Fréttablaðið - 19.04.2012, Blaðsíða 56
19. apríl 2012 FIMMTUDAGUR48
HULDA BJÖRK GARÐARSDÓTTIR · GISSUR PÁLL GISSURARSON / ÞÓRA EINARSDÓTTIR · GARÐAR THÓR CORTES
ÁGÚST ÓLAFSSON · HRÓLFUR SÆMUNDSSON · JÓHANN SMÁRI SÆVARSSON
HERDÍS ANNA JÓNASDÓTTIR · BERGÞÓR PÁLSSON
HLJÓMSVEITARSTJÓRI: DANÍEL BJARNASON · LEIKSTJÓRI: JAMIE HAYES
LEIKMYND: WILL BOWEN · BÚNINGAR: FILIPPÍA ELÍSDÓTTIR · LÝSING: BJÖRN BERGSTEINN GUÐMUNDSSON
„Tímamótaviðburður í tónlistarlífinu“
- Jónas Sen, Fréttablaðið
„Frábær skemmtun og frammistaða“
- Ríkharður Örn Pálsson, Morgunblaðið
„Þarna verða til sannir töfrar...
Maður tók andköf í glæsilegustu aríunum“
- Silja Aðalsteinsdóttir, tmm.is
„Bravo! Bravi! Bravissimo!“
- Ólafur Arnarson, pressan.is
FÖSTUDAGINN 20. APRÍL KL. 20 - UPPSELT
LAUGARDAGINN 21. APRÍL KL. 20 - LOKASÝNING
- Hugo Shirley, Daily Telegraph, London
„Rosaleg upplifun... Sjónarspilið var magnað...
Snilldarlega vel sett upp“
- Ingi Þór Jónsson og Kristjana Stefánsdóttir,
Listræninginn á Rás 1
„Stórkostleg sýning í öllu tilliti...
Sennilega besta uppfærsla sem ég hef séð
hjá Íslensku óperunni“
- Helgi Jónsson, Víðsjá á Rás 1
MIÐASALA Í HÖRPU OG Á WWW.HARPA.IS
ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR UM HELGINA
48
menning@frettabladid.is
MEÐ DÖMU OG HERRA „Það var nærri því heilsársvinna að fást við hana, byggja
og rífa, breyta og bæta,“ segir listamaðurinn Atli Viðar Engilbertsson um vinnuna
að baki ávölum línum dömunnar. Dömuna, herrann og önnur verk Atla má sjá á
listasýningu hans sem verður opnuð í Hafnarborg í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Skjaldarmerkið hennar
Skjöldu nefnist listasýn-
ing Atla Viðars Engilberts-
sonar, sem verður opnuð í
Hafnarborg í dag. Sýningin
er hluti af listahátíðinni List
án landamæra, sem stendur
yfir næstu vikurnar með
fjölmörgum viðburðum.
„Já, það er byltingarstefna í gangi
hérna,“ svarar Atli Viðar Engil-
bertsson glettnislega, spurður
hvort hann ætli að kynna Íslend-
inga fyrir nýju skjaldarmerki í
Hafnarborg í dag. Þar opnar í dag
listasýning þar sem skoða má fjöl-
breytt verk úr hans smiðju. Þar
má meðal annars skoða skjaldar-
merkið hennar Skjöldu, sem
sýningin er nefnd eftir. Skjaldar-
merkið, rétt eins og mörg önnur
verk á sýningunni, er unnið úr
bylgjupappa. „Ég hef í gegnum
árin gert í því að vinna með hluti
sem ég fæ fyrir ekki neitt, hér og
þar. Ég hef það að áhugamáli að
sanka að mér slíkum hlutum.“
Atli kallar aðferðir sínar pappa-
skurðarlist. Skúlptúra sína vinnur
hann þannig að hann bætir einni
pappaplötu við í einu og sker utan
af henni, áður en næsta plata bæt-
ist við skúlptúrinn. Þannig byggist
verkið upp í smáum skrefum.
Atli er sjálfmenntaður fjöllista-
maður sem hefur skrifað ljóð,
leikrit, smásögur og samið tónlist,
samhliða því að vinna í fjölbreyttri
myndlist. Hann hefur jafnan gefið
verk sín út sjálfur. Sýning hans í
Hafnarborg er einn af fjölmörgum
viðburðum á listahátíðinni List án
landamæra, sem sett var í gær og
stendur fram í miðjan maí. Hátíðin
er haldin um allt land og eru við-
burðir í heildina um 60 talsins og
þátttakendur á sjötta hundrað.
Það voru handmenntatímarnir
í Héraðsskólanum á Reykjanesi
við Ísafjarðardjúp sem ýttu Atla
út í listsköpunina. „Þegar ég bjó
í sveitinni í gamla daga, fyrir 30
árum eða svo, var eiginlega það
eina sem ég gat lært í skólanum
textílvinna í handmennt. Í fram-
haldinu af þeim tímum fór ég að
hirða bönd utan af heyböggum og
hnýta úr þeim mottur og annað.“
Á sýningunni má meðal annars
sjá hnýtingaverk af þessu tagi,
skópör úr snæri. „Ég er með eitt
par úr mjög fínu efni og tvö trölla-
pör. Það var svolítið skrýtið þegar
ég sýndi skópörin eitt sinn á Hand-
verkshátíð í Hrafnagili. Þá heyrði
ég út undan mér krakkana segja
sögur af karlinum sem býr til
tröllaskó. Þar fékk ég nýtt viður-
nefni.“
Sýning Atla verður opnuð í
Hafnarborg í dag klukkan 15.
Á milli klukkan 16 og 18 verður
listasmiðja fyrir börn og fullorðna
þar sem unnið verður með pappa.
Safnið er opið til 21 í kvöld, líkt og
alla fimmtudaga.
holmfridur@frettabladid.is
SKJALDARMERKI
OG TRÖLLASKÓR
Hallgrímur Helgason og verk hans verða
í brennidepli á árlegu ritþingi Gerðu-
bergs á laugardag. Á ritþingum er
leitast við að veita persónulega innsýn í
feril þekktra rithöfunda og fólki gefinn
kostur á að kynnast persónunni á bak við
verkin, viðhorfum, áhrifavöldum og lífs-
hlaupi viðkomandi. Páll Valsson og Alda
Björk Valdimarsdóttir spyrja Hallgrím
spjörunum úr en Þorgerður E. Sigurðar-
dóttir stýrir þinginu.
Í tilefni ritþingsins mun Hallgrímur
opna myndlistarsýningu á neðri hæð
Gerðubergs. Sýningin nefnist Myndveiði-
tímabilið 2012 og samanstendur af mál-
verkum og teikningum sem öll eru frá
þessu ári.
Þá mun Ragnheiður Gröndal flytja
nokkur lög við kvæði Hallgríms á rit-
þinginu sem hefst klukkan 13.30 og
stendur til kl. 16.
Ritþing um Hallgrím Helgason
HALLGRÍMUR HELGASON Páll Valsson og Alda Björk Valdimarsdóttir rekja
garnirnar úr skáldinu í Gerðubergi á laugardag.
SJÓLAG - SÍÐUSTU FORVÖÐ Sjólagi, sýningu á verkum Hrafnhildar Ingu Sigurðardóttur í Artóteki, lýkur
sunnudaginn 22. apríl. Málverkin á sýningunni eru úr náttúrunni, einkum sjólagi og veðurfari á hafi úti. Úfnar
öldur, boðaföll og brim einkenna margar myndanna. Sýningin er á Reykjavíkurtorgi á 1. hæð Borgarbókasafns
Reykjavíkur, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15.