Fréttablaðið - 08.06.2012, Blaðsíða 42
8. júní 2012 FÖSTUDAGUR26
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðs-
sonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. hæð, 6. frá, 8. mánuður, 9. fax, 11.
umhverfis, 12. bæ, 14. drykkjarílát,
16. málmur, 17. vafi, 18. blástur, 20.
persónufornafn, 21. einsöngur.
LÓÐRÉTT
1. afkvæmi, 3. hljóm, 4. reiðufé,
5. festing, 7. litur, 10. neitun, 13.
atvikast, 15. göngulag, 16. kerald, 19.
ætíð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. hóll, 6. af, 8. maí, 9. mön,
11. um, 12. bless, 14. bikar, 16. ál, 17.
efi, 18. más, 20. ég, 21. aría.
LÓÐRÉTT: 1. lamb, 3. óm, 4. lausafé,
5. lím, 7. fölblár, 10. nei, 13. ske, 15.
rigs, 16. áma, 19. sí.
Hlust-
aðu nú!
Oj,oj,
oj,oj!
Hvað eru
eiginlega
stelpur að
gera saman
á klósettinu?
Viljum
við vita
það?
Og hvað
ertu að
gera með
þumalputt-
unum?
Ég er að stara á
mömmu með tómum
augum. Hún þolir það
ekki. Þetta gengur vel.
Hvað ertu
að gera?
Eigin-
lega.
Hæ, Palli.
Ertu upp-
tekinn?
Við rjúfum útsendinguna frá
sjónum til að minna fólk á
að nota nóg af sólarvörn.
Hæ, Hannes datt úr tré
og er með frekar slæman
skurð!
O-ó!
Það er í lagi með hann,
en ég ætla með hann til
læknis. Það þarf
kannski
að sauma.
Virki-
lega?
Fyrstu saumarnir hans! ég
get ekki beðið eftir að sjá
þá! hann mun alltaf muna
eftir þessum degi!
Hvort er þetta neyðartil-
felli eða manndómsvígsla
í þínum
augum? Þetta er
hvoru
tveggja.
Einu sinni vann ég á stað þar sem yfir-maðurinn var tuddi. Við erum að tala
um hreinræktaðan búra, sem hafði for-
framast langt umfram hæfileika, menntun
og getu í skjóli ættartengsla. Eins og títt er
með þessar manngerðir var okkar maður
jafnan að drepast úr minnimáttarkennd og
hafði horn í síðu þeirra sem stóðu honum
framar á einhverju sviði, til dæmis þá sem
kunnu á tölvu eða skildu ensku. Mest fóru
þó í taugarnar á honum þeir sem sýndu
frumkvæði og höfðu hugmyndir sem voru
á skjön við hans um hvernig hlutirnir ættu
að ganga fyrir sig. Þá fyrst fannst honum
valdi sínu ógnað og fjandinn varð laus.
AÐ hætti eineltisbola með svipu og titil
gætti maðurinn sín á því að láta ekki jafnt
yfir alla ganga heldur sigtaði suma út til
að pönkast á meðan aðrir voru í náðinni.
Mér er sérstaklega minnisstætt atvik þar
sem hann hellti sér yfir samstarfskonu
okkar, út af tittlingaskít sem hún bar ekki
einu sinni ábyrgð á. Að horfa á aðfar-
irnar í gegnum glervegginn á skrifstof-
unni hans var eins og sjá manneskju
fasta í búri með mannýgri górillu.
Samt sagði maður ekki neitt. Við
vorum meðvirk.
FÆST okkar sem þurftum
að afplána vinnudag-
inn undir stjórn þessa
manns báru virðingu
fyrir honum, sum okkar voru beinlínis
hrædd við hann, enda hafði hann lifi-
brauð fólks í hendi sér. Með því að deila og
drottna kom hann í veg fyrir að það mynd-
aðist víðtæk andstaða gegn sér og maður
varð dauðhræddur við að svara fyrir sig af
ótta við enda atvinnulaus.
ÞAÐ fylgdi því mikill léttir þegar sauð-
nautið fékk loksins boð yfir á það sem það
taldi grænni gresjur og hvarf af sínum
pósti. Allt í einu varð aftur gaman að mæta
í vinnuna, og minningin um bolann varð
fóður í gamansögur sagðar honum til háð-
ungar. Því miður rann það ekki upp fyrir
mér fyrr en eftir að hann var hættur að það
var aldrei ástæða til óttast hann. Í fyrsta
lagi var hann allur í kjaftinum og hefði
hann í öðru lagi rekið mig hefði mér hvort
eð er lagst eitthvað annað til.
HÁTTALAG útvegsmanna undanfarið
minnir mig á þennan mann; þessi ófyrir-
leitni áróður um að þeir sem vilja hrófla
við kvótakerfinu séu veruleikafirrtir hat-
ursmenn einhverrar óskilgreindar lands-
byggðar og vilji svipta hana brauðmolunum
sem hrökkvi af allsnægtarborði útgerðar-
innar. Þegar þessir menn auglýsa að það
verði „aldrei sátt án samstarfs“ meina þeir:
Gerið eins og við segjum og haldið kjafti!
Að sundra og hræða, þetta er aðferðafræði
tuddans. Hvort hún virkar er hins vegar
undir sjálfum okkur komið.
Þeir fiska ekki sem kóa