Fréttablaðið - 19.04.2012, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 19.04.2012, Blaðsíða 8
19. apríl 2012 FIMMTUDAGUR8 SUMARDAGURINN FYRSTI MENNING Skemmtidagskrá verður með hefðbundnu sniði í hverfum höfuðborgarsvæðisins í dag á sumar daginn fyrsta. Víðast hvar verða skrúðgöngur farnar í tilefni dagsins og boðið upp á veitingar. Þá verða leiktæki og skemmtiatriði fyrir börnin. Á korti sem fylgir hér að ofan má sjá hvar hátíðarhöldin á höfuð- borgarsvæðinu verða í dag. Nánari upplýsingar um tíma setningar, skemmtidagskrár og fyrir hugaðar skrúðgöngur má nálgast hjá sveitar félögum og þjónustumið- stöðvum í hverfum Reykjavíkur. Dagskráin í dag er fjölbreyttari en oft áður þar sem Barnamenn- ingarhátíð í Reykjavík er haldin í annað skipti þessa dagana en henni fylgja viðburðir um alla borg. Dag- skrá hátíðarinnar er að finna á vef- síðu hennar en nokkrir helstu við- burðir dagsins verða taldir upp hér að neðan. Í Þjóðminjasafninu verður dagskrá helguð börnum fram eftir degi þar sem víkinga- félagið Rimmugýgur mun meðal annars bregða á leik auk þess sem Brúðuleik húsið mætir á svæðið. Í Listasafni Íslands munu nemendur við listkennsludeild Lista há skólans bjóða upp á fjölbreyttar lista- smiðjur fyrir fjölskyldur frá kl. 11 til 17. Þá verður fjölbreytt dag- skrá í Iðnó fram eftir degi þar sem áhuga sömum verður meðal annars kennt að gera töfrabrögð og ori- gami pappírsbrot. Í Tjarnarbíói mun Kammersveit Reykjavíkur leika tvö ný tónverk fyrir forvitna grunnskólakrakka og þá mun Möguleikhúsið frum- sýna Ástarsögu úr fjöllunum en sýningin hefst kl. 16.30. Í Þjóðleik- húsinu verður einnig sett upp leik- sýning, fjölskyldusýningin Skýja- borg sem hefst kl. 15.30. Loks mun Hestamanna félagið Fákur bjóða til opins dags á félags- svæði sínu þar sem borgarbúum er boðið að kynna sér starfsemi félagsins. Þar munu Reiðskóli Reykjavíkur og Faxaból auk þess bjóða börnum á hestbak þar sem teymt verður undir þeim. Meðal annarra staða þar sem staðið verður fyrir skipulagðri dagskrá í dag eru Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn, Árbæjarsafn, Háskóli Íslands, Klambratún, Ráð- hús Reykjavíkur og Nýlistasafnið. Upptalningin hér er ekki tæmandi listi yfir viðburði í höfuð- borginni í dag þar sem fjöldi annarra stofnana og félaga mun standa fyrir viðburðum. magnusl@frettabladid.is Sumarkomu fagnað Venju samkvæmt verður blásið til hátíðarhalda í dag í tilefni sumardagsins fyrsta. Í hverfum höfuðborgarsvæðisins verður skemmtidagskrá með hefðbundnu sniði en auk þess er fjöldi annarra viðburða boðaður á víð og dreif um borgina. Viðey Lágafellsskóli Lækjarhlíð 1, 270 Mosfellsbæ 13.00 Skrúðganga fer frá miðbæjartorgi að Lágafells- skóla. Þar verða leiktæki, þrautir og hoppukastalar auk skemmtiatriða og veitingasölu. Hofsstaðaskóli Skólabraut, 210 Garðabæ 14.00 Fjölbreytt skemmtidagskrá verður við Hofs- staðaskóla og kaffisala verður inni í skólanum. Klukkan 13 verður skátamessa í Vídalínskirkju og þaðan verður farin skrúðganga að skólanum. Grímsbær Efstaland 26, 108 Reykjavík 12.00 Sumargrill verður í Grímsbæ klukkan 12. Skrúðganga fer svo frá Grímsbæ að Bústaðakirkju. Þar verður samverustund. Fjölskyldudagskrá verður frá klukkan 14 í Víkingsheimilinu. Fífan Dalsmára 5, 201 Kópavogi 14.00 Fjölskyldudagskrá í Fífunni til 16.00. Þar verða skemmtikraftar, hoppukastalar og margt fleira. Klukkan 11 er skátamessa í Kópavogskirkju og svo skrúðganga frá Digranes- kirkju klukkan 13.30. Tónabær Safamýri, 108 Reykjavík 11.00 Fjölbreytt dagskrá fyrir utan félagsmiðstöðina Tónabæ og frístundaheimilið Álftabæ. Þar verða skemmtiatriði í boði barna og unglinga úr hverfinu, leiktæki, grillaðar pylsur og fleira til klukkan 13. Frostaskjól Frostaskjól 2, 107 Reykjavík 11.30 Fjölskylduhátíð með fjölbreyttri dagskrá, bæði úti og inni. Frá 9 til 11 verður dagskrá í Vesturbæjarlaug og frítt í sund. Þá verður skrúðganga frá Mela- skóla klukkan 11. Rimaskóli Rósarima, 112 Reykjavík 11.30 Dagskráin hefst með skrúðgöngu frá Spönginni að Rimaskóla. Fjölbreytt dag- skrá verður svo til 14.00 í og við skólann, svo sem tónlistaratriði, danssýning og leiktæki. Íþróttahús Seltjarnar- ness Suðurströnd 8, 170 Seltjarnarnesi 13.00 Skrúðganga frá sundlaug. Að henni lokinni verður dagskrá í og við íþróttahúsið. Einnig verður dagskrá í Seltjarnarnes- kirkju. Guðríðarkirkja og Ingunnarskóli Kirkjustétt 8, 113 Reykjavík 12.30 Skrúðganga fer frá Sæmundarskóla og að Guðríðarkirkju þar sem helgistund fer fram. Frá 13.30 verða hátíðarhöld við Grafarholtstorg þar sem ýmis dagskrá verður í boði. Miðborg Um alla miðborgina 12.00 Ýmis konar dagskrá vegna barnamenningar- hátíðar. Meðal annars er dagskrá í Þjóðminjasafninu, Ráðhúsinu og á Kjarvalsstöðum. Hólmasel Hólmasel 4, 109 Reykjavík 11.00 Hátíðarhöld milli 11 og 14. Skemmtiatriði verða í höndum barna og unglinga ásamt því að óvænt uppá- koma verður. Ýmis leiktæki verða á staðnum og kaffisala. Þróttheimar Holtavegi 11, 104 Reykjavík 11.00 Sýnd verða listaverk eftir börn og unglinga í hverfinu, útileikir, andlitsmálning og brjóstsykursgerð verða í boði. Boðið verður upp á grillaðar pylsur og fleira. Ársel Rofabæ 30, 110 Reykjavík 9.00 Frítt verður í sund í Árbæjarlaug milli 9 og 10.30. Skrúðganga fer svo frá lauginni að Árbæjar- kirkju. Í kirkjunni verður messa klukkan 11. 11.30 hefst svo skemmtidagskrá á Árbæjartorgi. STEMMNING Á SUMARDAGINN FYRSTA Dagskrá verður í Frostaskjóli og á fjölda annarra staða í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Thorsplan Autt svæði við hlið Strandgötu 24, 220 Hafnarfirði 14.00 Fjölskyldudagskrá verður í umsjón skáta. Fyrr um daginn verður skátamessa í Hafnar- fjarðar- kirkju og skrúðganga þaðan og að planinu. ÚTRÁSIN SEM TÓKST? Íslenskar bókmenntir erlendis Málþing í Norræna húsinu föstudaginn 20. apríl kl. 16-18. STUTTAR FRAMSÖGUR Laure Leroy, hjá forlaginu Zulma í Frakklandi: Viðtökur Afleggjara Auðar Övu Ólafsdóttur í Frakklandi. Jón Kalman Stefánsson: Erum við ekki alveg örugglega frábær? Coletta Bürling: Þjóðarsálin í þýskum búningi. Jón Yngvi Jóhannsson: ,,Nýtt land í norrænum bókmenntum“ - útrás íslenskra bókmennta um aldamótin 1900. PALLBORÐSUMRÆÐUR UM ÍSLENSKAR BÓKMENNTIR ERLENDIS Einar Már Guðmundsson, Hólmfríður Matthíasdóttir, Þorgerður Agla Magnúsdóttir og Pétur Már Ólafsson. Að málþingi loknu verður boðið upp á léttar veitingar Málþingið er haldið af Sögueyjunni í samvinnu við Rithöfundasamband Íslands og Félag íslenskra bókaútgefenda - með stuðningi Landsbankans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.