Fréttablaðið - 08.06.2012, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 08.06.2012, Blaðsíða 42
8. júní 2012 FÖSTUDAGUR26 BAKÞANKAR Bergsteins Sigurðs- sonar 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. hæð, 6. frá, 8. mánuður, 9. fax, 11. umhverfis, 12. bæ, 14. drykkjarílát, 16. málmur, 17. vafi, 18. blástur, 20. persónufornafn, 21. einsöngur. LÓÐRÉTT 1. afkvæmi, 3. hljóm, 4. reiðufé, 5. festing, 7. litur, 10. neitun, 13. atvikast, 15. göngulag, 16. kerald, 19. ætíð. LAUSN LÁRÉTT: 2. hóll, 6. af, 8. maí, 9. mön, 11. um, 12. bless, 14. bikar, 16. ál, 17. efi, 18. más, 20. ég, 21. aría. LÓÐRÉTT: 1. lamb, 3. óm, 4. lausafé, 5. lím, 7. fölblár, 10. nei, 13. ske, 15. rigs, 16. áma, 19. sí. Hlust- aðu nú! Oj,oj, oj,oj! Hvað eru eiginlega stelpur að gera saman á klósettinu? Viljum við vita það? Og hvað ertu að gera með þumalputt- unum? Ég er að stara á mömmu með tómum augum. Hún þolir það ekki. Þetta gengur vel. Hvað ertu að gera? Eigin- lega. Hæ, Palli. Ertu upp- tekinn? Við rjúfum útsendinguna frá sjónum til að minna fólk á að nota nóg af sólarvörn. Hæ, Hannes datt úr tré og er með frekar slæman skurð! O-ó! Það er í lagi með hann, en ég ætla með hann til læknis. Það þarf kannski að sauma. Virki- lega? Fyrstu saumarnir hans! ég get ekki beðið eftir að sjá þá! hann mun alltaf muna eftir þessum degi! Hvort er þetta neyðartil- felli eða manndómsvígsla í þínum augum? Þetta er hvoru tveggja. Einu sinni vann ég á stað þar sem yfir-maðurinn var tuddi. Við erum að tala um hreinræktaðan búra, sem hafði for- framast langt umfram hæfileika, menntun og getu í skjóli ættartengsla. Eins og títt er með þessar manngerðir var okkar maður jafnan að drepast úr minnimáttarkennd og hafði horn í síðu þeirra sem stóðu honum framar á einhverju sviði, til dæmis þá sem kunnu á tölvu eða skildu ensku. Mest fóru þó í taugarnar á honum þeir sem sýndu frumkvæði og höfðu hugmyndir sem voru á skjön við hans um hvernig hlutirnir ættu að ganga fyrir sig. Þá fyrst fannst honum valdi sínu ógnað og fjandinn varð laus. AÐ hætti eineltisbola með svipu og titil gætti maðurinn sín á því að láta ekki jafnt yfir alla ganga heldur sigtaði suma út til að pönkast á meðan aðrir voru í náðinni. Mér er sérstaklega minnisstætt atvik þar sem hann hellti sér yfir samstarfskonu okkar, út af tittlingaskít sem hún bar ekki einu sinni ábyrgð á. Að horfa á aðfar- irnar í gegnum glervegginn á skrifstof- unni hans var eins og sjá manneskju fasta í búri með mannýgri górillu. Samt sagði maður ekki neitt. Við vorum meðvirk. FÆST okkar sem þurftum að afplána vinnudag- inn undir stjórn þessa manns báru virðingu fyrir honum, sum okkar voru beinlínis hrædd við hann, enda hafði hann lifi- brauð fólks í hendi sér. Með því að deila og drottna kom hann í veg fyrir að það mynd- aðist víðtæk andstaða gegn sér og maður varð dauðhræddur við að svara fyrir sig af ótta við enda atvinnulaus. ÞAÐ fylgdi því mikill léttir þegar sauð- nautið fékk loksins boð yfir á það sem það taldi grænni gresjur og hvarf af sínum pósti. Allt í einu varð aftur gaman að mæta í vinnuna, og minningin um bolann varð fóður í gamansögur sagðar honum til háð- ungar. Því miður rann það ekki upp fyrir mér fyrr en eftir að hann var hættur að það var aldrei ástæða til óttast hann. Í fyrsta lagi var hann allur í kjaftinum og hefði hann í öðru lagi rekið mig hefði mér hvort eð er lagst eitthvað annað til. HÁTTALAG útvegsmanna undanfarið minnir mig á þennan mann; þessi ófyrir- leitni áróður um að þeir sem vilja hrófla við kvótakerfinu séu veruleikafirrtir hat- ursmenn einhverrar óskilgreindar lands- byggðar og vilji svipta hana brauðmolunum sem hrökkvi af allsnægtarborði útgerðar- innar. Þegar þessir menn auglýsa að það verði „aldrei sátt án samstarfs“ meina þeir: Gerið eins og við segjum og haldið kjafti! Að sundra og hræða, þetta er aðferðafræði tuddans. Hvort hún virkar er hins vegar undir sjálfum okkur komið. Þeir fiska ekki sem kóa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.