Fréttablaðið - 08.06.2012, Blaðsíða 25
HRESSANDI SUMARSMELLUR
Pina colada er sannkallaður sumardrykkur. Hér er óáfengt
afbrigði. Setjið einn bolla af ananas, einn bolla af kókos-
mjólk, banana, 1/4 bolla af klökum og 2 teskeiðar af hunangi
í blandara og blandið saman. Hellið í tvö glös og berið fram.
Matreiðslumaðurinn Kristján Þór Hlöðversson sér um þáttinn Eld-að með Holta á sjónvarpsstöð-
inni ÍNN. Þar matreiðir hann skemmtilega
og litríka rétti með Holtakjúklingum frá
Reykjagarði. Næstu föstudaga mun hann
bæta um betur með girnilegum kjúklinga-
réttum á forsíðu Fólks. Hér er hann með
uppskrift að máltíð sem samanstendur af
þremur forelduðum kjúklingaréttum frá
Holta; Holta BBQ-vængjum með gráðosta-
sósu, Holta kjúklingaborgara með salati
og heimagerðri sósu og Holta bratwurst-
pylsu með chilisalsa-sósu.
Rétturinn er fljótlegur og þægilegur
í framreiðslu og tilvalinn til að skella á
grillið í útilegunni. Hægt er að fylgjast
með Kristjáni matreiða þennan girnilega
rétt í kvöld klukkan 21.30 á sjónvarpstöð-
inni ÍNN. Þættirnir eru endursýndir yfir
helgina en einnig er hægt að horfa á þá á
heimasíðu ÍNN, www.inntv.is.
ELDAÐ MEÐ HOLTA
HOLTA KYNNIR Sjónvarpskokkurinn Kristján Þór Hlöðversson í þáttunum
Eldað með Holta á ÍNN gefur kjúklingauppskriftir á forsíðu Fólks alla föstu-
daga. Í dag býður hann upp á foreldaða kjúklingarétti frá Holta.
FORELDAÐIR HOLTA
KJÚKLINGABORGARAR
OG SÓSA
Borgararnir hitaðir upp á grilli
Heimagerð sósa
1 msk tómatsósa
1 msk Dijon-sinnep, honey
1/2 laukur, smátt skorinn
1 msk. pickles
1 msk. sojasósa
1 tsk. hrásykur
4 msk. Hellmanns light majones
Öllu blandað saman
FORELDAÐIR BBQ HOLTA
KJÚKLINGAVÆNGIR MEÐ
GRÁÐOSTASÓSU
Vængirnir hitaðir upp á grilli
Gráðostasósa
180 ml 10 % sýrður rjómi
80 g gráðostur
50 ml vatn
salt og pipar
sellerí skorið í þunna strimla og
sett í kalt vatn
HOLTA BRATWURST-PYLSUR Í
FRÖNSKU PYLSUBRAUÐI MEÐ
CHILISALSA-SÓSU
Grillið pylsurnar og brauðið
Chilisalsa-sósa
2 stk rauður chili
1 stk grænn chili
1 stk laukur
1/4 box kóríander
1/4 poki steinselja
2 stk tómatar
1/2 flaska Heinz-chilisósa
salt og pipar
Saxið allt smátt og látið standa í
20 mínútur.
FORELDAÐIR KJÚKLINGARÉTTIR
FLJÓTLEGT OG GOTT
Máltíðin er fljótleg í framreiðslu
en hægt er að fylgjast með
Kristjáni matreiða hana á ÍNN
í kvöld.
Öll brúðhjón fá glæsilega svuntu
með nöfnum sínum
og brúðkaupsdegi ísaumuðum.
Íslensk
kennslubók í
matreiðslu fylgir.
MIKIÐ ÚRVAL
BRÚÐARGJAFA
FOR THE WAY IT´S MADE
Gildir um KitchenAid
hrærivélar.