Fréttablaðið - 19.04.2012, Blaðsíða 50
19. apríl 2012 FIMMTUDAGUR42
timamot@frettabladid.is
BANDARÍSKA LEIKKONAN ASHLEY JUDD er 44 ára í dag.
„[Feðraveldið] er lúmskt og lævíst og aldrei harðskeyttara en þegar
konur neita því innilega að þær taki á nokkurn hátt þátt í því.“
44
Þennan dag árið 1943 hófst uppreisn í
gyðinga hverfinu í Varsjá. Nasistar komu
hverfinu á koppinn árið 1940 og fluttu
þangað gyðinga sem lifðu við sérlega bág
kjör. Í júlí 1942 hófu SS-sveitirnar svo brott-
flutning frá gyðingahverfinu til útrýmingar-
búðanna í Treblinka.
Brottflutningunum fylgdi mikil óánægja og
fóru þeir fáu íbúar sem eftir voru í hverfinu að
skipuleggja varnir. Í byrjun janúar 1943 kom
Himmler, foringi SS-sveitanna, í heimsókn
í gyðingahverfið og ákvað að átta þúsund
gyðingar til viðbótar skyldu fluttir til Treblinka.
Um leið og þetta spurðist út fóru varnar-
sveitirnar í gang og gyðingarnir sem eftir
voru börðust og földu sig. Því var ákveðið að
hefja endanlegan brottflutning allra gyðinga
úr hverfinu. Uppreisnin hófst á nýjan leik og
börðust gyðingarnir hetjulega við vel vopnaða
þýska hermenn. Andspyrnan stóð í fjórar vikur.
ÞETTA GERÐIST: 19. APRÍL 1943
Gyðingar gera uppreisn í Varsjá
Jóhanna Þórhallsdóttir, stofnandi
kvennakórsins Léttsveitar Reykja-
víkur, stjórnar kórnum í síðasta sinn
á tvennum vortónleikum í Gamla bíói
í dag.
„Þetta verður ljúfsár tregi á apríl-
degi,“ segir Jóhanna um tilfinninguna
sem fylgir því að kveðja kórinn eftir
sautján ára samveru. „Þetta er dálítið
eins og að kveðja barnið sitt. Sonur
minn er einmitt sautján ára og á
leiðinni út í skiptinám og mér datt í
hug að kannski er ég að leyfa kórnum
að hleypa heimdraganum líka. Ég er
mjög stolt af Léttsveitinni og þetta
hefur verið meiri leikur en vinna í
gegnum tíðina en nú er kominn tími
til að kveðja.“
Jóhanna hóf myndlistarnám í vetur
og vill einbeita sér að myndlistinni í
auknum mæli og þá þarf eitthvað að
láta undan. „Ég held að það sé líka
hollt að venda reglulega kvæði sínu í
kross og snúa sér að öðru.“
Léttsveitinni hefur vaxið fiskur
um hrygg frá því að Jóhanna stofnaði
hana. Fyrsta starfsárið voru með-
limir um 40 en eru nú orðnir um 130.
„Tonnafjöldinn er að minnsta kosti
kominn yfir sjö,“ segir Jóhanna og
hlær. Spurð hvað sé eftirminnilegast
á ferlinum nefnir Jóhanna samveruna
við konurnar í kórnum.
„Þetta er einstakur hópur og
ótrúlega skemmtilegt samfélag
kvenna, sem hefur ferðast um allan
heiminn saman. Þarna hef ég eignast
margar af mínum bestu vinkonum.“
„Revíur og rómantík“ er yfir-
skrift vortónleikanna í Gamla bíói í
dag. Þar verða leikin lög úr revíum
eftir Guðmund Sigurðsson og Harald
Á. Sigurðsson en einnig verða nýrri
dægurlög eftir þau Röggu Gísla,
Bubba og Mugison, ásamt íslenskum
sönglögum sem minna á sumar-
komuna. Jóhanna kveðst ávallt hafa
lagt áherslu á fjölbreytt efnisval á
tónleikum Léttsveitarinnar.
„Alltaf eitthvað nýtt, er eitt af
mínum mottóum en ekki vera að
hjakka í þessu gamla.“
Spurð hvort hún eigi sér
uppáhaldslag segir Jóhanna það
yfirleitt fara eftir því hvaða lög kór-
inn er að syngja hverju sinni. „Nú
er það Stingum af með Mugison –
kannski vegna þess að ég er einmitt
að stinga af,“ segir hún og hlær.
Tónleikarnir í Gamla bíói í dag
hefjast klukkan 14 og 17. Nálgast má
miða á Midi.is og í miðasölu Gamla
bíós. bergsteinn@frettabladid.is
JÓHANNA ÞÓRHALLSDÓTTIR: S TJÓRNAR LÉTTSVEITINNI Í SÍÐASTA SINN
Ljúfsár tregi á apríldegi
Opið hús verður í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi í
dag frá klukkan 10 til 18. Sumarið er komið í garðskálanum
og hægt er að heimsækja hitabeltið í bananahúsinu og potta-
plöntusafninu. Á markaðstorgi verður til sölu grænmeti, blóm
og trjáplöntur og veitingasala er á staðnum.
Í skólastjórabústaðnum á Reykjum hefur verið sett upp
sýning á munum í eigu skólans. Íslandsmeistarakeppni í
blómaskreytingum fer svo
fram í aðalbyggingu skól-
ans. Allir eru vel komnir
til að fylgjast með og velja
fallegasta verkið.
Hátíðardagskrá hefst
klukkan 13.30. Þar verða
afhent Garðyrkju verðlaun
LbhÍ, Umhverfis verðlaun
Hvera gerðis bæjar og Um-
hverfis verðlaun Ölfuss. Meðal
gesta verða Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, og
Katrín Jakobsdóttir mennta-
og menningarmálaráðherra.
Ókeypis er í sund í sundlauginni í Laugaskarði og gestum er
boðið upp á kaffi og djús auk þess sem yngsta kynslóðin fær
óvæntan glaðning. Þá býður íþróttafélagið Hamar til 20 ára
afmælishátíðar í Íþróttahúsinu í Hveragerði milli klukkan 15
og 17 sem endar í allsherjar kaffisamsæti. - gun
Veisla í Hveragerði
STAÐARHALDARI Guðríður
Helgadóttir mun krýna Íslands-
meistarann í blómaskreytingum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KARLSSON
JÓHANNA ÞÓRHALLSDÓTTIR Segir það eins og að kveðja barnið sitt að segja skilið við Léttsveitina sem hún stofnaði fyrir sautján árum. „Þetta
hefur verið meiri leikur en vinna í gegnum tíðina.“ FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
Hjartans þakkir til ykkar allra sem sýnduð
okkur samúð og hlýju vegna andláts og
útfarar elskulegs eiginmanns míns og vinar,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
JÓNS MARINÓS KRISTINSSONAR.
Innilegt þakklæti til alls starfsfólks á
hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði, fyrir
einstaka umönnun og hlýju í hans garð.
Guð blessi ykkur öll.
Sonja I. Kristensen
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÁSMUNDUR BJÖRN CORNELIUS
Vatnsholti 1d, Reykjanesbæ,
hefur verið jarðsettur í kyrrþey að ósk hins
látna. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Þroskahjálp á Suðurnesjum. Þökkum samúð
og vinarhug.
Margrét Einarsdóttir
Þórir Frank Ásmundsson Sigrún Valdimarsdóttir
Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir Kristinn Edgar Jóhannsson
Hrönn Ásmundsdóttir Snorri Ólason
og barnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýnt hafa okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegrar eiginkonu
minnar, móður okkar, stjúpmóður,
ömmu og langömmu,
INGIBJARGAR ÞÓRUNNAR
HALLDÓRSDÓTTUR
sem lést miðvikudaginn 4. apríl. Sérstakar
þakkir flytjum við starfsfólki Landspítalans og öðrum þeim sem
veittu dýrmæta aðstoð og umönnun í veikindum hennar.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Sváfnir Sveinbjarnarson
Guðbjartur Torfason
Ásbjörn Torfason
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð,
hlýhug og vináttu við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
STEINGRÍMS EINARS ARASONAR
Framnesvegi 13, Reykjavík.
Starfsfólki á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund færum við sérstakar þakkir fyrir
einstaka umönnun.
Hjörtný Árnadóttir
Jónína Árndís Steingrímsdóttir Þorsteinn Helgason
Sigmar Arnar Steingrímsson Ásta Benediktsdóttir
Bryndís, Unnur Arna og Steinunn Helga Þorsteinsdætur
Arndís Auður, Gunnbjört Þóra og Hjörtur Steinn Sigmars-
börn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
RAGNA JÓNSDÓTTIR
Hlöðufelli, Eyrarbakka,
lést laugardaginn 14. apríl á hjúkrunar-
heimilinu Ljósheimum. Útförin fer fram frá
Eyrarbakkakirkju laugardaginn 21. apríl
kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jóhann Jóhannsson
Unnur Jóhannsdóttir Guðmundur Stefánsson
Ingibjörg Jóhannsdóttir Jón Guðmundsson
Sólrún Jóhannsdóttir Jóhannes Þorgeirsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
BJÖRGVINS ÓLAFSSONAR
tæknifræðings
Kirkjulundi 6, Garðabæ.
Halldóra Sigurjónsdóttir
Edda G. Björgvinsdóttir
Birgir Björgvinsson Ásta Edda Stefánsdóttir
Áslaug Högnadóttir Páll Haraldsson
Andri Björn Birgisson
Brynja Dóra Birgisdóttir
Týr Fáfnir Stefánsson