Fréttablaðið - 05.05.2012, Page 2
5. maí 2012 LAUGARDAGUR2
Birta, þurftirðu að hanna
góða lygasögu?
„Þetta var ekki beint lygasaga heldur
einungis hagræðing á sannleik-
anum.“
Birta Ísólfsdóttir bar sigur úr býtum í
hönnunarkeppninni Hannað fyrir Ísland
sem sýnd var á Stöð 2. Birta þurfti að
þegja yfir úrslitunum í hálft ár frá því að
tökum lauk og þar sem hún hlaut starf í
verðlaun þurfti hún að ljúga að vinum og
ættingjum um hvar hún vann.
STJÓRNSÝSLA Svandís Svavarsdótt-
ir umhverfisráðherra var van-
hæf þegar hún staðfesti breyt-
ingar á svæðis- og aðalskipulagi
höfuðborgarsvæðisins 2001 til
2024. Þetta er mat umboðsmanns
Alþingis.
Svandís uppfyllti ekki hæfnis-
kröfur í málinu vegna fyrri
aðkomu hennar að því sem borg-
arfulltrúi í Reykjavík. Umboðs-
manni barst kvörtun vegna máls-
ins og beinir nú þeim tilmælum
til umhverfisráðuneytisins að
taka staðfestingar og auglýsingar
ráðherra um skipulagsbreytingar
til endurskoðunar. - sv
Umboðsmaður um ráðherra:
Svandís vanhæf
í skipulagsmáli
UMHVERFISMÁL Lögreglan á Snæ-
fellsnesi vinnur þeirri hugmynd
fylgi þessa dagana að tekið verði
upp sérstakt eftirlit á Breiðafirði.
Um tilraunaverkefni yrði að ræða
með aðkomu stjórnvalda og stofn-
ana. Rökin fyrir því að gera út eft-
irlitsbát eru fjölmörg; eftirlit með
strandveiði- og skemmtibátum,
náttúruvernd og fleira sem mark-
ast af sérstöðu fjarðarins.
Hugmynd lögreglunnar er ekki
ný af nálinni en kom aftur upp á
borðið á dögunum þegar óprúttnir
menn gengu á land í eyju á Breiða-
firði og spilltu hreiðri og varpi
hafarnarpars. Í ljósi þessa atviks
kom upp umræða innan lögregl-
unnar á Snæfellsnesi að embætt-
ið eitt og sér gæti ekki haldið uppi
fullnægjandi löggæslu á og við
Breiðafjörð.
Ólafur Guðmundsson yfir-
lögregluþjónn segir að sérstaða
fjarðarins sé með þeim hætti að
sýnilegt eftirlit yrði mjög af því
góða. Fyrst af öllu eru það nátt-
úruverndarrök; fjörðurinn er
stór með miklum fjölda eyja og
langri strandlengju sem fóstrar
sérstætt lífríki. Þar eru fjölmörg
friðuð svæði sem útheimta eftirlit.
Önnur helstu rökin eru öryggis- og
eftirlitssjónarmið; mikil umferð
skemmtibáta á sumrin auk flota
strandveiðibáta sem er við veiðar
á firðinum yfir sumarið auk grá-
sleppuveiðibáta. Þá er ótalið mikið
æðarvarp og hagsmunir bænda
varðandi ólöglegar netalagnir. „Á
svæðinu eru því miklir hagsmunir
tengdir náttúruvernd og er mikil-
vægt að eitthvert sýnilegt eftirlit
sé á svæðinu til að draga úr hættu
á lögbrotum eins og leyfismálum
vegna bátaumferðar, ólöglegum
veiðum og siglingum undir áhrif-
um áfengis, sem því miður eru
alltaf nokkur brögð að,“ segir Ólaf-
ur og nefnir til viðbótar almenna
löggæslu. Hugmyndin er að eftir-
litið stæði nokkra mánuði frá því
arnarvarp hefst í mars-apríl, og þá
helst um helgar yfir sumarið.
Ólafur K. Ólafsson, sýslumað-
ur Snæfellinga, segir að ef hug-
myndin verði að veruleika muni
löggæsluþátturinn falla undir þrjú
lögregluembætti, auk Landhelgis-
gæslunnar; embættin á Snæfells-
nesi og á Vestfjörðum og embætt-
ið í Borgarnesi vegna Dalasýslu.
Aðrir aðilar sem gætu tengst verk-
efninu væru til dæmis Fiskistofa,
Umhverfisstofnun, náttúrustofurn-
ar á Vesturlandi og á Vestfjörðum,
sveitarfélög, Breiðafjarðarnefnd og
Landsbjörg vegna björgunarsveita
á svæðinu. svavar@frettabladid.is
Lögregla vill bát til
eftirlits á Breiðafirði
Lögreglan á Snæfellsnesi telur sérstakt eftirlit á Breiðafirði nauðsyn. Viðraðar
hafa verið hugmyndir við yfirvöld um eftirlitsbát. Rökin tengjast sérstöðu
fjarðarins; eyjabyggð, náttúruvernd og umferð skemmti- og strandveiðibáta.
BREIÐAFJÖRÐUR Eftir að arnarhreiðri var spillt í eyju á Breiðafirði vaknaði umræða
um hvort lögreglan gæti haldið uppi fullnægjandi löggæslu á svæðinu.
MYND/RÓBERT A. STEFÁNSSON
ELLIÐAÁR Sumarið lengt inn í haustið í
Elliðaárdal.
STANGVEIÐI Borgarráð hefur sam-
þykkt að fimmtán dögum verði
bætt aftan við laxveiðitímabilið í
Elliðaánum í sumar.
Stangveiðifélag Reykjavíkur
óskaði eftir því að veiðidögunum
yrði fjölgað þegar ljóst varð í vetur
að umsóknir félagsmanna um
veiðileyfi í ánum voru mun fleiri
en dagarnir sem í boði voru.
Upphaflega var einnig óskað
eftir að bæta fimm dögum framan
við veiðitímabilið en ekki var við
því orðið og hefst það því 20. júní.
Dagarnir sem bætast við eru 1. til
15. september. Þá daga er eingöngu
leyft að veiða á flugu og skylt verð-
ur að sleppa öllum laxi. - gar
Óskum veiðimanna mætt:
Fleiri veiðidagar
í Elliðaánum
STJÓRNSÝSLA Nýjar siðareglur
starfsfólks Stjórnarráðs Íslands
voru kynntar í gær. Þar er meðal
annars tekið á vinnubrögðum,
samskiptum á vinnustað og við
fjölmiðla, hagsmunatengslum og
almennri háttsemi. Ekki liggja
nein refsiákvæði við brotum á
reglunum, en þau geta leitt til
áminningar.
Athygli vekur að sérstaklega
er talað um kaup á vændi og að
starfsmaður Stjórnarráðs rýri
ekki trúverðugleika ráðuneytis
síns með ámælisverðri fram-
komu, skeytingarleysi um lög
eða virðingarleysi við mannhelgi
og mannréttindi, svo sem með
kaupum á vændi. - sv
Nýjar siðareglur stjórnarráðs:
Nýtt ákvæði
um vændiskaup
KÍNA Chen Guangcheng, kínverski
andófsmaðurinn sem strauk úr
stofufangelsi í síðustu viku, hefur
fengið boð um styrk til námsdval-
ar í Bandaríkjunum. Fjölskylda
hans getur dvalið hjá honum.
Þar með myndi deila Kínverja
og Bandaríkjamanna um afdrif
Chens leysast.
Chen dvaldi í sex daga í sendi-
ráði Bandaríkjanna eftir að hann
flúði úr stofufangelsinu, en fór
þaðan á miðvikudag á sjúkrahús í
Peking í fylgd sendiherra Banda-
ríkjanna. - gb
Lausn í sjónmáli:
Chen í nám til
Bandaríkjanna
MENNINGARMÁL Áhugahópur sem
safnar nú fyrir flygli til að
koma fyrir í menningarsaln-
um Hjálma kletti í Menntaskóla
Borgarfjarðar hyggst grípa til
óhefðbundinnar aðferðar til að
fá styrktaraðila til liðs við verk-
efnið.
Í bréfi sem hópurinn sendir til
fyrirtækja, félaga og stofnana
segir að kaupa eigi Yamaha-flyg-
il sem kostar 8,8 milljónir króna
„með flutningi, endurstillingu,
ábreiðu og stillanlegum stól“.
Fram kemur að í átaki sem
hófst í desember með tónlistar-
flutningi hafi safnast 500 þúsund
krónur. Margar leiðir séu færar
til að styrkja söfnunina. „Ein
leiðin er að taka þátt í kaupum
á nótum. Hver og ein kostar 100
þúsund krónur. Þeir aðilar sem
kaupa nótu eða nótur fá afhent
skjöl fyrir, og fá nafn sitt skráð
sem styrktaraðila með gögnum
sem munu fylgja flyglinum,“
segja fulltrúar söfnunarátaksins
sem gengur undir heitinu Fjár-
festum í flygli.
- gar
Borgfirðingar safna fyrir 8,8 milljóna króna flygli í menningarsalinn Hjálmaklett:
Selja hverja nótu á 100 þúsund
FLYGILL Nöfn þeirra sem borga fyrir
hverja nótu í hljóðfærinu verða skráð á
sérstök skjöl segja forsvarsmenn verk-
efnisins Fjárfestum í flygli.
Segja upp samningi um kísil
Íslenska kísilfélagið og Tomahawk
Development hafa sagt upp samningi
sínum við Globe Speciality Metals um
byggingu kísilverksmiðju í Helguvík. Í
yfirlýsingu frá forstjóra fyrirtækjanna
segir að samningnum hafi verið rift
vegna vanefnda Globe Speciality
Metals. Verkefnið muni halda áfram.
VIÐSKIPTI
HEILBRIGÐISMÁL Þriðjungur Íslendinga hefur byrj-
að að reykja á aldrinum 15–19 ára, eru niðurstöður
könnunar á heilsu og líðan Íslendinga frá árinu 2007.
Um 44% þjóðarinnar hefur aldrei byrjað að reykja.
Í fréttabréfi landlæknis - Talnabrunni - er sagt
ljóst að hátt hlutfall þeirra sem byrjuðu að reykja á
aldrinum 15–19 ára er tilkomið að hluta vegna reyk-
ingavenja eftir miðja síðustu öld.
Rannsóknir síðustu áratuga í grunnskólum benda
til þess að tíðni reykinga íslenskra grunnskólabarna
fari sífellt minnkandi og því sýnir það sig að ef fólk
byrjar ekki að reykja fyrir 25 ára aldurinn þá eru
mjög litlar líkur á að það byrji nokkurn tíma.
Niðurstöðurnar staðfesta að rétt hafi verið að
beina forvarnarstarfi að ungu fólki.
Árlegar kannanir á reykingavenjum Íslendinga
benda til þess að tíðni reykinga meðal fullorð-
inna Íslendinga hafi farið ört minnkandi. Lækk-
andi tíðni reykinga er tilkomin vegna þess að stærri
og stærri hluti hvers árgangs kýs að byrja ekki en
einnig vegna þess að sífellt fleirum tekst að hætta að
reykja.
Könnunin náði til fólks á aldrinum 18–79 ára. - shá
Mjög fáir byrja að reykja eftir að 25 ára aldri er náð, sýnir ný könnun:
Þriðjungur þjóðarinnar hefur reykt
ÓSIÐUR Forvarnir ná bestum árangri sé þeim beint að aldurs-
hópnum 15-19 ára. NORDICPHOTOS/AFP
SPURNING DAGSINS
Ætlar þú að
breyta um lífsstíl?
Heilsulausnir henta einstaklingum
sem glíma við offitu, hjartasjúkdóma
og/eða sykursýki. Hefst 14. maí
Kynningarfundur 10. maí
kl. 17:30. Allir velkomnir
Að námskeiðinu standa m.a. læknar,
hjúkrunarfræðingar, sjúkraþjálfarar,
næringarfræðingur, íþróttafræðingar
og sálfræðingar.
DÓMSMÁL Starfshópur um Guð-
mundar- og Geirfinnsmál, sem
innanríkisráðherra skipaði í októ-
ber í fyrra, hefur skilað ráðu-
neytinu áfangaskýrslu um stöðu
verkefnisins og tilhögun á áfram-
haldandi vinnu sinni.
Hópurinn mun skila annarri
áfangaskýrslu til ráðuneytisins
fyrir 1. nóvember. Upphaflega var
gert ráð fyrir því að hópurinn lyki
vinnu sinni nú í apríl. Hópurinn
hefur þegar aflað gagna frá opin-
berum stofnunum og brugðist við
erindum frá einstaklingum sem
hafa sett sig í samband við hann.
Þá hefur hópurinn tekið yfir tutt-
ugu viðtöl og áformar að taka fleiri
viðtöl á næstunni. - þeb
Guðmundar- og Geirfinnsmál:
Starfshópur fær
enn lengri tíma
Á svæðinu eru því
miklir hagsmunir
tengdir náttúruvernd og
er mikilvægt að eitthvert
sýnilegt eftirlit sé á svæðinu.
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON
YFIRLÖGREGLUÞJÓNN