Fréttablaðið - 19.04.2012, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 19.04.2012, Blaðsíða 70
19. apríl 2012 FIMMTUDAGUR62 sport@frettabladid.is UNDANÚRSLITIN í N1-deild kvenna hefjast í dag þegar að Fram tekur á móti ÍBV klukkan 15.45 í Framhúsinu í Safamýri. Í hinni undanúrslitarimmunni taka deildarmeistarar Vals á móti Stjörnunni í fyrsta leik liðanna. Þrjá sigra þarf til að komast áfram í lokaúrslitin. Ég sannfærður um að við getum orðið Ís- landsmeistarar og ef einhver getur útskýrt það fyrir mér af hverju við gætum ekki orðið meistarar þá má hann hafa samband við mig. BENEDIKT GUÐMUNDSSON ÞJÁLFARI ÞÓRS Iceland Express-deild karla UNDANÚRSLIT, 4. LEIKUR Þór Þorl. - KR 83-80 (46-45) Þór Þorlákshöfn: Darrin Govens 22/8 fráköst/10 stoðsendingar/6 stolnir, Joseph Henley 16/11 fráköst, Guðmundur Jónsson 16, Grétar Ingi Erlendsson 12, Blagoj Janev 8/8 fráköst, Darri Hilmarsson 7, Baldur Þór Ragnarsson 2. KR: Joshua Brown 19/10 stoðsendingar, Robert Lavon Ferguson 17/8 fráköst, Finnur Atli Magn- usson 15/10 fráköst, Hreggviður Magnússon 12, Dejan Sencanski 10/7 fráköst, Martin Hermanns- son 5, Skarphéðinn Freyr Ingason 2. Þór vann einvígið, 3-1. N1-deild karla UNDANÚRSLIT, 1. LEIKUR Haukar - HK 24-30 (15-14) Mörk Hauka (skot): Tjörvi Þorgeirsson 9 (12), Gylfi Gylfason 3/1 (4/1), Freyr Brynjarsson 3 (7), Stefán Rafn Sigurmannsson 3 (11), Heimir Óli Heimisson 2 (3), Nemanja Malovic 2 (4), Þórður Rafn Guðmundsson 1 (2), Sveinn Þorgeirsson 1 (4). Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 14/1 (38/3, 37%), Aron Rafn Eðvarðsson 2 (8/1, 25%). Hraðaupphlaup: 0. Fiskuð víti: 1 (Heimir Óli 1) Utan vallar: 6 mínútur. Mörk HK (skot): Bjarki Már Elísson 7/2 (11/3), Tandri Már Konráðsson 6 (10), Ólafur Bjarki Ragnarsson 6/1 (10/1), Sigurjón Friðbjörn Björnsson 4 (6), Atli Ævar Ingólfsson 3 (6), Ólafur Víðir Ólafsson 2 (2), Bjarki Már Gunnarsson 1 (1), Vilhelm Gauti Bergsveinsson 1 (2). Varin skot: Björn Ingi Friðþjófsson 16 (30/1, 53%), Arnór Freyr Stefánsson 3 (13, 23%). Hraðaupphlaup: 3 (Ólafur Bjarki 1, Sigurjón 1, Bjarki Már G. 1) Fiskuð víti: 4 (Bjarki Már E. 2, Tandri 1, Atli Ævar 1) Utan vallar: 8 mínútur. Dómarar: Gísli Hlynur Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson. Staðan í einvíginu er 1-0 fyrir HK. Meistaradeild Evrópu UNDANÚRSLIT, FYRRI LEIKUR Chelsea - Barcelona 1-0 1-0 Didier Drogba (45.) Þýska úrvalsdeildin Göppingen - Kiel 23-33 Aron Pálmarsson var ekki í leikmannahópi Kiel. Alfreð Gíslason er þjálfari liðsins. Gummersbach - Flensburg 30-32 Füchse Berlin - Bergischer HC 35-27 Alexander Petersson skoraði fimm mörk fyrir Füchse Berlin en Dagur Sigurðsson er þjálfari liðsins. Rúnar Kárason skoraði tvö mörk fyrir Bergischer HC. Eintracht H. - Rhein-Neckar Löwen 25-38 Róbert Gunnarsson skoraði fjögur mörk fyrir Löwen en Guðmundur Guðmundsson er þjálfari liðsins. Magdeburg - Grosswallstadt 27-21 Björgvin Páll Gústafsson fékk lítið að spila með Magdeburg og Einar Hólmgeirsson var ekki í leikmannahópi liðsins. Sverre Andreas Jakobsson spilaði í vörn Grosswallstadt. STAÐA EFSTU LIÐA Kiel 28 28 0 0 +259 56 Füchse Berlin 29 22 2 5 +108 46 Flensburg 28 22 1 5 +103 45 Hamburg 29 22 1 6 +106 45 RN Löwen 28 20 1 7 +89 41 Magdeburg 30 18 1 11 +58 37 Lemgo 28 14 3 11 -2 31 Göppingen 29 12 2 15 -31 25 ÚRSLIT FÓTBOLTI Chelsea vann í gær nokkuð óvæntan sigur á Barcelona á heima- velli sínum í Lundúnum, 1-0, í fyrri viðureign liðanna í Meistaradeild Evrópu. Didier Drogba skoraði eina mark leiksins með marki í uppbótar tíma fyrri hálfleiks og er óhætt að segja að markið hafi komið gegn gangi leiksins. Fyrir þremur árum áttust þessi sömu lið við í undanúrslitum Meistara deildarinnar í sögufrægri viðureign á Stamford Bridge. Chel- sea var á góðri leið með að tryggja sér sæti í úrslitunum þegar að And- res Iniesta skoraði mark í uppbót- artíma og skaut Barcelona áfram. Dómari leiksins, Tom Henning Øvrebø, var umsetinn af leik- mönnum Chelsea eftir leikinn þar sem hann dæmdi ekki víta- spyrnu í leiknum þrátt fyrir að hafa gert tilkall til þess nokkrum sinnum í leiknum. Drogba gekk hvað harðast fram og blótaði fyrir framan sjónvarpsmyndavélarnar sem heyrðist um allan heim. Í þetta sinn voru Drogba og félagar skælbrosandi eftir leikinn en þrátt fyrir sigurinn er stærsta hindrunin enn eftir – að fara á Nou Camp í Barcelona og ná hag stæðum úrslitum þar. Chelsea-mönnum mun þó duga jafntefli í leiknum sem fer fram á þriðjudaginn. Barcelona var eins og búast mátti við miklu meira með boltann og fékk fleiri hættuleg færi í leikn- um. En leikáætlun stjóra Chelsea, Roberto Di Matteo, gekk upp. „Þegar maður spilar gegn Barce- lona verður maður að verjast mjög vel vegna þess að þeir eru mikið með boltann. Þeir eru hættulegir í sókninni en það þarf að takmarka það af fremsta megni og sjá svo til þess að nýta sín eigin færi,“ sagði Di Matteo en það var nákvæmlega það sem gerðist í leiknum. „Didier Drogba skoraði markið sem skipti sköpum en það ber að lofa liðið allt fyrir frammistöðuna.“ Drogba man vel eftir leiknum fyrir þremur árum síðan. „Við höfum lært mikið síðan þá og bætt okkur. Ástæðan er sú að í dag héld- um við markinu hreinu. Þetta eru góð úrslit og munum við nú reyna að fara þangað og skora annað mark,“ sagði markahetjan. - esá Chelsea náði ótrúlegum úrslitum gegn Evrópumeisturum Barcelona á heimavelli sínum í gær: Drogba hetjan er Chelsea hefndi ófaranna DROGBA VAR HETJAN Lionel Messi gerði sig sekan um sjaldséð mistök er hann tapaði boltanum á miðjunni. Chelsea komst í skyndisókn og Drogba skoraði sigur- mark leiksins. NORDIC PHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Ísland komst ekki áfram í úrslitakeppni EM U-17 lands- liða kvenna þrátt fyrir 3-1 sigur á Belgíu í lokaumferð milliriðla- keppninnar í gær. Ísland vann tvo leiki sína af þremur í riðlinum og endaði með sex stig, einu minna en Sviss sem komst þar með áfram. Ísland tapaði fyrir Sviss, 1-0, á sunnudaginn og reyndist það örlagavaldur stelpnanna. U-17 lið kvenna komst í lokaúrslitin í fyrra en þrátt fyrir að hafa misst af því með naumindum í þetta skiptið er árangurinn engu að síður frábær. - esá Undankeppni EM U-17: Sætt og súrt hjá stelpunum HANDBOLTI HK vann sterkan sigur á deildarmeisturum Hauka, 30-24, í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni N1-deildar karla í gær. Þar með hafa HK-ingar tekið forystuna í rimmu liðanna og dugir nú að vinna báða leiki sína á heima- velli til að tryggja sér sæti í loka- úrslitunum. Þrjá sigra þarf til að komast áfram. Haukar byrjuðu leikinn betur og höfðu undirtökin en góður lokakafli HK þar sem vörn og markvarsla hrökk í gang grund- vallaði sigur þeirra. „Þetta var mjög ánægjulegt, það er frá- bært að skora þrjátíu mörk á móti Haukum sem fá vanalega á sig um tuttugu mörk í leik,“ sagði Erling- ur Birgir Richardsson, annar þjálfara Hauka eftir leikinn. „Við vorum ekkert að breyta neinu sérstöku, við ætlum að reyna að endast í þessu móti eins lengi og við getum,“ sagði Erlingur. „Við erum ósáttir við okkar leik hér í kvöld, ákvarðanatakan í seinni hálfleik í sóknarleiknum ein- kenndi fall okkar,“ sagði Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka eftir leikinn. „Við vorum að gera allt of mikið af mistökum, bæði í sókn og vörn. Það hefur ekki hent okkur mikið í vetur og það reyndist dýrt hér í kvöld,“ sagði Aron. Úrslitakeppnin í N1-deild karla heldur áfram annað kvöld en þá fara fram tveir leikir. Klukkan 19.30 taka HK-ingar á móti Haukum í Digranesi en klukkan 20.00 eigast við lið Akureyrar og FH norðan heiða. - kpt Úrslitakeppnin hófst í gær: Óvæntur sigur HK á Haukum ÓLAFUR BJARKI Skoraði sex mörk fyrir HK í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG KÖRFUBOLTI Nýliðar Þórs úr Þor- lákshöfn skrifuðu nýjan kafla í körfuboltasögu Íslands í gær þegar liðið tryggði sér sæti í úrslit- um Íslandsmótsins með 83-80 sigri gegn ríkjandi Íslandsmeistaraliði KR. Lærisveinar Benedikts Guð- mundssonar hafa læðst aftan að andstæðingum sínum í vetur og fáir hafa haft trú á því að lið hans geti farið alla leið í úrslitin. Bene- dikt hefur gríðarlega trú á liði sínu og ætlar sér ekkert annað en Íslandsmeistaratitilinn. „Við erum bara búnir að sýna það í vetur og í úrslitakeppninni að það er engin tilviljun að við erum á þessum stað. Ég er sannfærður um að við getum orðið Íslands- meistarar og ef einhver getur útskýrt það fyrir mér af hverju við gætum ekki orðið meistarar þá má hann hafa samband við mig,“ sagði Benedikt Guðmundsson þjálfari Þórs í leikslok. Leikurinn var gríðarlega spenn- andi og bæði lið voru líkleg til þess að fagna sigri. Seigla Þórsara var mikil á lokakaflanum þar sem að hinn leikreyndi Guðmundur Jóns- son gerði út um leikinn með víta- skoti 10 sekúndum fyrir leikslok, 83-80. Þórsarar eru til alls líklegir en liðið er búið að slá út Íslands- meistara tveggja síðustu ára í úrslitakeppninni, Snæfell í 8 liða úrslitum og nú KR. Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, var að vonum svekktur með niðurstöðuna. „Við vorum að spila gegn frábæru liði sem fór á annað getustig í þessari leikser- íu. Það breytir því ekki að þessi leikur átti ekki að vera leikurinn þar sem við vorum að bjarga lífi okkar. Mér fannst við koma vel inn í þetta en það sem varð okkur að falli voru leikirnir tveir þar á undan,“ sagði Hrafn í leikslok en hann vonast til þess að fá tækifæri til þess að halda áfram sem þjálf- ari KR á næstu leiktíð. „Við erum ekki búnir að skrifa undir eitt né neitt en ég er farinn að undirbúa næsta vetur.“ „Þetta er óraunverulegt og maður er ekki búinn að ná þessu ennþá. Við erum búnir að hafa trú á þessu í allan vetur þótt að enginn annar hafi gert það,“ sagði Grétar Erlendsson leikmaður Þórs. „Bene- dikt Guðmundsson þjálfari hefur breytt öllu hjá okkur. Það eru gerð- ar miklar kröfur til okkar og við þurfum að hafa fyrir því að fá að spila,“ sagði Grétar en hann skor- aði 12 stig í gær. Veislan heldur því áfram í Þorlákshöfn næstu vik- urnar en liðið mætir annaðhvort Stjörnunni eða Grindavík í úrslita- rimmunni. seth@frettabladid.is Meisturunum ýtt til hliðar Nýliðar Þórs frá Þorlákshöfn hafa náð undraverðum árangri undir stjórn Bene- dikts Guðmundssonar. Liðið sló Íslandsmeistaralið KR úr leik á heimavelli sínum í gær, 83-80, og þar með rimmuna 3-1. Þór er í lokaúrslitunum í fyrsta sinn. SIGRINUM FAGNAÐ Stuðningsmannahópur Þórs, Græni drekinn, hefur sett skemmtilegan svip á úrslitakeppnina í ár. Hér fagna stuðningsmenn Þórs sigrinum á KR í gær. MYND/JÓN BJÖRN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.