Fréttablaðið - 08.06.2012, Blaðsíða 24
8. júní 2012 FÖSTUDAGUR24
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
BONNIE TYLER söngkona á afmæli í dag.
„Alltof margir aðilar gefa út plötur fyrir jólin og týnast þar af leiðandi í jóla-
flóðinu.“
Merkisatburðir
1435 Dómkirkjan í Uppsölum er vígð.
1624 Jarðskjálfti skekur Perú.
1887 Herman Hollerith fær einkaleyfi á stimpilklukku.
1789 Jarðskjálftar hefjast á Suðurlandi og koma með allt að tíu
mínútna millibili.
1968 James Earl Ray er handtekinn fyrir morðið á dr. Martin Lut-
her King.
1968 Robert F. Kennedy er jarðsettur.
2002 Íslensk stjórnvöld neita meðlimum Falun Gong-hreyfingar-
innar um landvistarleyfi vegna ótta við mótmæli.
Miklir jarðeldar með áköfu gosi komu upp á
Síðumannaafrétti þennan dag, árið 1783. Skaftá
þornaði upp en hraunflóð vall fram árgljúfrið
milli Skaftártungu og Síðu með ógurlegum
drunum og skruðningum og ógnaði byggðinni.
Þessu fylgdu miklir jarðskjálftar og öskufall.
Fýlan var svo megn að fólki sló fyrir brjóst.
Þannig er upphafi Skaftárelda lýst í Öldinni
okkar. Þar kemur fram að undanfari gossins
hafi verið snarpir jarðskjálftakippir sem færðust
í aukana uns mökkur mikill hafi
sést rísa yfir byggðarfjöll norðan
Síðu í heiðskíru og spöku veðri
um miðjan hvítasunnudag, þann
8. júní. Sá mökkur hafi breiðst
um Síðuna alla og austur um
Fljótshverfi og orðið hafi dimmt í
húsum inni. „Í Skaftártungu ýrði úr
lofti og var það svört leðja, áþekk
bleki, sem lagðist yfir jörðina.“
ÞETTA GERÐIST: 8. JÚNÍ 1783
Skaftáreldar blossa upp
LAKAGÍGAR Löngu orðnir mosavaxnir.
MYND/VILHELM/ÚR EINKASAFNI
61
40 ára afmæli
Margrét Ósk
Ragnarsdóttir
Föstudaginn 8. júní mun ég fagna
40 ára afmæli mínu.
Endilega hringið í mig og samgleðjist
mér á þessum merku tímamótum.
Sími: 895 1043
Kveðja, Margrét Ósk
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vináttu vegna andláts og útfarar elskulegs
eiginmanns míns, föður, tengdasonar,
tengdaföður og afa,
ÓLAFS EINARS ÓLAFSSONAR.
Þorbjörg Jónsdóttir og fjölskylda.
Elskulegur sonur minn,
faðir okkar og bróðir,
STURLA RÖGNVALDSSON
bifvélavirkjameistari,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans í
Fossvogi 31. maí sl. Útförin fer fram frá
Bústaðakirkju 13. júní kl. 13.00.
Rögnvaldur Þorkelsson
Hjörtur Sturluson
Viðar Sturluson
Rögnvaldur Sturluson
Agnar Sturluson
Jón Þorkell Rögnvaldsson
Elsku mamma okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
ARNHEIÐUR HALLDÓRSDÓTTIR
Strandgötu 97, Eskifirði,
lést á hjartadeild Landspítalans við
Hringbraut fimmtudaginn 31. maí.
Útförin fer fram frá Eskifjarðarkirkju
mánudaginn 11. júní kl. 14.00.
Sólveig Kristmannsdóttir Árni Helgason
Atli Börkur Egilsson Bea Meijer
Kolbrún Brynja Egilsdóttir Bernhard Nils Bogason
Karl Ingvar Egilsson Kristín Kristinsdóttir
Guðbjörg María Egilsdóttir Sayd Mechiat
Haukur Björnsson
barnabörn, barnabarnabörn og aðrir ættingjar.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
MAGNÚS JÓNSSON
fyrrverandi skólastjóri,
lést miðvikudaginn 6. júní sl. Útförin fer fram
frá Árbæjarkirkju þriðju daginn 12. júní
kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hans er
bent á Minningarsjóð Grundar, s.: 530 6100.
Sigrún Jónsdóttir
Gyða Magnúsdóttir Ársæll Jónsson
Jón Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Sonur minn og bróðir,
INGI GUNNAR
BENEDIKTSSON
lést að heimili sínu 16. maí síðastliðinn.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Sigríður Sigurðardóttir
Sigrún Björk Benediktsdóttir og fjölskylda.
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐBJÖRG HELGADÓTTIR
frá Kolviðarnesi,
sem andaðist á Dvalarheimili aldraðra
í Borgarnesi föstudaginn 1. júní,
verður jarðsungin frá Borgarneskirkju
laugardaginn 9. júní kl. 14.00.
Jónasína Oddsdóttir Reynir Bragason
Sigurður Oddsson
Helgi Oddsson Sigríður Þórðardóttir
Hjalti Oddsson Elín Þorsteinsdóttir
Sesselja Oddsdóttir Lárus Gestssson
Jón Oddsson Herdís Þórðardóttir
Þorbjörn Oddsson Jóhanna B. Þorvaldsdóttir
ömmu- og langömmubörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu, langömmu og
langalangömmu,
ELÍNAR ELÍSABETAR
GUÐMUNDSDÓTTUR
húsfreyju frá Ófeigsfirði.
Bára Guðmundsdóttir
Ragnar I. Jakobsson
Pétur Guðmundsson Margrét Ó. Eggertsdóttir
Ingibjörg Guðmundsdóttir
Torfi Þorkell Guðmundsson Helga V. Rósantsdóttir
Ásgeir Guðmundsson Inga A. Waage
Böðvar Guðmundsson Hrönn Valdimarsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginkonu minnar, móður okkar, ömmu,
langömmu og systur,
HALLDÓRU BJARNADÓTTUR
Kvígindisfelli, Tálknafirði.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk gjörgæslu
Landspítalans í Fossvogi fyrir einstaka
umönnun og hlýhug.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Magnús Guðmundsson
„Þetta er eitt af erfiðustu hlaupum
landsins. Þeir sem hafa bæði hlaupið
það og Laugaveginn segja að 7 tinda
hlaupið sé töluvert erfiðara. Samt
erum við með 20 til 30 þátttakend-
ur á hverju ári, sem eru að hlaupa
þessa vegalengd,“ segir Hlynur Sig-
urðarson, einn skipuleggjenda 7 tinda
hlaupsins sem fram fer á morgun.
Það eru björgunarsveitin Kyndill og
Skátafélagið Mosverjar sem standa að
því, í samstarfi við landsmót UMFÍ
50+ sem einnig fer
fram í Mosfellsbæ
um helgina.
Hlaupið verður
ræst klukkan 10 við
Íþróttamiðstöðina
að Varmá. Hlaup-
ið er utanvega um
fjöll, heiðar og
dali í bæjarlandi
Mosfellsbæjar og
komið aftur í mark
við Varmá. Vega-
lengdir sem eru í boði eru 7 tindarnir
sem hlaupið er nefnt eftir, en sú leið
er 37 kílómetrar, 5 tindar eða 34 kíló-
metrar, 3 tindar eða 19 kílómetrar og
1 tindur sem er 12 kílómetra hlaup.
Þá verður einnig boðið upp á þriggja
tinda göngu og eins tinds göngu.
Frekari upplýsingar um hverja leið
fyrir sig er meðal annars að finna á
vefsíðunni www.hlaup.com.
Búist er við metfjölda þátttakenda
í ár. Í fyrsta hlaupinu voru þátttak-
endur nálægt eitt hundrað en í ár
er búist við að þeir verði 200. Þetta
segir Hlynur vera í réttu hlutfalli
við aukinn fjölda góðra langhlaup-
ara á Íslandi. „Markhópurinn okkar
fyrir lengstu vegalengdina er á milli
50 og 100 manns. Þeir eru orðnir svo
margir hér á landi sem geta léttilega
hlaupið þessa veglengd. Hlauparar
hér eru stöðugt að verða tæknilegri
og öflugri. En þetta er ekki fyrir
neina aukvisa. Það eru bara hörku-
hlauparar sem taka þátt, enda eru
átök í þessu.“
Björgunarsveitarfólk verður í við-
bragðsstöðu á öllum tindunum sjö,
vígbúið silkiplástrum, sáraplástrum,
heftiplástrum og vaselíni. Á leiðinni
verða líka drykkjarstöðvar með orku-
drykkjum og næringu. Er búist við
því að hlauparar ofkeyri sig? „Nei,
alls ekki. En fólk getur auðvitað
verið óheppið, snúið sig og dottið. Þá
er gott að vita af því að það er stutt í
aðstoð. En hingað til hafa allir skilað
sér heilir heim og vonandi verður það
svoleiðis í ár líka,“ segir Hlynur.
holmfridur@frettabladid.is
7 TINDA HLAUPIÐ: ERFIÐASTA UTANVEGAHLAUP LANDSINS FER FRAM Á MORGUN
Öflugum hlaupurum fjölgar
HLAUPIÐ UPP DAUÐABREKKUNA Hlauparar í 7 tinda hlaupinu hlaupa í mýri, kargaþýfi, upp
brekkur og niður skriður. MYND/HLYNUR SIGURÐARSON
HLYNUR
SIGURÐARSON