Fréttablaðið - 05.05.2012, Page 104
5. maí 2012 LAUGARDAGUR68
sport@frettabladid.is
ÚRSLITALEIKUR ENSKU BIKARKEPPNINNAR fer fram klukkan 16.15 í dag en þá
mætast Liverpool og Chelsea. Liverpool er þegar búið að vinna enska deildarbikarinn og sigur í
dag fer langt að græða sár stuðningsmanna eftir hörmulegt gengi í deildinni. Þetta er fyrri úrslita-
leikur Chelsea í maí en liðið er einnig í úrslitum Meistaradeildarinnar.
FÓTBOLTI KR á titil að verja og mun
verja hann samkvæmt spá íþrótta-
fréttamanna Fréttablaðsins og
Vísis. Tititlvörn KR hefst á sunnu-
dag gegn Stjörnunni sem einnig er
spáð góðu gengi.
Sex stigum munaði á liðunum í
kosningunni og nokkuð er í Fram,
Stjörnuna og ÍA sem eru öll með
svipað mörg stig.
5. sæti: ÍA
Það verður enginn nýliðabragur
á Akurnesingum sem eru mætt-
ir aftur í deild þeirra bestu eftir
fjögurra ára fjarveru.
Liðið er vel mannað með Jóhann-
es Karl Guðjónsson fremstan í
flokki. Ármann Smári Björnsson
kom einnig frá Englandi, liðið er
með sterka útlendinga og svo er
spurning hvað Garðar Gunnlaugs-
son gerir.
„Þeir munu koma af gríðarleg-
um krafti inn í deildina. Það er í
þeirra eðli. Jói Kalli mun gefa lið-
inu mikið. Skagaliðið er gríðarlega
spennandi og ef það stendur undir
væntingum verður það í efri hlut-
anum,“ sagði Willum Þór Þórsson,
álitsgjafi Fréttablaðsins.
„Þeir eru með marga sterka
menn sem munu klárlega láta
að sér kveða. Þar á meðal Gary
Martin og Mark Doninger. Gary
er ótrúlegur og hleypur á við þrjá
menn. Hann er líka með risavið-
horf eins og fleiri í liðinu. Þeir eru
brattir. Kári er leiðtogi og afar
vanmetinn að mínu mati. Hann
vill sanna sitt gildi og það verð-
ur ekki auðvelt að koma boltanum
yfir hann og Ármann Smára. Ef
Garðar Gunnlaugs hrekkur í gír-
inn gæti þetta lið gert ýmislegt.
Garðar er X-faktorinn þeirra.“
4. sæti: Stjarnan
Kjarninn í Stjörnuliðinu er sterk-
ur og hefur verið lengi saman.
Liðið er mjög öflugt með frábæran
framherja. Það er nú eða aldrei hjá
þeim að gera alvöru atlögu að titl-
inum enda gæti kvarnast úr hópn-
um eftir sumarið.
„Stjarnan er með hópinn og leik-
mennina til þess að berjast um titil.
Það er komin tiltrú í hópinn. Gæðin
eru til staðar og verður fróðlegt að
sjá hvort þeir nái upp stemning-
unni og geri alvöru atlögu að titl-
inum,“ sagði Willum.
„Þessi hópur hefur náð vel
saman og liðsheildin frábær. Hefur
verið lengi saman og þjálfarinn
þekkir liðið. Ef stöðugleiki kemst
í varnarleikinn, Garðar verður í
stuði og Halldór Orri með bros á
vör þá geta Stjörnumenn þetta.“
3. sæti: Fram
Framarar eru vetrarmeistarar
eftir að hafa tapað aðeins einum
leik. Liðið nýtur góðs af því að
halda sterkum útlendingum og er
til alls líklegt.
„Ef ég ætti að spá Íslandsmeist-
urum núna þá myndi ég veðja á
Fram sem og að annaðhvort Ste-
ven Lennon eða Sam Hewson verði
maður mótsins. Það eru mikil gæði
þar á ferðinni. Þjálfarinn er búinn
að fá að byggja þetta upp eftir sínu
nefi hægt og bítandi. Byrjunarliðið
er vel saman sett og allir þekkja sín
hlutverk. Það eru vanmetnir menn
þarna eins og Löwing sem spilar
alla varnarlínuna eins og ekkert sé.
Kristján Hauks er frábær og bak-
vörðurinn magnaður. Markvörður-
inn búinn að sanna sig og er góður,“
sagði Willum um Fram.
2. sæti: FH
FH stendur á ákveðnum tímamót-
um. Lykilmenn undanfarinna ára
komnir á aldur og annað hvort
hættir eða farnir annað. Fyrirlið-
inn Matthías Vilhjálmsson hvarf
svo á braut fyrir skömmu.
„Mér líst vel á hópinn, þjálfar-
ann og félagið. FH þekkir þetta
allt og kann þetta. Liðið hefur
samt ekki verið að finna taktinn og
þeir eru fyrstir til að viðurkenna
það. Ég held að styrkleiki þeirra
liggi einmitt í því,“ sagði Willum.
„Ég hef trú á því að líkt og
áður muni liðið vinna sig vel inn
í mótið og verða síðan illviðráð-
anlegt. Auðvitað mun muna um
Matta og Tommy Nielsen. Það er
ekki hægt að leysa þetta. Það er
hægt að finna svipuð gæði en þú
finnur ekki svona menn sem rífa
liðið áfram. Það býr maður ekki til
á skömmum tíma. Þar missti FH
sterka leiðtoga og ég sé ekki alveg
hver á að taka þetta leiðtogahlut-
verk að sér. FH er á tímamótum
en hefur tækin og tólin til að vera
áfram á toppnum.“
1. sæti: KR
KR-liðið vann tvöfalt í fyrra og er
búið að fá tvo bikara til viðbótar
síðustu daga. Liðið er frábærlega
mannað, nældi í stórefnilega leik-
menn og er enn á ný besta liðið
fyrir mót.
„KR-ingar hafa verið tiltölulega
rólegir í vetur en koma upp rétt
fyrir mót og klára tvo titla. Gerðu
það fagmannlega. KR er með allt
til þess að verja titilinn,“ sagði
Willum Þór.
„Það er missir að Guðjóni en
Þorsteinn Már er ekkert ósvipaður
leikmaður. Kraftmikill og dugleg-
ur. Kjartan Henry fær tækifærið
á toppnum og mun skora 10 mörk
eða meira í sumar. Afar útsjónar-
samur og klókur leikmaður. Óskar
Örn líka kominn í gang og KR-liðið
er flott,“ sagði Willum og hrósaði
svo þjálfaranum Rúnari Kristins-
syni sem hann segir ekki hafa stig-
ið feilspor. henry@frettabladid.is
KR verður aftur Íslandsmeistari
Samkvæmt spá Fréttablaðsins og Vísis munu KR og FH bítast um Íslandsmeistaratitilinn í ár. Liðin fengu
langflest atkvæði í kosningu íþróttafréttamanna miðlanna. Fram, Stjarnan og ÍA gætu þó öll blandað sér í
meistarabaráttuna í ár. Álitsgjafi Fréttablaðsins, Willum Þór Þórsson, vill spá Frömurum titlinum.
FAGNA ÞEIR AFTUR NÆSTA HAUST? Íþróttafréttamenn Fréttablaðsins og Vísis spá því að það verði aftur sigurhátíð í Vesturbænum
í lok sumars. KR-ingar fagna hér titlinum eftir síðustu leiktíð. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Spá Fréttablaðsins
1. KR 139 stig
2. FH 133
3. Fram 106
4. Stjarnan 105
5. ÍA 103
6. Valur 84
7. ÍBV 71
8. Breiðablik 64
9. Grindavík 42
10. Fylkir 42
11. Keflavík 32
12. Selfoss 15
N1-deild kvenna:
Fram-Valur 22-23 (8-11, 19-19, 21-21)
Fram-kvenna - Mörk (skot): Stella Sigurðardóttir
8/2 (17/3), Anett Köbli 3 (4), Elísabet Gunnars-
dóttir 3/1 (5/1), Sigurbjörg Jóhannsdóttir 3 (7),
Hekla Rún Ámundadóttir 2 (2), Guðrún Þóra
Hálfdánsdóttir 1 (1), Ásta Birna Gunnarsdóttir 1
(3), Sunna Jónsdóttir 1 (3).
Varin skot: Guðrún Maríasdóttir 12 (35/2, 34%),
Hraðaupphlaup: 2 ( Hekla Rún Ámundadóttir 1,
Ásta Birna Gunnarsdóttir 1, )
Fiskuð víti: 4 ( Sigurbjörg, Ásta, Sunna, Steinunn)
Utan vallar: 8 mínútur.
Valur-kvenna - Mörk (skot): Þorgerður Anna
Atladóttir 9 (14), Anna Úrsúla Guðmundsdóttir
4 (5), Kristín Guðmundsdóttir 4 (6), Dagný
Skúladóttir 3 (3), Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 2/2
(3/2), Karólína Bærhenz Lárudóttir 1 (2).
Varin skot: Guðný Jenný Ásmundsdóttir 20 (41/2,
49%), Sunneva Einarsdóttir (1/1, 0%),
Hraðaupphlaup: 3 ( Anna, Dagný 2, )
Fiskuð víti: 3 (Þorgerður, Anna, Dagný)
Utan vallar: 10 mínútur.
ÚRSLIT
ÁLFASALAN
2012
HANDBOLTI Valur jafnaði einvígið
gegn Fram í úrslitum N1-deildar
kvenna í 1-1 í gær með 22-23 sigri
í framlengdum leik í gær.
Leikurinn var æsispennandi
allt til enda. Liðin héldust nánast
í hendur allan tímann og Krist-
ín Guðmundsdóttir tryggði Val
framlengingu.
Það var síðan Þorgerður Anna
Atladóttir sem tryggði Val sigur
undir lok framlengingar. Fram
fékk tækifæri til þess að jafna
en Guðný Jenný Ásmundsdóttir,
markvörður Vals, varði lokaskot-
ið og Valur fagnaði.
„Þetta var mjög mikilvægur
sigur og frábært að geta klárað
svona leik. Þær börðust vel en við
kláruðum þetta í framlenging-
unni og sýndum flottan karakt-
er. Þessi lið þekkjast gríðarlega
vel og þessir leikir eru bara eins
og skák, það snýst bara um að
verjast vel og sækja þegar það
gefst færi,“ sagði Anna Úrsúla
Guðmundsdóttir, leikmaður Vals
kampakát eftir leikinn. - kpt
Valur jafnaði gegn Fram:
Háspennuleik-
ur í Safamýri