Fréttablaðið - 05.05.2012, Side 76
5. maí 2012 LAUGARDAGUR40
L
ærdómurinn gengur
fyrir en ég get ekk-
ert sleppt því að sinna
hestunum. Þeir þurfa
sína hreyfingu daglega.
Ég ætla líka að keppa
á Reykjavíkurmeistaramótinu,“
segir Erla Katrín þegar hún mætir
í hesthúsið um nónbil á miðviku-
dag. Kveðst hafa verið að lesa latínu
framan af degi, prófið sé á morgun.
„Svo eru spænskan og sagan strax
eftir helgi.“
Hestarnir taka fagnandi á móti
henni og teygja flipana í átt til henn-
ar, eiga jafnvel von á góðgæti í formi
grasköggla, að minnsta kosti gælum.
Einn gæðingurinn heitir einmitt
Flipi, gullfallegur stóðhestur sem
hún kveðst vera að rækta undan. Á
honum varð hún Íslandsmeistari í
fimmgangi á síðasta ári í flokki ung-
menna. Gustur, Sólon, Þökk, Fleyg-
ur og Dropi eru líka fríð sýnum.
Ekki vill Erla Katrín gera upp á
milli hestanna sinna. „Það er eng-
inn uppáhalds,“ segir hún aðspurð.
„Ég held upp á öll hrossin mín því
þau eru ólík og hafa hvert sinn pers-
ónuleika. Ég held að Flipi frá Litlu-
Sandvík sé besti hesturinn sem ég
er með. Ég er búin að vinna mikið
í honum, ætla að keppa á honum
í fjórgangi á morgun og fara svo
með hann í úrtöku fyrir landsmót-
ið. Líka Þökk. Hún er 1. verðlauna-
hryssa undan Unni frá Velli og Þristi
frá Feti, úr okkar ræktun og það er
gaman að keppa á hesti sem ég hef
fylgst með frá upphafi.“
Í stúkusæti
Hesthúsið er í Víðidalnum. Það er
líflegt í dalnum enda Reykjavíkur-
meistaramótið að hefjast og margir
á ferðinni. Jón Guðlaugsson, faðir
Erlu Katrínar, er að fylgjast með
mótinu en móðir hennar, Katrín
Pétursdóttir, er „á kústinum“ eins
og hún kallar það. Gólfið í hesthús-
inu er líka allt að því gljáandi.
Þrír hestar í húsinu eru í eigu
kærastans hennar Erlu Katrín-
ar, Jóns Herkovic sem er ættaður
frá Vatnsleysu í Skagafirði. Þau
skötuhjúin hittust á landsmótinu
á Vindheimamelum síðasta sumar
þannig að hestarnir leiddu þau
saman.
Eftir að hafa heilsað upp á gæð-
ingana fetum við Erla Katrín okkur
upp hringstiga og komum okkur
fyrir í vistlegri kaffistofu á efri
hæðinni til að spjalla. Þaðan er
flott útsýni yfir keppnisvöllinn.
Hún getur þannig verið í stúku-
sæti á landsmótinu í sumar þegar
hún verður ekki í brautinni sjálf.
Hún er nítján ára en verður tvítug
meðan á landsmótinu stendur. Er í
miðjum stúdentsprófum frá Versl-
unarskólanum nú meðan Reykjavík-
urmeistaramótið fer fram, en sinnir
hvoru tveggja með sóma. Útskriftin
úr Versló verður svo í lok maí, akk-
úrat þegar úrtökumótið fyrir lands-
mótið fer fram. Svona er vegurinn
varðaður og alltaf koma hestarnir
við sögu.
Fékk Kleinu fyrst
Erla Katrín kveðst ekki muna eftir
sér öðru vísi en innan um hesta.
„Amma átti hesta og móðursystir
mín, Arndís Erla Pétursdóttir er
í hrossarækt, ég byrjaði að keppa
á hesti frá henni sem hét Röðull
þegar ég var 11 til 12 ára,“ segir
hún með bros á vör, en hvenær
skyldi hún hafa eignast sinn fyrsta
hest? „Þegar ég var átta ára. Það er
hryssan Kleina sem er gott barna-
hross. Ég kynntist henni þegar ég
var í Reiðskóla Reykjavíkur og þar
keyptum við hana. Hún er ein af
ræktunarhryssunum mínum í dag.“
Það kemur í ljós við eftirgrennsl-
an að Erla Katrín hefur stundað
ræktun í fimm ár með Arndísi Erlu
frænku sinni á Velli við Hvolsvöll og
á Velli hafa Erla Katrín og kærast-
inn verið með 23 hross á húsi í vetur
sem þau hafa hugsað um og hreyft á
hverjum degi. Þessi níu sem nú eru
í Víðidalnum eru bara sýnishorn.
En sagðist hún ekki vera í Versló?
„Jú, við Jón erum bæði í fjarnámi
og völdum Verslunarskólann af því
hann er með svo marga góða fjar-
námskúrsa í boði,“ útskýrir hún.
En hvernig fer það saman að sinna
stóru hestabúi og vera í skóla? „Það
gengur fínt. Ég útskrifast vonandi
núna. Hef bara reynt að vinna vel.“
Hún segir hirðingu hrossanna
taka um tíu tíma á dag og tilgátu um
að tamningarnar auki henni sjálfri
aga brosir hún og svarar. „Það gæti
verið.“ Hún vill lítið gefa upp um
framtíðaráformin. „Ég hugsa að ég
haldi eitthvað áfram í skóla. Ætla
bara að klára þetta fyrst.“
Erla Katrín segir heilmikið um
að vera í kringum hestamennsk-
una enda mæti hún á flestar sýn-
ingar og mót og sumarhelgarnar
séu flestar fráteknar fyrir slíka við-
burði, ýmist í Reykjavík, á Selfossi
eða á Gaddstaðaflötum. Hún hefur
valið að keppa fyrir Fák en er líka í
hestamannafélaginu Geysi.
Um síðustu helgi voru þær
frænkur á Velli með ræktunarbús-
sýningu í Ölfushöllinni. „Við vorum
með þrjár hryssur undan Unni frá
Velli og hryssu og stóðhest undan
Smellu frá Hafnarfirði,“ segir Erla
Katrín. „Það eru mörg falleg hross
sem við erum að rækta og stór-
ir árgangar að komast á tamning-
araldur. Svo fæ ég fjögur folöld í
sumar,“ bætir hún við með blik í
auga.
Órög á bak ótemjum
Frumtamningum á eigin hross-
um kveðst Erla Katrín hafa sinnt á
seinni árum en hún hafi byrjað að
gera hross bandvön þegar hún var
um tólf ára aldurinn. Hún er ekk-
ert rög við að fara á bak ótemjum.
„Þetta eru allt voða róleg trippi, ég
er búin að umgangast þau þannig
að þegar kemur að því fara á bak
er það algerlega eðlilegt. Ræktun-
in hjá okkur miðast við að ná fram
góðu lundarfari, rýmd í gangi og
fegurð í reið. Viljinn skiptir líka
miklu máli.“
Góðar reiðleiðir liggja allt í kring
um Völl að sögn Erlu Katrínar.
„Heklubrautin er rétt við hliðina
á okkur, Fljótshlíðin, Fjallabak og
margar fallegar leiðir,“ lýsir hún og
kveðst í fyrra hafa farið í fjögurra
daga útreiðartúr um Landeyjar og
Fljótshlíð. Hefur hún aldrei lent í
neinu slarki í hestaferðum? „Nei,
það er auðvitað misjafnt veður en
okkur hefur alltaf gengið vel. Við
vorum reyndar nokkrir krakkar
einu sinni í hestaferð með sjötíu
hesta í óbyggðum hér sunnanlands
og villtumst. Ekki einu sinni heldur
þrisvar. Reksturinn slitnaði sund-
ur þannig að við vorum á tímabili
með tvo. En þetta bjargaðist allt og
okkur tókst að smala öllum saman
á endanum svo þetta varð bara
gaman, svona eftir á.“
Þegar allt gengur upp
Greinilegt er að Erla Katrín gerir
sér far um að kynnast öllum hlið-
um hestamennskunnar en hver
skyldi henni þykja skemmtilegust?
Hún tekur sér góðan tíma áður en
hún svarar: „Ég hugsa mér finnist
skemmtilegast að ríða út á góðum
og vel þjálfuðum hesti.“ Bætir
svo við eftir andartaksþögn: „En
þegar allt gengur upp í keppni fæ
ég auðvitað heilmikið út úr því.“
Þótt hún sé komin ótrúlega
langt í hestamennskunni, miðað
við aldur, þá hefur velgengnin
ekki stigið henni til höfuðs. Hún
virðist í eðli sínu hlédræg og
afskaplega yfirveguð. Spurð hvort
hún eigi sér einhverja konu að fyr-
irmynd í hestamennskunni svar-
ar hún. „Ég var í reiðskóla nokkur
sumur hjá Rósmary Þorleifsson og
hún hafði áhrif á mig. Ég lít líka
til Lenu Zielinski, hún hefur verið
að keppa á systur Þakkar, Njálu
frá Velli en Arndís frænka byrj-
aði náttúrlega að kenna mér og er
mín stóra fyrirmynd.“
Ég held upp á öll hrossin mín því
þau eru ólík og hafa hvert sinn
persónuleika.
Hestarnir koma alltaf við sögu
Erla Katrín Jónsdóttur er önnum kafin í stúdentsprófum þessa dagana en lætur það ekki aftra sér frá því að keppa á Reykjavík-
urmeistaramóti Fáks, meðal annars á verðlaunahryssu úr eigin ræktun. Gunnþóra Gunnarsdóttir heimsótti hana í hesthúsið.
VINIR Vilhelm ljósmyndari valdi Fleyg frá Vorsabæ til að stilla sér upp með Erlu Katrínu því háralitur þeirra er svo líkur.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Á VELLINUM Komin úr latínuprófinu og út á völlinn í fullum skrúða á Flipa frá Litlu-Sandvík.
Það sópar að þeim. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Málþing um raflínur og strengi
Iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra hafa skipað nefnd er
móta skal stefnu um lagningu raflína í jörð í samræmi við
þingsályktun Alþingis í þskj. 748 frá 1. febrúar 2012.
Á undanförnum árum hefur orkuframleiðsla á Íslandi aukist
mjög og jafnframt gagnrýni á neikvæð umhverfisáhrif hennar.
Einn þáttur þeirra áhrifa er sjónmengun af völdum háspennulí-
na og hefur sú krafa orðið háværari að jarðstrengir séu nýttir í
stað loftlína.
Mikilvægt er að fyrir liggi stefnumörkun um með hvaða hætti
og á hvaða forsendum skuli stefnt að lagningu raflína í jörð
og til hvaða þátta skuli sérstaklega taka tillit í þeim efnum.
Nefndin boðar til opins málfundar um málefnið þann 11. maí
næstkomandi.
Fundurinn fer fram í stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands
11. maí næstkomandi og stendur frá kl. 13.00-15.15.
Dagskrá
• 13.00-13.05 Setning. Þingsályktun. Nefnd um stefnumörkun.
• 13.05-13.25 Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets:
Jarðstrengir – flutningsgjaldskrá og umhverfi.
• 13.25-13.45 Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmda
stjóri Landverndar:
Mikilvægi umhverfisþátta í stefnumörkun um jarðstrengi.
• 13.45-14.05 Daði Már Kristófersson, dósent við Háskóla
Íslands: Mat á umhverfiskostnaði raflínulagna.
• 14.05-14.15 Hlé
• 14.15-14.35 Stefán Thors, forstjóri Skipulagstofnunar,
Raflínur, skipulag, mat á umhverfisáhrifum
• 14.35-15.15 Umræður
Fundarstjóri: Róbert H. Haraldsson, prófessor í heimspeki við
Háskóla Íslands
Aðgangur er ókeypis. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.