Fréttablaðið - 10.05.2012, Qupperneq 59
FIMMTUDAGUR 10. maí 2012 47
„Við ætlum að fagna vorinu,“
segir Raggi Bjarna sem heldur
Vorkvöld í Reykjavík í Eldborgar-
sal Hörpu laugardaginn 12. maí.
„Harpan er staðurinn fyrir svona
tónleika. Þarna er líka hægt að
horfa á Akrafjallið og Esjuna.“
Með honum stíga á svið Eivör
Pálsdóttir, Guðrún Gunnars dóttir,
Diddú, Björn Jörundur Frið-
björnsson, Bjarni Arason, Álfta-
gerðisbræður og Óskar Péturs-
son ásamt hljómsveit undir stjórn
Jóns Ólafssonar.
„Þetta er hörkulið,“ segir
Raggi, sem útilokar ekki að þetta
verði árlegur viðburður. „Það er
svo mikið af jólatónleikum að það
er kannski sniðugt að hafa vorhá-
tíð hvert vor þar sem Íslendingar
koma, horfa á Esjuna og njóta
sín.“
Aðspurður segist hinn 77 ára
Raggi vera í flottu formi og lofar
hann skemmtilegum tónleikum.
Um tvenna tónleika er að ræða.
Þeir fyrri hefjast klukkan 16 og
hinir síðar kl. 20. Miðasala fer
fram á Midi.is. - fb
Í FLOTTU FORMI Hinn 77 ára Raggi
Bjarna er í hörkuformi um þessar
mundir.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÁLFASALAN
2012
Fagnar vorinu í Eldborginni
Leikkonan Mila Kunis kom manni
til aðstoðar á laugardag þegar
hann fékk flogakast. Maðurinn
var við störf á heimili leikkonunn-
ar þegar atvikið átti sér stað.
Kunis bað vinkonu sína um
að hringja eftir aðstoð á meðan
hún passaði upp á að maðurinn
kafnaði ekki á meðan á kastinu
stóð. Hún beið við hlið hans allt
þar til sjúkraflutningamenn komu
á staðinn, en maðurinn mun ná sér
að fullu, greina bandarískir fjöl-
miðlar frá. Kunis bætist hér með í
ört stækkandi hóp leikara er hafa
bjargað lífi fólks.
Bjargaði
mannslífi
BJARGVÆTTUR Mila Kunis kom manni til
aðstoðar þegar hann fékk flogakast.
NORDICPHOTOS/GETTY
Jennifer Lopez á tvíburana Max
og Emme en segist vel geta
hugsað sér að eignast fleiri börn í
framtíðinni.
„Það væri sannkölluð blessun
að eignast fleiri börn því þau færa
manni þvílíka hamingju og gleði
og halda manni jarð bundnum,“
sagði Lopez sem vinnur hörðum
höndum þessa dagana. Auk þess
að starfa sem dómari í American
Idol fer hún með hlutverk í kvik-
myndinni What to Expect When
You’re Expecting og undirbýr
tónleikaferðalag til að fylgja eftir
nýrri plötu sinni.
Lopez er skilin við barnsföður
sinn, söngvarann Marc Anthony,
og hóf nýverið samband með
dansaranum Casper Smart.
Börn eru
blessun
BÖRN ERU BLESSUN Jennifer Lopez gæti
vel hugsað sér að eignast fleiri börn í
framtíðinni. NORDICPHOTOS/GETTY
Ofurfyrirsætan Linda Evangelista
og milljarðamæringurinn Franco-
is-Henri Pinault náðu sáttum um
meðlagsgreiðslur Pinault til Evan-
gelistu. Fyrirsætan hafði farið
fram á rúmar 5,7 milljónir króna
á mánuði í meðlag.
„Báðir aðilar komust að sam-
komulagi um meðlagsgreiðslur
í gegnum síma. Þetta samkomu-
lag verður kynnt fyrir dómi fyrir
helgi,“ sagði lögmaður Evangel-
istu fyrir rétti á mánudag.
Evangelista og Pinault eign-
uðust saman soninn Augie eftir
stutt samband og fram að þessu
hefur Pinault tekið lítinn sem
engan þátt í uppeldi sonarins.
Samkomulag
náðist loks
NÁÐU SÁTTUM Linda Evangelista fær
loks meðlag frá barnsföður sínum,
milljarðamæringnum François-Henri
Pinault. NORDICPHOTOS/GETTY