Fréttablaðið - 08.06.2012, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 08.06.2012, Blaðsíða 10
8. júní 2012 FÖSTUDAGUR10 Mótmæli í miðborginni Kia Ceed EX 1,6 Árgerð 2008, dísel Ekinn 75.000 km, beinsk. MM Lancer Intense Árgerð 2009, bensín Ekinn 42.000 km, beinsk. Ásett verð 2.090.000,- Ásett verð 2.690.000,- Tilboðsverð 2.390.000 VW Caravelle 2,5 TDi 4x4, Árgerð 2006, dísel Ekinn 89.000 km, beinsk. Honda CR-V 2,0 Life- style, Árgerð 2011, bensín Ekinn 20.000 km, sjálfsk. Ásett verð 3.790.000,- Ásett verð 5.350.000,- Komdu og skoðaðu úrvalið! Laugavegi 174 | Sími 590 5040 Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 12-16 Nissan Qashqai LE Árgerð 2008, bensín Ekinn 32.500 km, sjálfsk. Ásett verð 3.790.000,- GOTT ÚRVAL AF NÝLEGUM GÆÐABÍLUM BLYSIN TENDRUÐ Fjöldi sjómanna kveikti á neyðarblysum að fundinum loknum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HÖFNIN FYLLTIST Tugir togara komu til Reykjavíkurhafnar í gær og sigldu margir út aftur eftir fundinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HÆTTI SEM SJÓMAÐUR „Ég ætla ekki að láta LÍÚ kúga mig,“ sagði Þórólfur Júlían Daðason, sem sagði starfi sínu sem sjómaður lausu í vikunni. „Aðgerðirnar eru bara kúgun og mannréttindabrot. Ég hef mínar skoðanir og mér finnst ekki rétt að það sé verið að taka svona ákvarðanir fyrir okkur sem sjómenn. Þeir sjómenn sem vilja geta hætt að vinna og mætt hingað til að tjá sínar skoðanir, en það á ekki að stilla fólki svona upp. Auðvitað var erfitt að segja upp vinnunni, en frekar ætla ég að svelta frjáls maður heldur en að láta fjötra mig svona. Fiskurinn er eign okkar allra. Það þýðir ekki að einhverjir 80 einstaklingar eigi meirihlutann af þessu, það er bara ekki sanngjarnt.“ Mikill mannfjöldi kom saman á Austurvelli í gær á samstöðufundi LÍÚ. Fólk- ið skiptist í tvær andstæð- ar fylkingar og var ýmist klappað fyrir ræðumönnum eða þeir púaðir niður. Ekki ríkti mikil samstaða á samstöðufundi Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) á Austurvelli í gær. Hátt í tvö þús- und manns söfnuðust saman á vellinum og skiptist hópurinn í nokkuð jafnar fylkingar; stuðn- ingsmenn LÍÚ og andstæðinga LÍÚ. Margir héldu ræðu á fundinum og var ýmist klappað og fagnað, eða púað og öskrað þegar ræðun- um lauk. LÍÚ boðaði til fundar- ins og var Reykjavíkurhöfn orðin full af skipum upp úr hádegi, en um 40 stór skip komu til hafnar til að styðja kröfur sambandsins um að stjórnvöld falli frá frum- varpi sínu um kvótann. Adolf Guðmundsson, formað- ur LÍÚ, er ánægður með útkomu dagsins. „Það er gott að sjá hversu margir eru hér saman komnir þó við hefðum gjarnan viljað hafa fundinn svolítið frið- samari,“ segir hann. „En menn eru að láta skoðanir sínar í ljós og það sýnir að þrátt fyrir að inni á Alþingi sé verið að tala um að þetta sé sáttaleið, þá er þetta ekki sátt. Það sést í dag að þetta er engin sátt, heldur öfgarnar á milli.“ Að mati Adolfs ætti sérstak- lega að endurskoða breytingar á veiðigjaldi og ýmis atriði í frum- varpinu um stjórn fiskveiða sem séu mjög hættuleg útgerðinni til lengri tíma. Andri Sigurðsson vefhönnuður boðaði til mótmæla vegna fund- arins á Facebook á miðvikudag, þar sem um þúsund manns boð- uðu komu sína. „Mig langaði að fá fleira fólk til að tjá sig. Hér er mikið af ungum sjómönnum og það eru margar skoðanir uppi, en LÍÚ er bara einn aðili í þessu máli. Þetta kerfi er alls ekki það besta fyrir þjóð- ina, heldur það besta fyrir LÍÚ,“ segir Andri. Hann vill að ríkis- stjórnin gangi enn lengra í breyt- ingum sínum á kvótalögunum. „Frumvarpið um fiskveiðistjór- nunina gengur bara hænuskref í áttina að einhvers konar lausn,“ segir hann. sunna@frettabladid.is Sundrung ríkti á samstöðufundi ASJKD lsjkdh
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.