Fréttablaðið - 08.06.2012, Blaðsíða 52
8. júní 2012 FÖSTUDAGUR36
lifsstill@frettabladid.is
36
ÚTIVIST „Þetta er íþrótt sem allir
geta stundað. Bæði er vinsælt að
fólk komi með börnin sín og leiki
sér að kasta og svo geta hörðustu
keppnismenn sökkt sér í pæling-
ar um kasttækni og diska,“ segir
Haukur Arnar Árnason, einn
helsti frisbígolfspilari landsins.
Folfíþróttin hefur slegið í gegn
á Íslandi að undanförnu, en hún
snýst um að koma frisbídisk í þar
til gerða körfu í sem fæstum köst-
um. „Þetta er byggt upp svipað
og golf en tæknin er allt önnur og
ekkert samhengi er á milli þess að
vera góður í folfi og að vera góður
í golfi,“ segir Haukur. Fyrsti folf-
völlurinn kom á Úlfljótsvatni árið
2000 og 2003 var opnaður völlur
í Gufunesi í Grafarvogi. Þá varð
til um 30 manna kjarni sem fór að
stunda íþróttina reglulega en það
var loks í fyrrasumar sem almenn-
ingur tók við sér. „Við fengum völl-
inn á Klambratúni í júlí 2011 og
það er varla hægt að lýsa spreng-
ingunni sem varð í kjölfarið,“
segir Haukur sem telur að nú sé
hægt að telja iðkendur íþróttarinn-
ar í hundruðum.
Haukur hefur séð um innflutn-
ing á diskum og körfum fyrir folf
og segir hann þetta vera ódýrt
sport. „Það hlýst aldrei neitt stór-
kostlegt fjárhagslegt tjón af því að
týna diski en það getur verið mikið
sálrænt tjón þar sem allir diskar
eiga sér sögu,“ segir hann og hlær.
Aðspurður segist hann ekki hafa
áhyggjur af því að íþróttin sé
tískubóla sem muni springa. „Folf
er það sport sem hefur verið í hvað
örustum vexti í heiminum síðast-
liðin 10-15 ár samfleytt og hvar
sem það nær fótfestu er það komið
til að vera,“ segir hann.
Íslenska frisbígolfsamband-
ið stendur fyrir hittingum á
Klambratúni alla mánudaga og í
Gufunesi á miðvikudögum. „Þang-
að er öllum velkomið að mæta og
við getum lánað fólki diska og
kennt þeim leikinn,“ segir Hauk-
ur sem mætir líka á Klambra-
tún alla þriðjudaga klukkan 17 og
býður áhugasömum upp á kennslu.
Sérstakar kvennaæfingar eru svo
nýfarnar af stað á Klambratúni á
miðvikudögum klukkan 18 en allt
er þetta fólki að kostnaðarlausu.
Félagið stendur fyrir ýmsum
mótum hérlendis auk þess sem
meðlimir hafa tekið þátt í mótum
erlendis. Nýlega tók Haukur þátt í
Opna breska meistaramótinu í folfi
þar sem hann lenti í 4.-5. sæti af
50 þátttakendum. „Það var verið
að halda það mót 34. árið í röð, svo
það sýnir manni að þetta sport er
ekkert nýtt af nálinni,“ segir hann.
Hægt er að kynna sér íþróttina
nánar á www.folf.is.
tinnaros@frettabladid.is
FOLF ER ALLT ÖÐRUVÍSI EN GOLF
FRISBÍGOLF Haukur Arnar segir mikla sprengingu hafa orðið innan íþróttarinnar þegar folfvöllurinn á Klambratúni var opnaður í fyrrasumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Það er lítið mál að setja upp folfvelli og auðvelt að
spila íþróttina nokkurn veginn hvar sem er. Það eru
þó sex sérhannaðir folfvellir hérlendis sem eru öllum
opnir allt árið um kring.
■ Í Gufunesi í Grafarvogi er 18 holu völlur.
■ Á Klambratúni er níu holu völlur.
■ Á Úlfljótsvatni er tíu holu völlur.
■ Á Hömrum á Akureyri er níu holu völlur.
■ Í Miðhúsaskógi við Laugavatn er fimm holu völlur.
■ Í Garðalundi á Akranesi er sex holu völlur.
Auk þess er níu teiga púttvöllur á tjaldsvæðinu á
Fossatúni við Grímsá í Borgarfirði. Þar fyrir utan eru
einstakar körfur víðs vegar um landið.
HVAR ER HÆGT AÐ STUNDA FOLF
? Ég var gift sama manninum í sirka 40 ár. Kynlífið hjá okkur
var mjög gott, ég fékk reglulega
fullnægingu með honum, en nú er
hann látinn. Ég er búin að kynn-
ast manni og erum við farin að búa
saman. Kynlífið hjá okkur er ynd-
islegt nema sá hængur er á að ég
fæ mjög sjaldan fullnægingu með
honum nema með aðstoð hjálpar-
tækis. Ég sakna þess að fá ekki full-
nægingu með honum samtímis. Ég
held að það séu liðnir um átta mán-
uðir síðan ég fékk fullnægingu með
honum. Er eitthvað sem ég get gert
í því að fá fullnægingu á eðlilegan
hátt?
SVAR: Ég vil byrja á því að sam-
hryggjast þér vegna fráfalls manns-
ins þíns. Það eru nokkrir hlutir sem
við þurfum að skoða í tengslum við
týndu fullnæginguna þína. Í fyrsta
lagi þá langar mig að segja þér að
það sé enginn skömm í því að nota
kynlífstæki til að fá fullnægingu í
samförum – mörg pör nota kynlífs-
tæki og það er eðlilegt og algengt.
Hann gæti meira að segja notið
góðs af titringnum. Ef þig langar
til að halda áfram að nota titrara
þá má fá þá í alls kyns stærðum
svo hann ætti ekki að vera ógnandi
eða of fyrirferðarmikill. Mörg pör
eiga erfitt með að fá fullnægingu
samtímis í samförum, og margar
konur eiga erfitt með fá fullnæg-
ingu í samförum almennt, án beinn-
ar örvunar snípsins. Örvar hann þig
eða þú sjálfa þig í samförum? Gætir
þú beðið hann um að örva þig eða
værir þú mögulega tilbúin að gera
það sjálf? Svo er það annað, ertu
nógu æst og blaut þegar samfarir
hefjast? Var forleikurinn nægur?
Værir þú opin fyrir því að prufa
sleipiefni? Lykillinn í þessu máli
er að finna saman farsæla lausn
og það fæst aðeins með því að tala
saman. Þið þurfið því að finna hvað
hentar ykkur báðum og ykkur líður
vel með að gera.
Týnda fullnægingin
KYNLÍF: TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vandamáli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
MISJAFNT Mörg pör eiga erfitt með að
fá fullnægingu samtímis í samförum.
TÍSKA Sænski bloggarinn og
tískufyrirmyndin Elin Kling
hefur gengið til liðs við fatafram-
leiðandann Guess, en fatalína
hönnuð af Kling er væntanleg í
verslanir í haust. Mikil spenna er
fyrir fatalínu Kling sem er fræg
fyrir einfaldan stíl.
Kling var fyrsti bloggarinn
til að hanna fatnað fyrir sænsku
verslanakeðjuna Hennes & Mau-
ritz og stofnaði í kjölfarið sitt
eigið tískumerki, Nowhere, og
stjórnar að auki sænska tísku-
blaðinu Styleby. Nýverið seldi
Kling bloggveldi sitt til fjölmiðla-
fyrirtækisins Condé Nast sem
meðal annars á tímaritið Vogue.
Hannar fyrir
Guess
ÚTIVIST Eins og oft hefur verið
bent á þarf ekki að vera leiðinlegt
að brenna kaloríum. Heimasíðan
Everyday Health bendir á ýmsar
leiðir til að nota sumarið og
skemmta sér og brenna kaloríur á
meðan. Meðalmanneskja getur til
dæmis brennt 100 kaloríum með
því að kasta frisbídiski eða leika
sér á trampólíni í hálftíma, 150
kaloríum á því að fara á hestbak
í jafnlangan tíma og 250 með því
að skella sér í létta hjólaferð.
Sumarleg
kaloríu-
brennsla
BRENNSLA Meðalmanneskja getur
brennt 100 kaloríum með því að hoppa
á trampólíni í hálftíma.
VELGENGNI Bloggarinn Elin Kling klífur
metorðastiga tískuiðnaðarins.
NORDICPHOTOS/GETTY
Krakkasíðan er í
helgarblaði Fréttablaðsins
krakkar@frettabladid.is
Sirkuslistakonan Eyrún
Ævarsdóttir hefur gaman
af því að heyra áhorfendur
taka andköf úti í sal, þegar
hún leikur listir sínar í
háloftunum.
SINNUM Á ÁRI er hversu oft óhætt er að lita á sér hárið án þess að eyðileggja það, samkvæmt
hárgreiðslukonu Emmu Stone, Marie Robinson. Hún segir það þó óhætt að bæta strípum ofan á nýlitað
hár sé maður ekki nógu sáttur með útkomuna. Ef lýsa á hárið með strípunum ráðleggur hún að beðið sé
í viku, en eigi að dekkja það segir hún vissara að bíða í tvær vikur.
2