenal 34 20 4 10 67-43 64
Tottenham 33 17 8 8 57-38 59
Newcastle 33 17 8 8 50-42 59
Chelsea 33 16 9 8 56-38 57
Everton 33 13 8 12 38-34 47
Liverpool 33 12 10 11 40-36 46
STAÐA NEÐSTU LIÐA
Aston Villa 33 7 14 12 35-48 35
Wigan 34 8 10 16 33-58 34
QPR 34 8 7 19 38-57 31
Bolton 32 9 2 21 36-65 29
Blackburn 34 7 7 20 45-73 28
Wolves 34 5 8 21 34-73 23
KÖRFUBOLTI Stjarnan sigraði Grindavík 82-65 í þriðja
leik liðanna í úrslitakeppninni í gær og minnkaði
Stjarnan þar með muninn í einvíginu í 2-1. Eins og töl-
urnar gefa til kynna var Stjarnan mun betri í leiknum
og sigurinn sanngjarn en tólf stigum munaði á liðunum
í hálfleik 46-34.
„Þessi leikur var rökrétt framhald af fyrri leikjun-
um, við erum á uppleið. Við erum að verða betri og við
hefðum getað, ekki einu sinni með heppni, verið á leið
á heimavöll 2-1 yfir en það varð ekki og við þurfum að
fara heim og jafna seríuna,“ sagði Teitur Örlygsson
þjálfari Stjörnunnar eftir leikinn.
„Við vitum hvaða vinnu þetta kostar. Það er frábær
karakter og barátta í liðinu, hún er til fyrirmyndar og
við þurfum að taka það með okkur inn í næsta leik,“
sagði Teitur en Stjarnan lagði grunninn að sigrinum
með því að sækja inn í teig og hitta úr opnum skotum í
kjölfarið auk þess sem liðið lék frábæra vörn í leiknum.
„Við náðum að sækja vel á körfuna, þeir eru breið-
ir Grindvíkingarnir en þeir eru ekkert rosalega stór-
ir. Við fórum að hitta úr opnum skotum. Við breyt-
um aðeins leikskipulaginu okkar, þeir voru búnir að
svindla aðeins, skáta okkur full mikið og það náðum
við að fara í gegnum.“
„Ég hef engar áhyggjur af vörninni. Vörnin og bar-
áttan er til staðar og það heldur okkur inni í leikjunum
og þegar við leikum sóknina betur þá erum við flottir,“
sagði Teitur sem segir stóran sigur sinna manna ekki
hjálpa liðinu neitt í komandi leikjum.
„Ég hef tekið þátt í svo mörgum úrslitakeppnum.
Ég man eftir því þegar Njarðvík og Keflavík voru að
vinna með 30 til 40 stiga mun og það voru stundum
60 til 70 stiga sveiflur á milli leikja. Það skiptir engu
máli. Þetta var einn sigur, við minnkuðum muninn og
nú þurfum við að fara heim og jafna þetta,“ sagði Teit-
ur að lokum.
Grindvíkingar virkuðu andlausir í leiknum og
virtust ekki klárir í að sópa Stjörnunni út úr úrslita-
keppninni eins og liðið hefði gert með sigri. Ljóst
er að liðið þarf að leika mun betur og af mun meiri
ákefð ætli liðið að klára einvígið þegar liðin mætast
í Garðabæ á sumardaginn fyrsta.
- gmi
Stjörnubjart í Grindavík
Stjörnumenn voru ekki á því að fara í sumarfrí í Röstinni í gær og tryggðu sér
fjórða leikinn á móti Grindavík með 17 stiga sigri á deildarmeisturunum, 82-65.
EKKI Á LEIÐINNI Í SUMARFRÍ Justin Shouse og félagar í
Stjörnunni fóru á kostum í Grindavík í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL