Fréttablaðið - 10.05.2012, Side 32
FÓLK|TÍSKA
Bio Effect húðdropar frá íslenska fyrirtækinu Sif Cosmetics eru mest selda snyrtivaran um borð
í vélum þýska flugfélagsins Lufthansa.
Eiríkur Sigurðsson, upplýsingafulltrúi
hjá Sif Cosmetics, segir þetta góðan
árangur ekki síst í ljósi þess að tiltölulega
skammt sé síðan flugfélagið tók vöruna í
sölu. „Þetta er frábært þar sem droparnir
fóru í sölu hjá félaginu í febrúar.“
Eiríkur getur þess að dropunum hafi
sömuleiðis verið vel tekið af farþegum
erlendu flugfélaganna Swiss Air og KLM.
„Samkvæmt forsvarsmönnum Swiss Air
má þakka augljósum áhrifum af notkun
dropanna góða sölu en þeir innihalda
frumuvaka sem stuðla að endurnýjun
húðarinnar.“
Sif Cosmetics er með dreifingaraðila
fyrir vörur sínar í 42 löndum um allan
heim og bættist Tyrkland síðast við þau.
„Við höfum náð mjög góðum árangri og
þá sérstaklega í Evrópu,“ segir Eiríkur.
Vörur Sif Cosmetics hafa ekki síst
verið eftirsóttar hérlendis. Reyndar
segir Eiríkur vinsældir varanna vera
slíkar að hreinlega hafi gengið erfiðlega
að finna konur í prófanir sem hafi ekki
þegar reynt húðdropana á eigin skinni.
„Við höfum því gert sérfræðinga okkar út
af örkinni og erum núna í samstarfi við
starfsmannafélag Grunnskóla Vestmanna-
eyja um prófanir,“ segir hann. „Gerðar
voru grunnmælingar á ástandi húðar
24 kennara við skólann. Þeir fengu svo
afhenta vöru sem er í þróun hjá okkur
til að bera á andlitið í mánuð og að því
loknu verður árangurinn mældur.“ ■ rve
GÓÐAR VIÐTÖKUR
SELJAST VEL Húðdropar frá Sif Cosmetics hafa á tiltölulega skömmum tíma
orðið mest selda snyrtivaran hjá þýska flugfélaginu Lufthansa. Vörunum hefur
sömuleiðis verið afar vel tekið af flugfarþegum Swiss Air og KLM.
NÝSTÁRLEG TÆKNI
Sif Cosmetics þróar og
selur dagkrem, húð-
dropa og -næringu. Vör-
urnar innihalda frumu-
vaka sem stuðla að
endurnýjun húðarinnar.
Þeir eru framleiddir úr
byggfræjum í samstarfi
við ORF Líftækni.
Kjólar fyrir öll tækifæri
NÝ SENDING AF KJÓLUM Í ST. 36–48.
20% afsl.
af öllum vörum
Útskriftina, brúðkaupið eða vinnuna.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
Verslunin Belladonna á Facebook
Flottar
sumarvörur
fyrir
flottar konur
st. 40 – 58
NÝ SENDING
AF SUMARTÖSKUM
Verð 11.500 kr.
Kapphlaupið heldur áfram á Stöð 2 í kvöld
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS
Boltinn
á Xinu 977
– alla virka daga
kl. 11 - 12
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýs-
endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is s 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is s 512 5432
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir