Fréttablaðið - 10.05.2012, Qupperneq 54
10. maí 2012 FIMMTUDAGUR42
bio@frettabladid.is
Ofurhetjumyndin The Avengers
er tekjuhæsta opnunarmynd
allra tíma í Norður-Ameríku.
Hún halaði inn 200 milljónir
dollara, eða um 25 milljarða
króna. Fyrra metið átti Harry
Potter and the Deathly Hallows
Part 2 sem þénaði 169 milljónir
dollara síðasta sumar. Á eftir
henni koma The Dark Knight og
Spider-Man 3 en báðar ofurhetjur
þeirra mynda, Batman og Spider-
Man snúa aftur í nýjum myndum
í sumar.
Leikstjóri The Avengers er
Joss Whedon og með aðalhlut-
verkin fara Robert Downey Jr.,
Chris Evans, Mark Ruffalo, Chris
Hemsworth og Scarlett Johans-
son.
Avengers sló
aðsóknarmet
TEKJUHÆST Ofurhetjumyndin The
Avenegers sló aðsóknarmet vestanhafs.
Kvikmyndin Dark Shadows
eftir leikstjórann Tim Bur-
ton verður heimsfrumsýnd
annað kvöld. Myndin byggir
á samnefndri sápuóperu frá
sjöunda áratugnum.
Dark Shadows fjallar um Barna-
bas Collins, auðugan glaumgosa
sem er uppi um miðja átjándu öld
og býr á hinu glæsilega Collinwood-
setri í Maine. Hin unga Angelique
Bouchard er ein þeirra fjölmörgu
kvenna er falla fyrir Barnabas en
auðmaðurinn hafnar henni og í kjöl-
farið ákveður Angelique að hefna
sín, breytir Barnabas í vampíru
og lætur grafa hann lifandi. Fyrir
mistök er kista Barnabasar graf-
in upp tvö hundruð árum síðar
og fær vampíran þannig frelsi
að nýju. Hann ákveður að snúa
aftur til heimili síns, Collinwood-
óðalsetursins, sem er nú heimili
afkomanda hans, Elizabeth Collins
Stoddard, og fjölskyldu hennar. En
norninni Angelique er ekki runnin
reiðin og er enn í hefndarhug og
upp hefst stórskemmtileg en jafn-
framt stórundarleg gotnesk bíó-
skemmtun.
Kvikmyndin er gamanmynd
og byggð á samnefndri sápu-
óperu sem sýnd var í sjónvarpi á
árunum 1966 til 1971 en þættirnir
voru í miklu uppáhaldi hjá leik-
stjóranum Tim Burton. Johnny
Depp og Helena Bonham Carter
fara með tvö af aðalhlut verkunum
en þetta er níunda kvikmyndin
sem Depp og Burton vinna saman
að. Bonham Carter, eiginkona Bur-
tons, hefur svo leikið í fimm kvik-
myndum í leikstjórn Burtons.
Með aðalhlutverk í kvikmynd-
inni fara Johnny Depp, Michelle
Pfeiffer, Helena Bonham Carter,
Eva Green, Johnny Lee Miller og
Christopher Lee auk hinnar ungu
og efnilegu Chloë Moretz.
Kvikmyndin hefur fengið
nokkuð misjafna dóma og virðast
gagnrýnendur annað hvort elska
myndina eða hata hana. Sumir
hæla Burton fyrir velheppnaða
gamanmynd, fallega sviðsmynd og
gott leikaraval á meðan aðrir segja
myndina langdregna og ofleikna.
GOTNESK SAGA FRÁ BURTON
Sápuóperan Dark Shadows
varð sérstaklega vinsæl eftir að
vampíran Barnabas Collins, sem
leikin var af Jonathan Frid, var
kynnt til leiks ári eftir að þátturinn
var fyrst sýndur. Barnabas þessi
var þó ekki eina yfirnáttúrulega
persónan í þáttunum því þar mátti
einnig finna varúlfa, uppvakninga,
nornir, galdrakarla og tímaflakkara.
Leikararnir léku oftar en ekki fleira
en eitt hlutverk í þáttunum.
Tim Burton var mikill aðdáandi
Dark Shadows líkt og Quentin
Tarantino, Johnny Depp og
Madonna. Depp var hrifnastur af
persónunni Barnabas og sem barn
óskaði hann sér þess að hann væri
sjálfur þessi undarlega fígúra sem
Barnabas var. Það má því segja að
æskudraumur Depps hafi ræst er
honum bauðst að leika vampíruna
í mynd Burtons.
ÆSKUDRAUMUR
DEPP VARÐ AÐ
VERULEIKA
DÖKKIR SKUGGAR Kvikmyndin Dark Shadows segir frá vampírunni Barnabas
Collins sem fær frelsi eftir tvöhundruð ára fangavist.
> Í STAÐ JOLIE
Leikkonan Cameron Diaz hefur tekið að
sér hlutverk í myndinni The Counselor
í leikstjórn Ridley Scott. Angelina Jolie
var upphaflega orðuð við hlutverkið en
henni tókst ekki að koma tökunum fyrir
í þéttskipaðri dagskrá sinni svo hlut-
verkið rann til Diaz. Michael Fassbender
leikur líka í myndinni en tökur eiga að
hefjast síðar á árinu. Handritið er eftir
Cormac McCarthy, sem á heiðurinn af
verðlaunamyndunum The Road og No
Country for Old Men.
Í kvöld klukkan 20 verður kvikmyndin
Fastest sýnd í Smárabíói, en þetta er í
eina skiptið sem myndin verður sýnd.
Myndin kemur frá leikstjóra Faster og
er spennumynd um Moto GP-heims-
meistarakeppnina 2010. Leikarinn
heimsfrægi Ewan McGregor er þulur
myndarinnar þar sem fylgst er með
Valentino Rossi eltast við sinn tíunda
heimsmeistaratitil.
Þar fyrir utan eru tvær myndir
frumsýndar um helgina, auk Dark Sha-
dows sem er sagt frá hér að neðan.
Í myndinni The Five Year Engage-
ment fara þau Jason Segel og Emily
Blunt með hlutverk pars sem á erfitt
með að koma sér upp að altarinu. Þrátt
fyrir að vera ástfangin upp fyrir haus
og hafa ákveðið að ganga í það heilaga
eru sífellt fleiri utanaðkomandi ástæð-
ur sem tefja plön þeirra um það lengur
en þau kæra sig um.
Guy Pearce leikur mann sem er
ranglega dæmdur fyrir njósnir gegn
Bandaríkjunum í myndinni Lockout.
Honum býðst frelsi gegn því að hann
nái að leysa dóttur Bandaríkjaforseta
úr klóm fanganna sem hafa náð fang-
elsinu á sitt vald. Til að gera myndina
enn áhugaverðari er fangelsið ekki
eins og hvert annað, því það er á braut
um jörðu.
Þýsk kvikmyndahátíð er svo í gangi í
Kamesi, Borgarbókasafni Íslands, þar
til á sunnudaginn. Hægt er að nálgast
upplýsingar um hana á www.borgar-
bokasafn.is.
Einstök upplifun, grín og spenna
HETJAN Hönkið Guy Pearce fer með hlutverk
hetjunnar í spennumyndinni Lockout, sem
gerist í fangelsi sem er á braut um jörðu.
Gamanleikarinn Jason Segel fer
með eitt af aðalhlut verkunum
í kvikmyndinni Jeff Who Lives
at Home sem leikstýrt er af
bræðrunum Jay and Mark
Duplass. Segel segist eiga margt
sameiginlegt með persónu sinni,
ónytjungnum Jeff.
Jeff býr í kjallaranum hjá móður
sinni og lifir heldur tilbreytingar-
lausu lífi og fjallar kvikmyndin um
samskipti hans við bróður sinn og
móður, sem er við það að gefast
upp á syni sínum. Þegar Segel var
spurður af blaðamanni Empireon-
line.com hvort hann ætti nokkuð
sameiginlegt með Jeff svaraði
gamanleikarinn því játandi. „Ég á
margt sameiginlegt með Jeff. Ég
bjó ekki í kjallaranum hjá mömmu
heldur í stúdíóíbúð og gerði voða
lítið allt þar til hlutirnir fóru að
ganga upp í leiklistinni, þannig ég
get samsamað mig Jeff mjög vel,“
sagði Segel.
Jeff Who Lives at Home
var frumsýnd á Toronto-kvik-
myndahátíðinni í september en
fór í almennar sýningar í Banda-
ríkjunum í mars á þessu ári.
Einu sinni ónytjungur
VAR ÓNYTJUNGUR Jason Segel segist geta samsamað sig persónunni Jeff sem hann
leikur í gamanmyndinni Jeff Who Lives at Home. Hér er hann ásamt mótleikurum
sínum. NORDICPHOTOS/GETTY