Fréttablaðið - 02.05.2012, Blaðsíða 28
2. maí 2012 MIÐVIKUDAGUR24 24
menning@frettabladid.is
Búsáhaldabyltingin er
bakgrunnur nýs íslensks
leikrits sem nefnist Hús-
takan. Stoppleikhópurinn,
undir stjórn Valgeirs Skag-
fjörð, sýnir það í Kópa-
vogsleikhúsinu að Funa-
lind 2. Hrund Ólafsdóttir er
höfundurinn.
„Þetta er átakaverk,“ segir
Hrund um leikrit sitt Hústökuna.
Ástandið í samfélaginu í kjölfar
bankahrunsins, sem neyddi fólk
til að endurmeta lífs skoðanir
sínar og gildi, segir hún hafa
orðið sér innblástur að því. „Mig
langaði að fjalla um ungt fólk sem
hefur gert ráð fyrir ákveðnum
lífsstíl og ákveðinni heimsmynd
en þarf svo að horfast í augu
við eitthvað allt annað og upp-
lifir miklar breytingar. Það voru
ýmsar leiðir að því marki.“
Hrund segir Stoppleikhópinn
hafa pantað hjá sér verk fyrir
tæpum þremur árum, þegar hún
hafi einmitt verið að móta grunn-
hugmyndina að Hústöku. „Þá
hófst ég handa við að aðlaga mína
hugmynd aðstæðum leik hópsins
og úr varð þetta verk,“ segir
hún og kveðst ekki hafa mætt
á æfingar eftir að hún lauk við
handritið.
Án þess að ræna væntanlega
leikhúsgesti spennunni þá ljóstrar
Hrund því upp að Hústakan
fjalli um ungan mann, Atla Geir,
sem býr við ágætar aðstæður,
á móður sem er alþingismaður
og föður sem er iðnaðarmaður
og verktaki; er listrænn strákur
sem spilar á gítar og syngur. „Atli
Geir kynnist stelpunni Ingu sem
er baráttukona. Hún tekur þátt í
búsáhaldabyltingunni og verður
leiðtogi hóps og Atli Geir dregst
inn þetta með henni og kynnist
mörgu sem hann hafði ekkert
hugsað um áður,“ lýsir Hrund og
heldur áfram. „Hópurinn ákveður
að gerast hústökufólk til að hjálpa
þeim sem minna mega sín og
gefa fjölskyldum að borða sem
hafa misst allt sitt. Sú ákvörðun
dregur stóran dilk á eftir sér
því átök verða og alvarlegt slys
og strákurinn verður að gera
upp við sig hvort hann ætlar
að standa með stúlkunni sinni
eða bjarga eigin skinni. Það er
spurningin sem verkið snýst um
í raun og veru og svarið látum við
áhorfendum eftir að upplifa.“
Leikarar í Hústökunni eru
Ingi Hrafn Hilmarsson, Ólöf
Jara Skagfjörð, Eggert Kaaber
og Katrín Þorkelsdóttir. Leik-
stjóri er, eins og áður sagði, Val-
geir Skagfjörð og hann er líka
höfundur tónlistar. Næsta sýning
er í kvöld, 2. maí klukkan 20.
Miðinn kostar 1.500 og hægt er
að panta á eggert@centrum.is.
gun@frettabladid.is
Að segja frá eða þegja
HÖFUNDURINN Hrund Ólafsdóttir segir
leikritið fjalla um ungan mann sem þarf
að endurmeta lífsskoðanir sínar og gildi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
PARIÐ UNGA Ingi Hrafn Hilmarsson og Ólöf Jara Skagfjörð í hlutverkum sínum í Hús-
tökunni.
Dregið verður 15. maí úr keyptum miðum í forsölu.
Í verðlaun er flug fyrir tvo til Evrópu með Iceland Express.
L
A
N
D
SM
ÓT HESTAM
AN
N
A
N
A
T
IO
N
AL HORSE SHOW
O
F
IC
E
L
A
N
D
Landsmót
hestamanna
Reykjavík
2012
Taktu þátt í forsöluleiknum
Kynntu þér forsölukjörin.
Athugið að forsölu lýkur 15. maí.
Sæti í stúku, miðar á landsmót
og hjólhýsastæði – allt bókanlegt
á www.landsmot.is
Minnum á afsláttarkjör félaga í LH og BÍ.
N1 korthafar fá 1.000 kr. afslátt.
25.06 – 01.07
DÓMKÓRINN Í REYKJAVÍK býður vorið velkomið í kvöld, miðvikudagskvöldið 2. maí, með tón-
leikum í Hafnarfjarðarkirkju. Á efnisskránni eru íslensk kórlög, meðal annars eftir Báru Grímsdóttur og Önnu
S. Þorvaldsdóttur, ásamt mótettum eftir Duruflé og Bruckner. Stjórnandi Dómkórsins er Kári Þormar. Tón-
leikarnir hefjast klukkan 20. Aðgangseyrir er 1.500 krónur en ókeypis er fyrir börn og ellilífeyrisþega.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Miðvikudagur 02. maí 2012
➜ Tónleikar
20.00 Karlakórinn Fóstbræður heldur
vortónleika í Langholtskirkju. Tenór-
söngvarinn Gissur Páll Gissurarson
kemur fram með þeim. Miðaverð er kr.
3.000.
➜ Dans
14.00 Síðdegisdans verður hjá Félagi
eldri borgara í Reykjavík, Stangarhyl 4.
Aðgangseyrir kr. 600.
➜ Handverkskaffi
20.00 Handverkskaffi verður í Gerðu-
bergi þar sem Margrét Sigurðardóttir
mun fara yfir virkni helstu kryddjurta og
hvernig má nýta þær gegn kvillum.
➜ Tónlist
21.00 Stefán Ómar Jakobsson kemur
fram ásamt hljómsveit í Norræna
húsinu. Aðgangseyrir kr. 1.500 en kr.
1.000 fyrir nemendur.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is