Fréttablaðið - 17.05.2012, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 17.05.2012, Blaðsíða 38
17. maí 2012 FIMMTUDAGUR22 BAKÞANKAR Friðriku Benónýs 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. sæti, 6. tvíhljóði, 8. hvers vegna, 9. fyrirboði, 11. stöðug hreyfing, 12. spýta, 14. kál, 16. mun, 17. traust, 18. jafnvel, 20. þófi, 21. þekkja leið. LÓÐRÉTT 1. fíkniefni, 3. eftir hádegi, 4. loddari, 5. löng, 7. upptugga, 10. púka, 13. veitt eftirför, 15. munnur, 16. ílát, 19. ólæti. LAUSN LÁRÉTT: 2. sess, 6. au, 8. hví, 9. spá, 11. ið, 12. sprek, 14. salat, 16. ku, 17. trú, 18. eða, 20. il, 21. rata. LÓÐRÉTT: 1. hass, 3. eh, 4. svikari, 5. síð, 7. uppsuða, 10. ára, 13. elt, 15. túli, 16. ker, 19. at. Hvað í ósköp- unum er maður með heimsins mestu beinþynn- ingu að gera á fótboltavellinum? Comeback! Hann meidd- ist alvarlega þegar hann var að gefa stoðsendingu árið 2004! Manstu eftir sæta leikaran- um í myndinni sem við sáum um daginn? Já? Ég las að hann hafi aldrei verið fíkill og að með- ferðarsagan hafi bara verið auglýsing fyrir hann og myndina. Mig langar ekkert til að bjarga honum lengur. Svona hlutir hrista upp í trú manns á fræga fólkið. Guð. Minn. Góður. Af hverju bíturðu hann ekki bara? Heima hjá tsetse- flugunum... Ég get þetta! Ég get þetta! Bræður! Ég get þetta! Ég get þetta! BANG! Ái! Sniff Með stírurnar í augunum staulast ég fram í eldhús til að búa til fyrsta dag- skammtinn af kaffi. Á leiðinni pikka ég upp blaðið á dyramottunni og á forsíðunni blasir við mér mynd af konu að mata álfa á hun- angi. Á bak við hana glittir í einn af þing- mönnum þjóðarinnar, skelmisglottandi og áhugasaman. Konan reynist vera sjáandi í álfagarði og þingmaðurinn hefur fengið hana til liðs við sig við að flytja álfafjölskyldu til heimkynna sinna. Álfarnir eru ánægðir með flutningana að sögn sjáandans og gera ekki aðrar kröfur um nýju heimkynnin en að þar sé sjávarsýn og beitiland fyrir kindur. Bróðir utanríkisráðherra lýsir hins vegar yfir þungum áhyggjum af þessu athæfi þing- mannsins þar sem álfar kunni illa að meta flutninga og muni án efa leita leiða til að hefna sín. ÉG FLETTI blaðinu í ofboði en á síðu tvö tekur lítið betra við. Maður sem sakaður er um að hafa planlagt og stjórnað hrottalegri líkamsárás og nauðgun telur sig eiga fjárkröfu á hendur ríkinu, þar sem lögregl- an hafi leitað leiða til að rannsaka glæpastarfsemi hans. Ég gefst upp á blaðalestri, tek kaffibollann með mér inn í herbergi og sest við tölvuna. Einhvers staðar hljóta að finnast fréttir sem meika sens. Á FRÉTTASÍÐUNUM fer einna mest fyrir fréttum af forsetanum gullin- hærða sem virðist hafa ákveðið að komandi kosningar snúist um það að þjóðin velji milli hans og Alþingis og ríkisstjórnar. Ég hafði í fávisku minni ekki gert mér grein fyrir því að búið væri að sameina alþingis- og forseta- kosningar en það er sjálfsagt ágætis sparn- aðarráðstöfun í kreppunni. Ætli Jóhanna viti af þessu? Á FACEBOOK verður vart þverfótað fyrir upphrópunum að vanda. Þessi er skítseiði og hinn er aumingi og það er alveg á hreinu að svissneskir ferðamenn munu sko ekki heim- sækja landið ef Ernst Stavro Blofeld, vondi kallinn úr Bond-myndunum, fær að kaupa hálendi Íslands, enda verður þá ekkert fyrir ferðamenn að skoða á Íslandi. Og talandi um vonda kallinn þá er Jón stóri víst orðinn andlit tónlistarhátíðar í Reykjavík góða fólk- inu á Facebook til mikillar hneykslunar og armæðu. ÞAÐ er kattafár í Svarfaðardal og gras í Garðabæ og Sölvi Blöndal er kominn úr jakkafötunum. Sjómannsfjölskylda í Grinda- vík sætir einelti vegna myndbirtingar í aug- lýsingu stéttarfélags og málfarsbloggarinn ógurlegi er hættur að skrifa um málfar og farinn að skrifa um pólitík. Hlýt að vera stödd í miðjum þætti af Twilight Zone. Eina flóttaleiðin er að slökkva á tölvunni, skríða aftur undir sæng og óska sér þess að vakna í öðru landi á morgun. Dagur í Undralandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.