Fréttablaðið - 19.04.2012, Blaðsíða 4
19. apríl 2012 FIMMTUDAGUR4
Save the Children á Íslandi
GENGIÐ 18.04.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
228,8708
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,03 127,63
203,07 204,05
166,04 166,96
22,316 22,446
22,028 22,158
18,758 18,868
1,5580 1,5672
195,39 196,55
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR
SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
LÖGREGLUMÁL Embætti sérstaks sak-
sóknara hefur fengið afhent gögn
frá Lúxemborg sem gegna lykil-
hlutverki í rannsókn þess á svo-
kölluðu Aurum Holding-máli, sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Rannsókn málsins er nú á lokastigi
og tekin verður ákvörðun um hvort
ákært verði vegna þess á næstunni.
Aurum Holding-málið snýst um
sex milljarða króna lán sem Glitnir
veitti félaginu FS38 í júlí 2008 til
kaupa á eignarhlut Fons í breska
félaginu Aurum Holdings, sem
rekur meðal annars skartgripa-
verslunarkeðjuna Goldsmiths. Bæði
Fons og FS38 voru í eigu Pálma
Haraldssonar. Grunsemdir eru um
að kaupverðið hafi verið margfalt
hærra en raunvirði hlutarins og
að lánveitingin hafi meðal annars
verið framkvæmd til að losa um
tvo milljarða króna í reiðufé fyrir
Pálma og Jón Ásgeir Jóhannesson.
Eftir að lánið til FS38 var veitt,
og sex milljarðar króna greiddir
út úr Glitni, voru tveir milljarðar
króna færðir inn á hlaupareikning
Fons og þaðan var einn milljarður
króna færður beint inn á persónu-
legan hlaupareikning Jóns Ásgeirs.
Heimildir Fréttablaðsins herma að
annar þessara milljarða hafi ratað
inn á reikning í Kaupþingi í Lúxem-
borg.
Í umfangsmikilli húsleit í bank-
anum, sem nú heitir Banque Havill-
and, í mars í fyrra lagði sérstakur
saksóknari meðal annars hald á
gögn sem tengjast málinu. Yfir 70
manns tóku þátt í þeirri aðgerð sem
stóð yfir í rúmar tvær vikur. Sak-
sóknari fékk gögnin síðan afhent
frá þarlendum yfirvöldum fyrir
um mánuði síðan. Heimildir Frétta-
blaðsins herma að þau skýri lausa
anga í Aurum–fléttunni og að bráð-
lega verði hægt að ljúka rannsókn
á henni.
Slitastjórn Glitnis stefndi Jóni
Ásgeiri, Pálma, Lárusi Welding
og þremur fyrrum starfs mönnum
Glitnis vegna Aurum-lánsins
snemma árs 2010 og eru hinir
stefndu sameiginlega krafðir um
greiðslu á sex milljörðum króna
auk vaxta frá miðju ári 2008. Málið
var sett í biðstöðu í febrúar eftir að
dómari í Héraðs dómi Reykjavík-
ur vildi fá að vita hvað kæmi út úr
rannsókn sérstaks saksóknara áður
en lengra yrði haldið. Til stendur að
taka málið aftur fyrir í maí.
Von er á því að fleiri gögn sem
lagt var hald á í aðgerðinni í fyrra
verði send til Íslands á næstunni.
Þau snerta fjölmörg mál sem hafa
verið til rannsóknar hjá embætti
sérstaks saksóknara. Þeirra á
meðal er 171 milljóna evra (um 28,5
milljarða króna) lán Kaupþings til
Lindsor Holdings 6. október 2008.
Lánið var notað til að kaupa skulda-
bréf af Kaupþingi í Lúxemborg,
einstökum starfsmönnum þess
og félagi í eigu Skúla Þorvalds-
sonar, eins stærsta viðskiptavinar
bankans. Embætti sérstaks sak-
sóknara telur að bréfin hafi verið
keypt á mun hærra verði en mark-
aðsvirði. Kaupþing, sem var óbeinn
eigandi Lindsor, féll þremur dögum
síðar. Ein ástæða þess að afhending
gagnanna hefur tafist jafnmikið og
raun ber vitni er sú að hluti þeirra
sem gögnin fjalla um, og eru til
rannsóknar hjá sérstökum saksókn-
ara, mótmæltu afhendingu þeirra.
thordur@frettabladid.is
Sérstakur saksóknari fær gögn
frá Lúxemborg um Aurum
Rannsókn sérstaks saksóknara á Aurum-málinu svokallaða er á lokastigi. Gögn sem haldlögð voru í Kaup-
þingi í Lúxemborg í fyrra voru send til Íslands fyrir mánuði síðan. Von á ákvörðun um ákæru á næstunni.
SÉRSTAKUR Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, var á meðal þeirra 30 sem
tóku þátt í húsleitum vegna rannsókna á Landsbankanum í þessari viku. Gögn
vegna fyrri húsleita þar í landi eru farin að skila sér til Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
NOREGUR Pósturinn í Noregi mun
þurfa að greiða sekt að upp-
hæð 1.850 milljóna íslenskra
króna eftir að EFTA-rétturinn
staðfesti í gær úrskurð Eftir-
litsstofnunar EFTA (ESA) um
að fyrirtækið hefði misnotað
markaðs ráðandi stöðu sína.
Málið snýst um póstsendingar
á keyptri vöru frá fyrirtækjum
til viðskiptavina, en Pósturinn
hefur tryggt sér yfirburðastöðu
með samningum um að hafa
útibú í verslunum og um allan
Noreg.
Dreifingarfyrirtækið
Schenker höfðaði málið í upp-
hafi og ESA gaf úrskurð sinn
árið 2010, en Pósturinn áfrýjaði
þeim úrskurði. - þj
Há sekt á Póstinn í Noregi:
Misnotaði
markaðsráð-
andi stöðu sína
ALMENNINGSÍÞRÓTTIR Nýrri þrauta-
braut var í gærkvöldi komið
fyrir í barnalaug Laugardals-
laugar sem opna átti klukkan
átta í morgun eftir þriggja daga
lokun vegna framkvæmda.
„Okkur langaði að leggja
áherslu á börnin og þessi braut
er hluti af því,“ segir Logi
Sigurfinnsson, forstöðumaður
Laugardalslaugar.
Ný rennibraut fyrir yngstu
krakkana er einnig hluti af
framkvæmdunum sem Logi
segir verða lokið á næstu
vikum. Síðar verði farið í
2. áfanga endurbóta á sund-
staðnum og þá verði sjónum
beint að búningsklefunum. - gar
Opnar á ný eftir endurbætur:
Ný þrautabraut
í barnalaugina í
Laugardalnum
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
20°
15°
17°
13°
14°
14°
12°
12°
21°
11°
16°
18°
30°
11°
13°
20°
7°
Á MORGUN
3-8 m/s.
LAUGARDAGUR
Hægur vindur.
0
1
-2
3
2
4
5
-2
6
5
4
7
7
5
7
5
4
6
6
10
7
8
-22
0
4
5 7
8
3 4
2
GLEÐILEGT
SUMAR! Það verða
mestu líkur á úr-
komu austanlands
í dag en annars
yfi rleitt bjartviðri og
þurrt.Engin veruleg
hlýindi í dag nema
mögulega sunnan-
lands og má búast
við vægu frostu í
innsveitum norð-
austantil. Sama
góða veðrið næstu
daga.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
Kaupverðið margfalt bókfært virði
Fons, félag Pálma Haraldssonar, keypti umræddan hlut í Aurum Holding í
febrúar 2007 fyrir 2,5 milljarða króna auk þess sem félagið greiddi 330 millj-
ónir króna í viðbót í desember 2008. Heildargreiðslur Fons vegna kaupanna
námu því um helmingi þeirra sex milljarða króna sem Glitnir lánaði hinu
eignarlausa FS38, sem var líka í eigu Pálma, til að kaupa hlutinn af Fons. Í
bókhaldi Fons, sem varð aðgengilegt eftir gjaldþrot félagsins, var verðmæti
Aurum sagt 1,4 milljarðar króna í byrjum árs 2008.
Í stefnu slitastjórnar Glitnis vegna Aurum-lánsins til FS38 var meðal
annars vitnað í tölvupóst Einars Arnar Ólafssonar, þáverandi framkvæmda-
stjóra fyrirtækjaráðgjafar bankans, til forstjórans Lárusar Welding. Í honum
segist Einar verða „að viðurkenna að ég skil ekki af hverju við lanum ekki
bara palma 2.ma.kr. til að koma fyrir á cayman, aður en hann fer a hausinn,
I stað thess að fara I alla thess goldsmith aefingu“.
Þegar lánið var á gjalddaga í júlí 2009 voru engar eignir inni í FS38 til að
mæta greiðslu þess. Fons hafði auk þess verið tekið til gjaldþrotaskipta í
apríl 2009. Verðgildi bréfanna í Aurum, sem átti meðal annars skartgripa-
keðjuna Goldsmiths, var þá ekkert enda hafði félagið lent í verulegum fjár-
hagsvandræðum og allir hluthafar þess þegar fallist á að afskrifa hlutafé sitt.
Þrotabú Landsbankans, sem var stærsti kröfuhafi félagsins, breytti kröfum
sínum á móti í nýtt hlutafé. Það heldur enn á Aurum.
ICESAVE Tilskipun um innistæðu-
tryggingar gildir þrátt fyrir kerf-
ishrun. Þetta kemur fram í and-
svörum Eftirlitsstofnunar EFTA
(ESA) við málsvörn Íslands í
Icesave- málinu.
Andsvörin voru birt á vef
utanríkis ráðuneytisins í gær, en
þar kemur fram að afstaða ESA
sé óbreytt. Ísland hafi brotið
gegn til skipuninni og eigi að bera
kostnaðinn af endurgreiðslu lág-
marksinnistæðutryggingar til
innistæðueigenda í Hollandi og
Bretlandi.
Í andsvörunum segir að ekki
sé hægt að ætlast til þess að inni-
stæðutryggingakerfi geti staðið
undir heilu bankakerfi, en komi
til hruns þurfi samt að vera hægt
að bregðast við.
„Það getur einfaldlega ekki
hafa verið markmið ESB-löggjaf-
arinnar þegar tilskipunin var inn-
leidd að vernd á innistæðum verði
minni eftir því sem áhætta inni-
stæðueigenda aukist,“ segir þar.
Þá er áréttað að innistæðu-
eigendum hafi verið mis munað.
Falskan tón slái við í mál flutningi
Íslands um að allir hafi setið við
sama borð þar sem enginn hafi
fengið greitt út tryggingasjóði.
Innistæðueigendur á Íslandi
hafi notið séraðgerða. Annars
vegar þegar innistæður þeirra
voru færðar í nýju bankana og
aðgangur að þeim hélst óskert-
ur. Í annan stað voru innistæður
á Íslandi tryggðar að fullu.
Undirbúningur að gagnsvörum
íslenskra stjórnvalda er þegar
hafinn og miðað er við að þau
verði lögð fram innan tilskilins
frests, 11. maí næstkomandi, að
undangengnu samráði við utan-
ríkismálanefnd. - þj
Eftirlitsstofnun EFTA hafnar rökum Íslands í Icesave-málinu sem er fyrir EFTA-dómstólnum:
Kerfishrun afsaki ekki meint brot á tilskipun
RÖKUM ÍSLANDS HAFNAÐ Í and-
svörum ESA við málsvörn Íslands fyrir
EFTA-dómstólnum segir meðal annars
að íslensk stjórnvöld hafi mismunað
innistæðueigendum eftir löndum.