Fréttablaðið - 04.05.2012, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 4. maí 2012 17
Austurrískur laganemi, Max Scherns, bað Facebook um
að senda sér allar persónuupp-
lýsingarnar sem samskiptasíð-
an geymdi um sig en á því átti
hann rétt samkvæmt evrópsk-
um lögum. Scherns fékk sendan
geisladisk með yfir tólf hundruð
skjölum um hvenær hann hefði
loggað sig inn, hvað hann hefði
sagt við hvern, í hvern hann hefði
potað, hvað hann hefði lækað og
hvar myndir sem hann og vinir
hans settu inn á vefinn væru
teknar og margt fleira.
Ekkert af þessu ætti að koma
okkur sérlega á óvart. Flest af
því sem fólk gerir á Facebook og
öðrum samskiptasíðum er auðvit-
að geymt. Margt af því er notað
í þágu þeirra fyrirtækja sem
gögnin geyma. Fyrirtækin nota
gögnin til dæmis til að persónu-
sníða auglýsingar að áhugasviði
hvers og eins. Þær auglýsingar
sem runnu í gegnum gmailið mitt
í morgun tengdust útihlaupum,
tungumálanámi og IKEA; neyð-
arlega nákvæm lýsing á persónu-
leika mínum.
Lönd fara ólíkt að þegar kemur
að aðgengi almennings að pers-
ónuupplýsingum og heimildum
til hvers kyns söfnunar þeirra. Í
Póllandi, þar sem ég þekki aðeins
til, virðist vernd persónuupplýs-
inga almennt vera tekin alvar-
legar heldur en á Íslandi. Þannig
eru sjaldnast nöfn á dyrabjöllum
eða póstkössum. Þá er heldur
ekki að finna neinar símaskrár
sambærilegar Já.is að umfangi,
og þær sem til eru bjóða upp á
mjög takmarkaða leitarmögu-
leika. Fái menn ekki persónulega
símanúmerið hjá einhverjum þá
er ólíklegt að þeir finni það með
öðrum leiðum.
Á Íslandi er staðan önnur. Þjóð-
skráin er opin upp á gátt. Auð-
veldlega má komast að því hvar
hver og einn býr, hver býr þar
með honum, og hvenær þeir allir
eru fæddir. Samkvæmt reglu-
gerðum er mönnum beinlínis
skylt að setja nöfn á bréfalúgur
svo allir viti hver búi í viðkom-
andi íbúð. Margt af þessu getur
haft praktíska kosti en hefur líka
þau áhrif að þeir sem vilja hnýs-
ast um einkalíf annarra rekast
ekki á marga veggi.
Það kemur okkur nákvæm-
lega ekkert við hvar Jóhanna
Sigurðardóttir á heima. Einhver
hálfviti sem ætlaði að sprengja
sprengju við íbúð hennar kunni
ekki nógu vel á netið til að finna
heimilisfangið. Við getum þá rétt
ímyndað okkur hvaða skaða ein-
hver reyndari netverji með ein-
beittari brotavilja gæti valdið.
Vonandi að við þurfum ekki að
komast að því af illri raun.
En þetta hefur í raun þegar
valdið vandræðum. Eitthvað lið
mætti til dæmis heim til Þorgerð-
ar Katrínar og kúgaði hana til
að segja af sér varaformennsku
í Sjálfstæðisflokknum. Aðrir
íslenskir stjórnmálamenn hafa
lent í svipuðu. Kannski má með
einhverjum hætti reyna að halda
því fram að þeir sem gerast opin-
berar persónur geti ekki gert
sömu væntingar til einkalífs en
aðrir. Engu að síður þá getur það
ekki talist boðleg baráttuaðferð
að láta kyndlaskríl hræða kjörna
fulltrúa og fjölskyldur þeirra
með því að taka sér stöðu fyrir
utan heimili þeirra.
Fullt af öðru fólki hefur svo
alls ekkert gert til að afsala sér
rétti til einkalífs og hinar opnu
upplýsingar um heimilisföng
geta auðveldlega valdið því þján-
ingum. Fólk ræður því ekki að
börn þeirra leiðast út í neyslu og
skulda glæpamönnum peninga.
Fólk ræður því ekki endilega
hvort það verður vitni að glæp.
Eða hvort það verður fórnarlamb
glæps.
Við Íslendingar höfum gjarnan
stært okkur af því að hér á landi
sé allt svo opið og saklaust að hér
séu forsætisráðherrar og borgar-
stjórar auðfundnir í símaskrám.
Það er spurning hvort við þurfum
ekki að endurskoða þá sýn. Hið
mikla magn af persónuupplýsing-
um sem fólk dreifir á hvers kyns
samskiptasíðum gefur vissulega
til kynna að flestir Íslendingar
séu, enn sem komið er, tiltölu-
lega áhugalitlir um eigin pers-
ónuvernd, eða í það minnsta meti
kosti þess að aðrir viti mikið um
þá meira en gallana.
Það er í sjálfu sér gott og bless-
að ef fólk ræður því sjálft. Ríkið
ætti hins vegar ekki að veita
öllum sem vilja greiðan aðgang
að viðkvæmum upplýsingum um
einkahagi fólks. Endurskoða ætti
opinbera birtingu á heimilisföng-
um manna, fjölskylduaðstæðum
þeirra og tekjum.
Allt of mikið uppi á borðinu
Pawel Bartoszek
stærðfræðingur
Í DAG
Við Íslendingar höfum gjarnan stært
okkur af því að hér á landi sé allt svo
opið og saklaust að hér séu forsætisráð-
herrar og borgarstjórar auðfundnir í símaskrám.
AF NETINU
Hætt við
Það pirraði mig t.d. alveg
gríðarlega þegar Guðrúnu
Pétursdóttur var leyft að draga
forsetaframboð sitt til baka
1996. Guðrún skilaði inn fram-
boði, utankjörfundaratkvæða-
greiðslan var í fullum gangi og
kjörfrestur löngu liðinn, þegar
Guðrún bara hætti – augljós-
lega af strategískum ástæðum.
Ekkert í lögunum um forseta-
kosningar gaf til kynna að það
væri heimilt – samt ákvað
landskjörstjórn að taka ósk
hennar gilda og endurprenta
kjörseðla.
Þetta var galin ákvörðun og
fullkomin lögleysa. Eina rétta
leiðin var að segja Guðrúnu
að hún mætti gefa út allar
heimsins tilkynningar um að
hún vildi ekki fá atkvæði – en
nafnið yrði látið standa.
Vestanhafs eru dæmi um að
dauðir menn hafi verið á kjör-
seðlum og jafnvel náð kjöri
(sem átti sér reyndar flóknar
pólitískar skýringar). Þar skilja
menn nefnilega hugtakið fram-
boðsfrestur – og að það að
skila inn framboði er endanleg
aðgerð.
blogg.smugan.is/stefan
Stefán Pálsson
Furðuleg forgangsröðun
á þingi og endursýningar
Tvö stór mál komu alltof seint
inn í þingið þ.e. sjávarútvegs-
málin og rammaáætlun. Þau
mál eru komin til atvinnu-
veganefndar til umfjöllunar
en vegna þess hve seint þau
komu til þingins er útilokað
að nefndin nái að klára bæði
málin þannig að sómi sé af.
Ríkisstjórnin virðist líta á alþingi
sem afgreiðslustofnun sem
ekki eigi að þvælast fyrir þeim
málum sem hún kemur með.
Hlutverk alþingis er að setja lög
og vanda til við lagasetninguna.
Það er vitanlega alveg hægt
að afgreiða þessi stóru mál án
þess að ræða þau á nokkurn
hátt en er það virkilega þannig
sem á að vinna?
Stjórnarandstaðan hefur hvað
eftir annað kvartað yfir þessum
vinnubrögðum en á það hefur
ekki verið hlustað.
Alþingi er að verða eins og
Ríkissjónvarpið, mikið um
endursýningar. Nú eru að hefj-
ast endursýningar á þátttaröð-
inni „Breytum stjórnarskránni
– bara af því bara“.
gunnarbragi.is
Gunnar Bragi Sveinsson
Bílabúð Benna - Tangarhöfða 8 - Reykjavík - S: 590 2000 / 590 2045 - www.benni.is
Nesdekk - Fiskislóð 30 - Reykjavík - S: 561 4110 / Nesdekk - Njarðarbraut 9 - Reykjanesbæ - S: 420 3333
Umboðsmenn um land allt - Upplýsingar í síma 590 2000
Sérfræðingar í bílum
Reykjanesb
æ
Reykjavík
INTERSTATE TOURING IST - INTERSTATE SPORT IXT
ÓDÝR OG
UMHVERFISVÆN
GÆÐADEKK
INTERSTATE hjólbarðar eru
framleiddir úr umhverfisvænni olíu
INTERSTATE hjólbarðar eru
þekktir á heimsvísu fyrir
mikil gæði og hagstætt verð
Skoða
ðu de
kkjaúr
valið!
w
ww.be
nni.is/
dekk