Fréttablaðið - 08.06.2012, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 08.06.2012, Blaðsíða 26
FÓLK|HELGIN Nýtt námskeið hefst 13. júní STOFNUÐU SAMAN BÚÐ Satu Rämö og Maarit Kaipai- nen kynntust fyrir hálfu ári, einmitt þegar þær langaði báðar til að breyta til og gera eitthvað skemmtilegt. MYND/SUOMI PRKL DESIGN Við opnum klukkan fimm og höf-um opið til hálf átta í kvöld. Það verður góð stemning, finnskur harmónikuleikari spilar tangó og boðið verður upp á finnskan fingramat,“ segir Satu Rämö, en hún opnar verslunina Suomi PRKL Design í miðbænum ásamt Maarit Kaipainen. Báðar hafa þær búið á Íslandi í mörg ár en kynntust fyrst fyrir hálfu ári. Þá langaði þær báðar til að breyta til og ákváðu að stofna saman fyrirtæki. „Við erum báðar viðskiptafræðingar og smullum saman. Við byrjuðum sem viðskiptafélagar en erum orðnar góðar vinkonur. Okkur langaði til að gera eitt- hvað skemmtilegt á Íslandi og ákváðum að kynna finnska hönnun. Mörg finnsk merki eru vel þekkt hér en það eru einnig mörg spennandi merki sem Ís- lendingar þekkja lítið til,“ útskýrir Satu en í versluninni er meðal annars að finna heimilisvörur, skartgripi og fylgi- hluti en einnig reiðhjól. „Jopo-hjólin eru æðisleg. Ég saknaði þeirra svo frá Finnlandi,“ segir Satu. „Við bæði seljum þau og leigjum út því við stefnum einnig á að þjónusta ferðamenn.“ Verslunin ber nafnið Suomi PRKL! De- sign. Þegar Satu er beðin um að útskýra nafnið verður hún sposk á svip. „Suomi þýðir Finnland en PRKL stendur fyrir hálfgert blótsyrði á finnsku. En það hefur samt ekki neikvæða merkingu heldur er frekar lýsandi fyrir það viðhorf að drífa í hlutunum og taka þá ekki of alvar- lega,“ segir hún. „Auðvi- tað er þetta líka smá innanbúðar- grín,“ segir hún hlæjandi. ■ heida@365.is FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 NAFNIÐ BLÓTSYRÐI NÝ VERSLUN Vinkonurnar Satu Rämö og Maarit Kaipainen opna verslun með finnska hönnun í bakhúsi við Laugaveg 27 í dag. Boðið verður upp á finnskan harmónikuleik fram á kvöld. LENTO Reykskynjari í felubúningi. SHEILA Í versluninni er að finna bæði skart og fylgihluti. JOPO HJÓLIN Satu og Maarit bæði selja og leigja út hjólin. „Ég dvaldi tvær vikur í Vesteraalen í Noregi haustið 2010 og skissaði plöntur. Ég skoðaði hvað ég fyndi af plöntum þar sem ég þekkti einnig frá Austurlandi. Þetta voru óvísindaleg- ar rannsóknir en út úr þeim kom fjöldi teikn- inga sem ég sýndi bæði í Noregi og á Austur- landi og vann síðan upp úr textíllínu,“ segir Ingunn. Á Skörinni sýnir Ingunn púða, viskastykki og munnþurrkur úr náttúrulegum efnum eins og bómull og tvinnar saman silkiþrykki og prjóni úr íslenskri ull í púðana. „Ég prjóna lítil stykki úr einbandi og sauma í kringum þau mismunandi bómullarstykki. Þannig blandast saman hlutar af mismunandi plöntum og enginn púði er eins,“ segir Ingunn. „Jurtirnar sem ég notaði í línuna eru bláklukka, skógarkerfill og lokasjóð- ur. Ég á margar skemmti- legar æskuminningar um lokasjóðinn en við systkinin kölluðum það peningablóm. Ég á enn mikið af teikningum og mun gera eitthvað meira úr þeim í framhald- inu,“ segir Ingunn. Sýningin stendur til 9 júlí. FLÓRA Á SKÖRINNI Ingunn Þráinsdóttir grafískur hönnuður sýnir á Skörinni textíllínuna Flóru. Línuna vann Ingunn út frá jurtaflóru Austurlands og Norður-Noregs. JURTAFLÓRA Línan inniheldur púða, viskastykki og munn- þurrkur. HEIMILISVÖRUR Ingunn Þráinsdóttir sýnir nýja textíllínu á Skörinni, Aðalstræti 10. MYND/GVA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.