Fréttablaðið - 19.04.2012, Blaðsíða 30
30 19. apríl 2012 FIMMTUDAGUR
Á löngum skóladögum undan-farin ár hef ég hugleitt hvað
ég sé eiginlega að gera í skóla. Ég
hef íhugað að hætta; íslenskutímar
eru andlausir, samt hef ég gaman
af bókmenntum; raungreinatímar
eru vélrænir, samt finnst mér
gaman að vita meira um verkan
hluta í heiminum; erlend tungu-
mál staglið uppmálað, samt finnst
mér fátt skemmtilegra en að tala
við útlendinga. Ég er heldur ekki
sá eini sem líður svona því rann-
sóknir sýna að árið 2010 fannst
um 30% drengja og 17% stúlkna
leiðinlegt í skólanum. Ég tel að
það hafi minna með nemendurna
að gera en skólakerfið. Til þess að
menntun geti skilað þeim árangri
sem til er ætlast verður að mínu
mati að beita nýrri aðferða- og
hugmyndafræði.
Virkni, sköpun og ábyrgð
Ég trúi því að menntun eigi fyrst og
fremst að stuðla að sterkri sjálfs-
mynd einstaklingsins, því að með
sterkri sjálfsmynd fylgja bestu
eiginleikar mann skepnunnar, s.s.
ábyrgðar tilfinning, siðgæði, frum-
leiki, sjálfstæð hugsun, sköpun,
heiðarleiki, hugsjónir, auðmýkt,
sjálfstraust, gjafmildi, sjálfs-
þekking og eldmóður. Með þessum
kostum er þekking, leikni og hæfni
ekki langt undan. Hvernig er best
að gera þessa hugsjón að veruleika?
Hvaða aðferðafræði á að beita?
Þeirri sem þú telur að gagnist
barninu þínu best.
Brýnt er að breyta bæði náms-
efni og kennsluháttum. Í fyrsta
lagi þarf að virkja nemendur,
skipta út fyrirlestrum og tala
við nemendur í stað þess að tala
til þeirra. Það þarf að koma upp
öflugu hópvinnukerfi sem og
umræðutímum þar sem einblínt
er á upplifun og reynslu nem-
enda af því efni sem til umfjöll-
unar er hverju sinni. Nemendur
þurfa að vera þátttakendur í lær-
dómsferlinu en ekki áhorfendur.
Þessi aðferð er í samræmi við
þróun í menntakerfum heimsins
en nokkrir af virtustu háskólum
Bandaríkjanna, MIT, Harvard,
USC o.fl., hafa tekið hana upp.
Í öðru lagi þarf að efla sköpunar-
þáttinn. Þá er ég ekki aðeins að
tala um sköpun í listum heldur í
víðara samhengi því sköpun er í
raun sá eiginleiki að geta hugsað
út fyrir rammann. Þó að sköpun sé
einn af grunnþáttum menntunar
samkvæmt núverandi aðalnámskrá
virðist hafa gleymst að stimpla inn
tvo fyrstu stafina því oftar er ein-
blínt á öpun í stað sköpunar. Sumir
hafa jafnvel gengið svo langt að
segja að menntakerfið í núverandi
mynd hamli sköpunar kraftinum.
Meðal þeirra er einn virtasti
menntamálafrömuður heims, Sir
Ken Robinson. Í núverandi kerfi
þarf nemandinn ekki að sýna neina
sjálfstæða hugsun sem heitið getur
en það er þó grundvöllurinn fyrir
því að verða virkur þátttakandi í
lýðræðissamfélagi eins og okkar.
Í þriðja lagi þarf að breyta öllu
okkar viðhorfi til ábyrgðar og
frelsis. Í menntakerfinu er yfirleitt
ekki fjallað um annað en skyldur,
kröfur, boð og bönn. Hins vegar er
mjög mikilvægt fyrir þroska ein-
staklings að venjast því að hafa
frelsi en afla sér samhliða reynslu
af ábyrgðinni sem þarf til þess að
höndla frelsið.
Gott dæmi um það finnst mér
vera mætingarskylda sem ég tel
vænlegra að fella niður í nú verandi
formi í litlum skrefum frá og með
6.-7. bekk. Í því sambandi mætti
hugsa sér að setja fyrir hópverk-
efni og krakkarnir sjálfir byggju
til sína verkáætlun fyrir vikuna.
Þeim yrði gefið frelsið til þess að
skipuleggja sig, en kennarar og
foreldrar hefðu eftirlit með því.
Nemendur yrðu að mæta þegar
þeir segðust ætla að mæta og
vinna verkefnin sem þeir segðust
ætla að vinna. Með árunum lærðu
þeir að taka æ meiri ábyrgð á eigin
námi og þegar í menntaskóla kæmi
fengju þeir að velja sér áfanga og
mætingarskylda yrði engin. Þetta
myndi stórefla skilning ungs fólks
á samspili ábyrgðar og frelsis.
Óraunverulegt?
Er þessi hugsjón í samræmi við
raunveruleikann? gæti einhver
spurt. Tengingin við raunveru-
leikann er einmitt mikilvægust af
öllu vegna þess að náms efnið þarf
að tengjast því sem er að gerast í
samfélaginu. Það má bjóða fram
alla heimsins vitneskju en ef hún
tengist ekki veruleika viðtak-
andans, hefur hann ekki áhuga á
henni og það er eitt helsta vanda-
mál menntakerfisins í dag. Það er
ekki í núinu, það er veruleikafirrt.
Þegar iðnbyltingin gekk í garð á
18. öld og til stóð að bylta mennta-
kerfinu svo að allir fengju grunn-
menntun voru margar gagnrýnis-
raddir sem sögðu það óraunhæft,
aldrei yrði hægt að kenna öllum,
fátæka fólkið væri of heimskt.
Þær efasemdaraddir voru kveðnar
niður og nú hafa allir rétt á
menntun, en í grundvallaratriðum
hefur lítil sem engin framþróun
orðið síðan þá og núna þurfum við
að taka næsta stökk því annars er
hætt við að ungt fólk missi smám
saman áhugann á menntakerfi sem
á rætur að rekja til iðnbyltingar-
innar og tók mið af allt öðruvísi
samfélagi.
Síðan eru liðin 250 ár og nú
er komið nóg, tíma hvers nem-
anda er sólundað í a.m.k. tíu ár.
Enn átakan legra er að sumu af
því mikilvægasta sem við eigum
hefur verið misþyrmt: fróðleiks-
fýsninni, sköpunarkraftinum og
jafnvel framkvæmdagleðinni. Ég
á mér þann draum að nýtt mennta-
kerfi verði að veruleika, fyrir
mig, þig og komandi kynslóðir.
En allir þurfa að leggjast á eitt til
þess að ná því fram. Við þurfum
að láta vita af því að núverandi
menntakerfi sé meingallað og ekki
mönnum bjóðandi.
Við þurfum menntun sem hentar 21. öldinni
Menntamál
Ísak
Rúnarsson
framhaldsskólanemi
Sumargjöf frá Bláfjöllum
Frítt á
skíði
P
IP
A
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
2
1
0
2
9
fyrir 12 ára
og yngri