Fréttablaðið - 19.04.2012, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 19.04.2012, Blaðsíða 58
19. apríl 2012 FIMMTUDAGUR50 F A B R IK A N OSTAVEISLA FRÁ MS Gullostur Hvítmygluostur. Hvítmyglan er einnig inni í ostinum. Áhugaverður ostur með mildu bragði sem gott er að njóta í lok góðrar máltíðar. Þessi ostur er einn af flaggskipunum í ostafjölskylduni frá MS. Heilbakaður Gullostur með timjan og hvítlauk Vefjið smjörpappír utan um ostinn, pikkið átta göt ofan í ostinn og stingið ögn af timjan ásamt þunnum sneiðum af hvítlauk ofan í götin. Dreypið örlítilli ólífuolíu yfir. Pakkið ostinum aftur inn í bréfið sem var utan um hann og bakið hann í 30 mínútur við 160°C. Berið ostinn fram með grilluðu hvítlauksbrauði. Osta er hægt að bera fram með ýmsum hætti, það má t.d. borða Gullostinn með góðu ávaxtamauki, eða með hnetum og hella síðan góðu hunangi yfir eða setja í hann fyllingu úr þurrkuðum ávöxtum s.s. apríkósum og fíkjum og skreyta hann að ofan með þurrkuðum trönuberjum og hlynsírópi. Búa til litlar og fallegar ostasamlokur eða ostasnittur. Kynntu þér fleiri góðar hugmyndir og uppskriftir á heimasíðunni: www.ostur.is Ostabakki - antipasti Grillaðar paprikur, sól- eða ofn- þurrkaðir tómatar, grillað eggaldin, hráskinka og þurrkaðar pylsur. Gullostur, gráðaostur með ferskri peru, blár Kastali. Steyptur villisveppaostur skorinn út í litla hringi. Maribóostur með kúmeni. Kryddað apríkósumauk. Baguette-brauð. Uppskriftina að kryddaða apríkósu- maukinu má finna á vefnum www.ostur.is Þrjár nýjar ljóðabækur koma út í dag á vegum Uppheima, einnar metnaðarfyllstu ljóðaútgáfu landsins. Fyrst skal nefna fjórtándu ljóðabók Gyrðis Elíassonar, Hér vex enginn sítrónuviður. Gyrðir hefur verið iðinn við þýðingar að undanförnu en þetta er hans fyrsta frumsamda verk í tvö ár, frá því að ljóðabókin Nokkur almenn orð um kulnun sólar og smásagnasafnið Milli trjánna komu út samtímis. Eins og kunnugt er hlaut Gyrðir Bók- menntaverðlaun Norðurlanda- ráðs fyrir Milli trjánna. Leitin að upptökum Orinoco nefnist ljóðabók eftir Ara Trausta Guðmundsson, hugsan- legt forsetaefni. Í þessari óvenju- legu ljóðabók býður Ari Trausti lesandanum í langferð með manni sem tíminn hefur smám saman molað undan það sem hann þekkir best og er honum kærast. Skrifað í stein nefnist ljóða- úrval eftir sænska skáldið Kjell Espmark í þýðingu Njarðar P. Njarðvík. Bók hans Vetrarbraut hlaut mikið lof þegar hún kom út í þýðingu Njarðar 2010. Í byrjun mánaðar gáfu Uppheimar ein- mitt út ljóðabók eftir Njörð, Birtan er brothætt – braghendur og hækur. Í tilefni af útgáfunni bjóða Uppheimar til ljóðakvölds í húsa- kynnum sínum við Stórhöfða í kvöld klukkan 21, þar sem nýju bækurnar verða kynntar og lesið úr þeim. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Uppheimar fagna sumri með ljóðum GYRÐIR ELÍASSONARI TRAUSTI GUÐMUNDSSON KJELL ESPMARKNJÖRÐUR P. NJARÐVÍK FORSETAHJÓNIN Hermann sýnir smyrnuð veggteppi en verk hans eru gjarnan af þjóðþekktum persónum. Háð og spottar nefnist sýning Hermanns B. Guðjónssonar sem opnar í Boganum Gerðubergi á föstudag. Þar sýnir Hermann smyrnuð veggteppi sem hann hefur unnið á vinnustofunni á Hrafnistu þar sem hann býr. Hermann er fæddur 1936 og hefur unnið ýmis verkamanna- störf í gegnum tíðina. Hann er sjálfmenntaður listamaður og hafa verk hans vakið nokkra athygli en þau sýna gjarnan þjóð- kunnar persónur. Mörg þessara verka hefur Hermann gefið og eru þau varðveitt til að mynda á Bessastöðum og í Stjórnarráðinu. Til að gera sýninguna sem veg- legasta voru fengin að láni verk í eigu forseta Íslands, forsætis- ráðherra og annarra stjórnmála- manna. Háð og spott er hluti af hátíðinni List án landamæra. Sýningin opnar klukkan 17.15 á morgun og stendur til 22. júní. Háð og spottar í Gerðubergi Bókaverðlaun barnanna verða afhent í ellefta sinn í aðalsafni Borgarbókasafnsins í Tryggva- götu 15. Veitt eru verðlaun fyrir eina frumsamda bók og eina þýdda en bækurnar sem hreppa hnossið eru valdar af krökkum á aldrinum sex til tólf ára víðs vegar af landinu. Gestir geta einnig upplifað hvernig það er að vera persóna í bók með því að bregða sér í risabók sem unnin er af yfir 300 nemendum í Vesturbæjarskóla. Í bókinni eru felumyndir, ljóð, textar, flettimyndir, hljóð, skila- boð, lykt og aðalpersónan - þú. Dagskráin í Borgarbóka- safninu byrjar klukkan 14. Bókaverðlaun barnanna veitt í dag BÆKUR FYRIR BÖRN Krakkar á aldrinum sex til tólf ára velja bestu frumsömdu og þýddu bókina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.