Fréttablaðið - 05.05.2012, Síða 49

Fréttablaðið - 05.05.2012, Síða 49
LAUGARDAGUR 5. maí 2012 5 Forstöðumaður tölvu- og upplýsingatæknideildar Nánari upplýsingar um starfið veita Sigurður E. Sigurðsson, framkvæmdastjóri lækninga (ses@fsa.is) í síma 463 0100 eða 860 0569 og Torfi Markússon (torfi@intellecta.is), ráðgjafi hjá Intellecta í síma 511 1225. Umsóknarfrestur er til og með 14. mai nk. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is. Farið verður með allar fyrirspurnir sem trúnaðarmál. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Sjúkrahúsið á Akureyri veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu, þar sem áhersla er lögð á bráðaþjónustu og helstu sérgreinameðferðir. Það er annað tveggja sérgreina- sjúkrahúsa landsins og gegnir lykilhlutverki í almannavörnum. Sjúkrahúsið er kennslusjúkrahús og þekkingarstofnun sem leggur metnað sinn í kennslu og rannsóknir í heilbrigðisvísindum. Sjúkrahúsið á Akureyri hefur sett sér að markmið til ársins 2017 að verða miðstöð sérhæfðrar heilbrigðisþjónustu á Norður- og Austurlandi og fá alþjóðlega vottun á starfsemi sína. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu sjúkrahússins www.fsa.is Starfssvið Ber ábyrgð á stjórnun tölvu- og upplýsingatæknideildar Mótar framtíðarstefnu í tölvu- og upplýsingatæknimálum Samskipti og samningagerð við birgja Samskipti við aðrar stofnanir í samræmi við framtíðarsýn og stefnu sjúkrahússins Hefur frumkvæði í stefnumótun, þróun og áætlanagerð í verkefnum sem varða tölvu- og upplýsingatæknimál Sinnir öðrum verkefnum í samráði við næstu stjórnendur Menntunar- og hæfniskröfur Háskólamenntun í tölvunarfræðum eða skyldum greinum Farsæl reynsla af stjórnun og samskiptum við starfsmenn og stjórnendur er skilyrði Stjórnunarnám er æskilegt Frumkvæði og sveigjanleiki Sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfileikar Góð íslensku- og enskukunnátta ásamt hæfileika til að tjá sig í ræðu og riti Sjúkrahúsið á Akureyri auglýsir stöðu forstöðumanns tölvu- og upplýsingatæknideildar lausa til umsóknar. Á sjúkrahúsinu starfa um 600 manns og á tölvu- og upplýsingatæknideild starfa 5 manns í fjölbreyttu og krefjandi starfsumhverfi. Starfsemi deildarinnar felst meðal annars í almennri þjónustu við notendur, sem og sérhæfð verkefni við tölvu- og upplýsingakerfi sjúkrahússins. Forstöðumaður tölvu- og upplýsingatæknideildar heyrir undir framkvæmdastjóra lækninga. ráðgjöf ráðningar rannsóknir Intellecta, Síðumúla 5, 108 Reykjavík, sími 511 1225 Veiting starfsins er til 5 ára í samræmi við stefnu sjúkrahússins um ráðningu yfirmanna. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins. Vinnustaðurinn er reyklaus. Sjúkrahúsið á Akureyri Öryggi - Samvinna - Framsækni Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.eimskip.is F ít o n / S ÍA Hjá Eimskip starfar fjölbreyttur og skemmtilegur hópur öflugra starfsmanna. Við leitum að einstaklingum til að slást í þann hóp og takast á við spennandi störf. Gott tækifæri hjá traustu fyrirtæki Vöruhúsaþjónusta Störf við vöruhúsaþjónustu eru í Dreifingarmiðstöð Eimskips Flytjanda og Vöruhóteli Eimskips. Helstu verkefni eru frágangur og tiltekt pantana eða sendinga fyrir viðskiptavini Eimskips. Lyftararéttindi eru æskileg en þó ekki skilyrði fyrir ráðningu. Vinnutími er almennt frá kl. 08:00–16:00/ 17:00 alla virka daga. Eingöngu er um framtíðarstörf að ræða. Akstur Framtíðar- og sumarstörf við akstur á dráttarbílum og flutningabílum. Unnið er á vöktum. Meirapróf (C) er skilyrði fyrir ráðningu og réttindi til að aka með tengivagn (CE) eru æskileg. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af akstri flutningabíla á þjóðvegum. Fiskmóttaka í Dreifingarmiðstöð Eimskips Flytjanda – Næturvakt Starfsmaður fiskmóttöku í Dreifingarmiðstöð er ábyrgur fyrir flokkun vöru og dreifingu innan Dreifingarmiðstöðvar, auk aksturs á fiskmarkað. Starfið krefst vandaðra og sjálfstæðra vinnubragða. Meirapróf (CE) og lyftararéttindi (J) er skilyrði fyrir ráðningu. Eimskip er leiðandi flutningafyrirtæki sem veitir alhliða flutningaþjónustu, byggða á áreiðanlegu og skilvirku framleiðslukerfi á Norður-Atlantshafi og alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun, með framúrskarandi þjónustu að leiðarljósi. Eimskip skapar tækifæri fyrir starfsmenn til að dafna og vaxa í starfi í góðu og heilbrigðu starfsumhverfi með grunngildi félagsins að leiðarljósi: Árangur – Samstarf – Traust. Bryti eða matreiðslumaður á Vestmannaeyjaferjuna Herjólf Eimskip vill ráða bryta eða matreiðslumann á Vestmannaeyjaferjuna Herjólf. Helstu verkefni eru matreiðsla fyrir áhöfn skipsins og þjónusta við farþega. Unnið er á tvískiptum vöktum. Sveinspróf í matreiðslu eða rík starfsreynsla af matreiðslu fyrir stóra hópa er skilyrði fyrir ráðningu. Nánari upplýsingar um störfin veitir Sigríður Guðmundsdóttir í síma 525 7364 eða á srr@eimskip.is. Umsóknarfrestur fyrir öll störfin er til 14. maí 2012. Umsóknir óskast fylltar út á www.eimskip.is undir störf í boði. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál. Hreint sakavottorð er skilyrði fyrir ráðningu hjá Eimskip. Við leitum að fólki sem býr yfir:
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.