Fréttablaðið - 10.05.2012, Blaðsíða 51
FIMMTUDAGUR 10. maí 2012 39
Átta hljómsveitir koma fram á
tónleikunum Rokk í Reykjavík
2.0 sem haldnir verða á Gamla
Gauknum þann 24. maí næst-
komandi.
Það er belgískur læknir, Wim
Van Hooste, sem stendur fyrir tón-
leikunum en þeir eru haldnir í til-
efni af 30 ára afmæli kvikmyndar
Friðriks Þórs Friðrikssonar, Rokk
í Reykjavík og á þeim verða flutt
lög úr myndinni. Van Hooste þessi
er mikill áhugamaður um íslenska
tónlist og deilir þeim áhuga með
hverjum sem hafa vill á tónlistar-
blogginu Icelandmusic.blogspot.
com. Sjálfur verður Van Hooste
41 árs á tónleikadaginn og tón-
leikarnir því á sama tíma afmælis-
veisla fyrir hann.
Hljómsveitin Fræbbblarnir
verður aðalnúmer kvöldsins, en
hún á að baki sér rúmlega 30 ára
feril og kom meðal annars fram
í hinni ódauðlegu mynd Frið-
riks Þórs á sínum tíma. Hljóm-
sveitin Q4U lék einnig í myndinni
og kemur til með að gleða gesti
Gauksins með nokkrum slögurum.
Aðrar hljómsveitir sem koma til
með að stíga á stokk og taka lagið
verða Sudden Weather Change,
Æla, Mosi frændi, Morðingjarnir,
Dr. Gunni og Hellvar. - trs
Flytja lög úr Rokk í Reykjavík
SPILAÐI Í MYNDINNI Hljómsveitin Fræbbblarnir verður aðalnúmer kvöldsins á
Gauknum, en hún spilaði meðal annars í mynd Friðriks Þórs, Rokk í Reykjavík, sem á
að heiðra með tónleikunum.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 10. maí 2012
➜ Tónleikar
20.00 Karlakór Kjalnesinga flytur íslensk
og rússnesk sönglög auk nýútsettrar
Elvis- syrpu á tónleikum í Langholtskirkju.
20.00 Bogi Haraldsson heldur
útskriftartónleika úr LHÍ í Þjóðmenn-
ingarhúsinu.
21.00 Styrktartónleikar fyrir uppbygg-
ingu á listasmiðju Galtarvita verða
haldnir í Gamla Bíói, Ingólfsstræti 2A,
Reykjavík. Fram koma Hjaltalín, Snorri
Helgason, Tilbury, Mr. Silla og Borko.
Aðgangseyrir er kr. 1.500.
➜ Kvikmyndir
14.00 Kvikmyndin Spur der Steine
(Spor steinanna) verður sýnd á þýsku
kvikmyndahátíðinni í Kamesi Borgar-
bókasafnsins, Tryggvagötu 15. Aðgangur
ókeypis.
17.00 Kvikmyndin Abschied von
Gestern (Kveðja frá gærdeginum)
verður sýnd á þýsku kvikmyndahátíðinni
í Kamesi Borgarbókasafnsins, Tryggva-
götu 15. Aðgangur ókeypis.
➜ Málþing
09.00 Alþjóðleg ráðstefna um Sameigin-
lega öryggis- og varnamálastefnu Evrópu-
sambandsins og hvaða áhrif hún gæti
haft á Ísland, gerist landið aðili að sam-
bandinu, verður haldin í Norræna húsinu í
Reykjavík. Það er NEXUS, rannsóknarvett-
vangur á sviði öryggis- og varnar mála og
Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands sem
boða til ráðstefnunnar sem fer fram á
ensku og er öllum opin.
➜ Tónlist
20.30 Hin færeyska Eivör Pálsdóttir
kemur fram ásamt bandinu 1860 á tón-
leikaröðinni Kaffi, kökur & rokk & ról i Edrú-
höllini, Efstaleiti 7. Aðgangseyrir er kr. 500.
21.00 Sudden Weather Change, Heavy
Experience og Oyama blása til vorgleði
á skemmtistaðnum Faktorý. Aðgangs-
eyrir er kr. 500.
21.00 Halli Reynis kemur fram á Café
Rosenberg. Aðgangseyrir er kr. 1.000 og
geisladiskar verða til sölu á staðnum.
21.00 Skuggabandið (The Shadows
Tribute Band) leikur á Kaffi Rós í Hvera-
gerði. Bandið er skipað tvennum pörum
af feðgum. Á efnisskránni verða helstu
slagarar The Shadows. Sérstakur gestur
verður Kliff Richard.
21.00 Hljómsveitirnar Þoka og Funk
That Shit spila í kjallara Bar 11. Að-
gangur er ókeypis og DJ mætir í búrið
að tónleikum loknum.
22.00 Bítladrengirnir blíðu halda tón-
leika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8.
Aðgangseyrir er kr. 1.000.
23.00 Agent Fresco kemur fram á
styrktartónleikum á Hressó til styrktar
Krabbameinsfélaginu. Tónleikarnir eru
hluti af nýrri tónleikaseríu gogoyoko og
Hressó til styrktar þeim sem minna mega
sín og velur hljómsveitin hverju sinni það
málefni sem hún kýs að styrkja.
➜ Fyrirlestrar
17.15 Guðmundur Halldórsson skor-
dýrafræðingur flytur erindi í Bókasafni
Kópavogs, Hamraborg 6a. Hann talar
um orma og önnur skordýr í garðinum.
Aðgangur ókeypis.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Blaðamaður, Flugfreyja hjá Icelandair
og þriggja barna móðir.
Skin Doctors vörurnar eru nú fáanlegar í Hagkaupum
Kringlunni, Smáralind, Garðabæ og Holtagörðum.
„Þegar húðin er ekki hundrað prósent, og gæti sennilega flokkast
sem vandamálahúð, er maður einhvern veginn alltaf að leita að
rétta kreminu (alveg eins og leitinni að besta maskaranum og
gallabuxunum virðist aldrei ljúka). Superfacelift andlitskremið hefur
allt öðruvísi áferð en ég hef komist í kynni við áður. Í því eru örfín
korn sem innihalda A-vítamín (Retinol) sem er eitt það besta sem
húðin getur fengið. Mælt er með því að setja Skinactive rakakrem
yfir Superfacelift en þar sem mín húð er feit á yfirborðinu, þá ég
sleppi því og útkoman er frábær. Kremið er hvorki of feitt, né of
þurrt og mér líður (ég held ég geti sagt í fyrsta sinn!) vel í húðinni
og þarf ekki sífellt að pæla í því hvort ég þurfi að púðra eða “blotta”.
„Áferðin á húðinni hefur breyst, hún er þéttari og ég
sé ekki betur en að hrukkur í kringum augun hafi grynnkað!!
Mæ ómæ, er það ekki eitthvað sem við þráum allar?“
„Eyetuck augnkremið hef ég borið á mig samviskusamlega
kvölds og morgna í fimm vikur og þegar ég var að rýna í baksýnis-
spegilinn í bílnum, bara svona til að taka stöðuna á lúkkinu, þá sneri
ég höfðinu á alla kanta því ég sá ekki þreytu-ættarpokana undir
augunum. Getur það verið að kremið hafi þessi áhrif? :)“
Af hverju Eyetuck?
Skilvirk augnmeðferð hönnuð
til þess að berjast við poka undir augum.
Klínískar rannsóknir sýna fram á allt að
95% árangur hjá þeim sem hafa prófað.
Af hverju Superfacelift?
„Andlitslyfting í krukku“.
Örsmátt hjúpað A-vítamín (Retinol) viðheldur ferskleika
virku efnanna og tryggir framúrskarandi árangur.
ÁLFASALAN
2012
Opið laugard. kl. 10-14