Fréttablaðið - 05.05.2012, Síða 95
LAUGARDAGUR 5. maí 2012 59
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 05. maí 2012
➜ Tónleikar
14.00 Kvennakórinn Senjóríturnar
heldur sína árlegu vortónleika í Grensás-
kirkju.
16.00 Karlakórinn Fóstbræður heldur
vortónleika í Langholtskirkju. Tenór-
söngvarinn Gissur Páll Gissurarson kemur
fram með þeim. Miðaverð er kr. 3.000.
16.00 Álafosskórinn í Mosfellsbæ
heldur vortónleika í Safnaðarheimili
Lágafellskirkju, Þverholti 3, Mosfellsbæ.
Á efnisskránni eru létt og skemmtileg lög
úr ýmsum áttum. Miðaverð er kr. 1.500.
➜ Listasmiðja
13.00 Guðrún Vera Hjartardóttir mynd-
listarmaður og sýningarstjóri verður með
listasmiðju fyrir börn á aldrinum 6 til 12
ára í Gerðarsafni. Smiðjan er í tengslum við
Kjarval sýninguna Í teikningunni er hugs-
unin um teikninguna. Þátttaka er ókeypis.
➜ Sýningar
16.00 Ný sýning á verkum myndhöggv-
arans Ásmundar Sveinssonar verður
opnuð í Ásmundarsafni við Sigtún.
16.00 Hildur systrafélag kynnir sýn-
inguna Nánd/Close sem verður opnuð
í Menningarverkefninu Hlöðunni í Vog-
unum. Sýningin er samstarfsverkefni
systranna Gunnhildar og Brynhildar
Þórðardætra. Aðgangur er ókeypis.
➜ Umræður
11.30 Guðni A. Jóhannesson orkumála-
stjóri og Huld Arinbjarnardóttir varaþing-
maður verða gestir á laugardagsspjalli
Framsóknar að Hverfisgötu 33. Þau munu
ræða um Rammaáætlun um orkunýtingu,
undirbúning og vinnslu hennar.
14.00 Heimspekikaffihúsið verður á
Horninu, Hafnarstræti 15. Allir sem hafa
gaman af rökræðu eru velkomnir.
➜ Uppákomur
11.00 Kristín Helga Gunnarsdóttir leiðir
göngu um Garðabæ þar sem farið verður
um sögusvið bókanna um Binnu og Móa
hrekkjusvín. Bæði börn og fullorðnir
geta tekið þátt og haft gaman af. Lagt
verður af stað frá Bókasafni Garðabæjar
á Garðatorgi.
13.30 Í tilefni af Harmonikudeginum
sem er í dag mun Félag harmonikuunn-
enda í Reykjavík leika víða á höfuðborg-
arsvæðinu, þar á meðal í Kolaportinu,
Húsgagnahöllinni og Mjóddinni.
➜ Tónlist
15.00 Tónstofa Valgerðar býður upp á
tónleika í Hörpuhorninu á annarri hæð
Hörpu, við hliðina á Eldborgarsalnum.
Bjöllukórinn ásamt einleikurum og
söngvurum flytur íslensk og erlend þjóð-
lög, dægurlög og klassíska tónlist.
16.00 Mynd- og tónverkið Quadrant og
lagaflokkurinn Strengur verða flutt á sam-
eiginlegum tónleikum í Norræna húsinu.
17.00 Kór Grafarvogskirkju, ásamt
Stúlknakór Reykjavíkur, flytur tónverkið
Carmina Burana eftir Carl Orff í Grafar-
vogskirkju. Miðaverð er kr. 3.000.
21.00 Hljómsveitin Retrobot heldur tón-
leika á neðri hæð Bar 11 en hún sigraði
Músíktilraunir á dögunum. Aðgangur er
ókeypis.
21.00 Blússveit Þollýjar, Síðasti Séns
og Cynic Guru stíga á stokk á Dubliner.
Allur ágóði tónleikanna rennur til
Bláa naglans, krabbameinsátaks karla.
Aðgangseyrir er kr. 1.500.
22.00 Klaufarnir spila á hlöðuballi á
Spot, Kópavogi.
22.00 Megakukl spilar á Café Rosen-
berg.
Sunnudagur 06. maí 2012
➜ Tónleikar
17.00 Reykjalundarkórinn heldur
tónleika í fríkirkjunni í Reykjavík ásamt
kvennakór háskólans í Manitoba,
Kanada. Fjölbreytt og nýstárleg efnisskrá.
Aðgangseyrir er kr. 2.000 en frítt fyrir
börn yngri en 12 ára.
➜ Sýningar
11.00 Ljósmyndasýningin Fuglablik
í Grasagarðinum opnar í Café Flóru í
samstarfi við Fuglavernd. Í anddyri garð-
skálans verður einnig afhjúpaður nýupp-
færður upplýsingaveggur um fuglategund-
irnar í Grasagarðinum. Aðgangur ókeypis.
13.00 Handverkssýning eldri borgara í
Kópavogi verður í Gjábakka, Gullsmára
og Boðanum. Fjölbreytt handverk hinna
listhögu eldri borgara í Kópavogi.
15.00 Myndasögusýningin Manga opnar
á Reykjavíkurtorgi Borgarbókasafns
Reykjavíkur, Tryggvagötu 15.
➜ Umræður
15.00 Þriðji fundur samræðudagskrár
sýningarinnar Núningur/Friction fer fram í
Listasafni ASÍ. Ingirafn Steinarsson, Katrín
Eyjólfsdóttir og Unnar Örn J. Auðarson
halda erindi og stjórna umræðum.
➜ Kvikmyndir
22.00 Kvikmyndin The Blob verður sýnd
í Þynnkubíói á Prikinu. Popp í boði.
➜ Uppákomur
10.00 Vinafélag Gljúfrasteins og Ferða-
félag Íslands bjóða upp á gönguferð um
æskuslóðir Halldórs Laxness í Mosfells-
dalnum. Mæting við Gljúfrastein.
13.00 Hist verður við gömlu þvottalaug-
arnar í Laugardalnum og farið í hlátur-
göngu um dalinn í tilefni af alþjóðlegum
hláturdegi sem haldinn er í dag.
17.00 Kosningavaka verður í hátíðarsal
Háskóla Íslands vegna forsetakosning-
anna í Frakklandi. Úrslit kosninganna
verða sýnd í beinni útsendingu með
íslenskum skýringum Egils Helgasonar.
➜ Dansleikir
20.00 Dansleikur Félags eldri borgara í
Reykjavík verður haldinn að Stangarhyl 4.
Hljómsveitin Klassík leikur létta danstón-
list til klukkan 23.00. Aðgangseyrir er kr.
1.500 en kr. 1.300 fyrir félagsmenn FEB.
➜ Málþing
13.30 Í tilefni af lokadegi vorsýningar
Listaháskóla Íslands efna útskriftarnem-
endur og kennarar myndlistadeildar til
málhófs í fjölnotasal Hafnarhúss Lista-
safns Reykajvíkur. Allir velkomnir.
➜ Tónlist
12.30 Óperukórinn í Reykjavík, undir
stjórn Garðars Cortes, heldur tónleika
í Vinaminni, safnaðarheimili Akranes-
kirkju, í samvinnu við Kór Akraneskirkju.
Aðgangur er ókeypis.
15.00 Harmonikuveisla Félags harmon-
ikuunnenda í Reykjavík verður í Iðnó. Þar
koma meðal annars fram Harmoniku-
kvintett Reykjavíkur, gestur frá Skotlandi
og Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir.
16.00 Óperukórinn í Reykjavík, undir
stjórn Garðars Cortes, heldur tónleika í
Borgarneskirkju. Aðgangur er ókeypis.
16.00 Andrea Jónsdóttir leikur klassískt
rokk af plötum á Ob-La-Dí-Ob-La-Da,
Frakkastíg 8. Aðgangur er ókeypis.
20.00 Blásaratónlist verður allsráðandi
á vortónleikum Elektra Ensemble sem
verða haldnir á Kjarvalsstöðum. Miðaverð
á tónleikana er kr. 2.000/1.500.
➜ Leiðsögn
14.00 Boðið verður upp á barnaleið-
sögn í Þjóðminjasafni Íslands. Helga
Einarsdóttir safnkennari mun ganga með
börnin í gegnum grunnsýningu Þjóð-
minjasafnsins, Þjóð verður til - menning
og samfélag í 1200 ár.
15.00 Klara Þórhallsdóttir, verkefnastjóri
við Listasafn Reykjavíkur, leiðir gesti um
sýningu Antoni Tápies á Kjarvalsstöðum.
➜ Listamannaspjall
15.00 Hrafnkell Sigurðsson og Ólöf
K. Sigurðardóttir ræða við gesti um
sýningu Hrafnkels, Hafnarborgina, sem
nú stendur yfir í aðalsal Hafnarborgar,
Strandgötu 34.
Pfaff • Grensásvegi 13 • Sími 414 0400 • www.pfaff.is • facebook.com/pfaff.is
20% afsláttur
af öllum vörum!
Við erum í hátíðarskapi og veitum 20% afslátt af öllum
vörum í verslun okkar föstudag og laugardag. Afsláttur af
saumavélum, ljósum, smáraftækjum, heilsuvörum,
heyrnartólum o.fl.
Sýning á antík saumavélum
Pfaff á landsins mesta úrval af gömlum saumavélum
og verða þær til sýnis í versluninni.
Verið velkomin!
HS-140C
Verð kr. 169.900
HS-140M
Verð kr. 69.900
Afmæ
listil
boð:
135.9
00 kr
.
Afmæ
listil
boð:
55.90
0 kr.
Afmælis
vélar
frá Husq
varna
ÁLFASALAN
2012
Styrkjum börn og
fjölskyldur sem fljást
vegna áfengis- og
vímefnaneyslu