Fréttablaðið - 10.05.2012, Page 44
10. maí 2012 FIMMTUDAGUR32
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
ÍRSKI TÓNLISTARMAÐURINN BONO á afmæli í dag.
„Tónlist getur breytt heiminum, því hún getur breytt fólki.“ 52
Á þessum degi árið 1994 tók Nelson Mandela við
völdum sem forseti Suður-Afríku. Einungis fjórum
árum fyrr var honum sleppt úr fangelsi í Suður-
Afríku, eftir að hafa verið pólitískur fangi í 27 ár.
Mandela leiddi baráttu gegn kynþáttaaðskilnaðar-
stefnunni í Suður-Afríku og var dæmdur ábyrgur
fyrir skemmdarverkum og fleiri afbrotum.
Meirihluta fangelsisvistarinnar var hann látinn
dúsa í litlum fangaklefa á Robben-eyju. Eftir að
Mandela var sleppt úr haldi árið 1990 fór hann
fyrir Afríska þjóðarráðinu í samningaviðræðum um
lýðræðislegar kosningar. Mandela bauð sig fram í
þeim kosningum og varð fyrsti lýðræðislega kjörni
forseti Suður-Afríku. Hann sat í embætti til ársins
1999.
Mandela hlaut Friðarverðlaun Nóbels árið 1993.
Hann hefur, eftir að hann lét af völdum, meðal annars
beitt sér í baráttunni gegn alnæmi. Í fangelsinu á
Robben-eyju var hann fangi númer 46664 en það
númer hefur hann einmitt notað í þeirri baráttu.
ÞETTA GERÐIST: 10. MAÍ 1994
Nelson Mandela verður forseti
„Viðtökurnar hafa verið framar okkar
björtustu vonum og við erum mjög
stoltar,“ segir Ingibjörg Péturs dóttir
iðjuþjálfi, sem ásamt Maríu Björk
Viðars dóttur kerfisfræðingi hefur
hannað og gefið út spilið Geymt en
ekki gleymt – Spil fyrir fólk með fortíð.
Spilið er einkum ætlað eldra fólki og
segir Ingibjörg það henta sérstaklega
fólki með minnisskerðingu, þótt fleiri
geti einnig haft af því ánægju.
Tildrögin að hönnun spilsins, sem
ætlað er að skerpa athygli, einbeit-
ingu og minni og vekja minningar sem
stuðla að bættum samskiptum á milli
þátttakenda og aðstandenda þeirra,
voru mikil reynsla Ingibjargar af starfi
með öldruðum og fólki með heilabilun.
„Svo veiktist ég sjálf, varð að hætta
að vinna og sat þá eftir með reynslu
sem ég gat ekki nýtt til neins,“ segir
Ingibjörg. „Ég gekk með hugmyndina
að spilinu í maganum í nokkurn tíma
og ákvað svo að láta slag standa með
hjálp vinkonu minnar, Maríu Bjarkar
Viðarsdóttur kerfisfræðings. Hún sá
um tæknilegu hliðina meðan ég sá um
útfærsluna á sjálfu spilinu. Ég hefði
aldrei getað gert þetta ein. Ég vissi af
fenginni reynslu að minnisskert fólk
hefur mjög gaman af að skoða myndir
og man oft vel eftir því sem gerðist
fyrir löngu síðan þótt það muni kannski
ekki hvað gerðist í gær.“
Spilið samanstendur af spjöldum
með myndum af ýmsum þekktum
stöðum og byggingum á Íslandi, sem
teknar voru af Mats Wibe Lund ljós-
myndara, fuglamyndum eftir Jóhann
Óla Hilmarsson ljósmyndara og einnig
myndum af þekktum Íslendingum, lífs
og liðnum.
Í tengslum við myndirnar rifja
þátttakendur svo upp í sameiningu
atburði sem tengjast þeim og lýsa jafn-
vel reynslu úr eigin lífi. Ingibjörg og
María hafa unnið að spilinu í rúmt ár.
„Við sjáum sjálf um pakkningu og sölu
og þetta hefur verið ansi mikil vinna.
María vill að við gerum annað spil,
hugsanlega með myndum af yngra
fólki, en ég er ekki alveg jafn viss enda
er ég eldri en hún,“ segir Ingibjörg og
hlær. Þeir sem hafa áhuga á að kynna
sér spilið eða kaupa það geta litið inn
á Facebook.com/geymtenekkigleymt.
kjartan@frettabladid.is
GEYMT EN EKKI GLEYMT: SPIL FYRIR FÓLK MEÐ FORTÍÐ
Skerpir athygli og einbeitingu
GEYMT EN EKKI GLEYMT Ingibjörg og María eru stoltar af spilinu sem þær hafa unnið að í rúmt ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
BJÖRG HÁKONÍA HJARTARDÓTTIR
lést á Landspítalanum Fossvogi
sunnudaginn 6. maí. Jarðarförin fer fram frá
Lindakirkju mánudaginn 14. maí kl. 13:00.
Þórarinn Ingi Jónsson
Smári Þórarinsson
Rósa Þórarinsdóttir Magnús Andrésson
Björk Þórarinsdóttir Kristinn Pétursson
Örvar, Nói, Vala, Ívar, Alexander, Sindri, Þröstur og Adda
og langömmustelpurnar Alda, Gabríela Sif og Þórey
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
INGUNN SÓLEY JÓNSDÓTTIR
lést á Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ að
morgni 7. maí 2012. Útförin fer fram
frá Árbæjarkirkju mánudaginn
14. maí kl. 13.00.
Árni Guðbjartsson
Bogga Jóna Maggi
Guðbjartur Sigrún
Elva Logi
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HREFNA ÞÓRARINSDÓTTIR
Hlíðarvegi 62a, Kópavogi,
lést á Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ þann
7. maí. Útförin fer fram frá Digraneskirkju
miðvikudaginn 16. maí kl 13.00. Þeim sem
vilja minnast hennar er bent á Umhyggju,
félag til stuðnings langveikum börnum.
Hugo Rasmus María Játvarðardóttir
Tómas Rasmus Hlíf Erlingsdóttir
Steinunn Rasmus Jón Árni Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
EINAR S. M. SVEINSSON
fv. framkvæmdastjóri,
Herjólfsgötu 40, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum föstudaginn 4. maí.
Jarðarförin fer fram föstudaginn 11. maí
frá Víðistaðakirkju kl. 13.00. Þeim sem vilja
minnast hans er bent á Barnaspítala Hringsins.
Ingveldur Óskarsdóttir
Ingigerður Einarsdóttir
Óskar Einarsson Unnur Gunnarsdóttir
Gyða Einarsdóttir Bjarni Ólafur Bjarnason
Hildur Einarsdóttir Sveinn Axel Sveinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra,
MARGRÉT V. AÐALSTEINSDÓTTIR
Kleppsvegi 58, Reykjavík,
sem lést laugardaginn 28. apríl
á Hjúkrunarheimilinu Grund,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
föstudaginn 11. maí kl. 13.00.
Sigurður Berg Bergsteinsson
Óskar Sigurðsson Katarzyna S. Sigurðsson
Sigrún Sigurðardóttir Hörður Benediktsson
Hafdís Björg Sigurðardóttir Óskar Ásgeirsson
Þjóðbjörg Heiða Þorsteinsdóttir
Valdís Ingunn Óskarsdóttir
Markus Georg Óskarsson
Sigríður Helga Aðalsteinsdóttir
Jóhanna Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
Steinunn Sigurðardóttir Brynjar Valdimarsson
Eiginkona mín, móðir okkar, amma,
langamma og systir,
HALLDÓRA BJARNADÓTTIR
Kvígindisfelli, Tálknafirði,
sem lést 27. apríl á gjörgæslu Landspítalans
í Fossvogi, verður jarðsett frá Tálkna fjarðar-
kirkju laugardaginn 12. maí kl. 14.00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Magnús Guðmundsson
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu við andlát
eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
HILDEGARD ÞORGEIRSSON
(Fædd Reiss)
Dvalarheimilinu Ási.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu. Sérstakar þakkir sendum starfsfólki á Dvalarheimilinu Ási
í Hveragerði fyrir hlýhug og góða umönnun.
Hafsteinn Þorgeirsson
Þorgeir Hafsteinsson Guðbjörg Þorsteinsdóttir
Karín H. Hafsteinsdóttir Ríkharður Hrafnkelsson
Sigurður H. Hafsteinsson Helga Möller
Davíð E. Hafsteinsson Helga B. Marteinsdóttir
Hafsteinn E. Hafsteinsson
Hafdís Hafsteinsdóttir Arnar Guðnason
barnabörn og barnabarnabörn.