Fréttablaðið - 19.06.2012, Page 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Sími: 512 5000
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Þriðjudagur
skoðun 14
SÉRBLAÐ
í Fréttablaðinu
Fólk
veðrið í dag
19. júní 2012
142. tölublað 12. árgangur
Opið virka daga í sumar frá kl. 9 -18 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.is
Bonito ehf. Friendtex
Faxafen 10, 108 Reykj
ÚTSALAN
40% afsláttur af vor og sumar-vörum friendtex
Opið mán. – föst. kl. 11–18 Lokað á laugardögum
NÝKOMINN AFTUR !!
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366Þú mætir - við mælum og aðstoðumwww.misty.isOpið frá 10-18 virka daga.Lokað á laugardögum í sumar
Teg. DECO - létt fóðraður og saumlaus
í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 9.660,-
PAPRIKA Á GRILLIÐNýjar íslenskar paprikur eru ljúffengar og bragð-
miklar. Mjög gott er að grilla papriku, penslið fyrst
með smávegis olíu. Paprikan er holl, hún inniheldur
A- og C-vítamín, trefjar og steinefni. Rauð paprika
inniheldur þrisvar sinnum meira C-vítamín en
appelsína en sú græna tvisvar sinnum meira.
B löðrubólga er algeng á vorin og sumrin! Það hljómar þversagnar-kennt að blöðrubólga sé algeng á þessum tíma árs þegar sólin er hátt á lofti. Það er freistandi að fara í sandala og stuttbuxur en því miður er sjaldnast nægilega heitt í veðri og því geta fylgt ýmsar afleiðingar. Roseberry er öflug og fljótvirk blanda gegn blöðrubólgu. Roseberry kom á markað í fyrra og hafa viðtökur verið frábærar. Um einfalda og fljótvirka lausn er að ræða við þessum sársaukafulla kvilla. Teknar eru inn 2-3 töflur áður en gengið er til hvílu. Ráðlegt er fyrir þá sem eru með mikil einkenni að taka inn þrjár töflur á dag í þrjátíu daga en þeir sem vilja fyrirbyggja þennan kvilla taka inn tvær töflur.
Innihald Roseberry er þykkni úr trönuberjum, læknakólfi (hibis )C víta í
um, að minnsta kosti 36 mg, en í tveimur töflum af Roseberry eru 36 mg. Ein-staklingsbundið er hversu lengi þarf að taka inn Roseberry en góð regla er að klára glasið, alls 90 töfl-ur. Lykilatriði er að drekka nóg af vatni og helst volgt, þrífa vel kynfærasvæði og vera í hreinum nær-fötum. Hreyfing er einnig mikilvæg en þekkt er að hreyfihamlað fólk fær frekar blöðrubólgu en aðr-ir. Mezina, framleiðandi Roseberry, gerði könnun meðal fólks sem bundið er við hjólastól. Svarendursögðu að Ro b
ÖFLUG OG FLJÓTVIRK LAUSN GEGN BLÖÐRUBÓLGU
GENGUR VEL KYNNIR Roseberry er náttúrulegt efni gegn blöðrubólgu sem
hefur reynst afar vel. Hentugt sem fyrirbyggjandi gegn blöðrubólgu og einnig
eftir að einkenni gera vart við sig.
GÓÐ HEILSA Það er ekki skemmtilegt að þjást af blöðrubólgu í sumar og sól en sú hætta er alltaf fyrir hendi.
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
N1 BLAÐIÐ
FYLGIRIT Á
KVENRÉTTINDADEGI
Nýjung!
D-VÍTAMÍNBÆTT
LÉTTMJÓLK
KVIKMYNDIR Ný heimildarmynd Ragnhild-
ar Steinunnar Jónsdóttur um manneskju
sem leiðréttir kyn sitt verður frumsýnd
7. ágúst, eða á fyrsta degi Gay Pride-
hátíðarinnar. Fjögur ár tók að vinna
myndina.
„Þetta er búið að vera alveg ótrúlega
erfitt verkefni og mikill rússíbani enda
er þetta gífurlega mikil tilfinningaleg
flækja sem manneskja fer í gegnum sem
er að leiðrétta kyn sitt. Samt sem áður
er þetta búið að vera rosalega lærdóms-
ríkt,“ segir Ragnhildur Steinunn um gerð
myndarinnar, sem nefnist Hrafnhildur.
Ragnhildur fylgdi í fjögur ár eftir mann-
eskju sem fer frá því að vera líffræðilegur
karl og breytist að lokum í konuna Hrafn-
hildi. Fylgst er með öllu ferlinu, þar á meðal
ferðum hennar til geðlæknis og hormóna-
meðferðinni. „Við fylgjumst með öllum þeim
sálarflækjum sem hún gengur í gegnum og
hvernig kerfið tekur henni. Þetta er bara upp
og niður og veggir og hindranir alls staðar,“
segir Ragnhildur. - fb / sjá síðu 34
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir frumsýnir nýja heimildarmynd 7. ágúst:
Mynd um íslenska transkonu
EFNAHAGSMÁL Nýi Landsbankinn
greiddi þrotabúi gamla bankans 73
milljarða króna í erlendum myntum
fyrir helgi. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins verður upphæð-
in mjög fljótlega greidd út til for-
gangskröfuhafa bankans. Eftir þá
greiðslu verður þrotabú Landsbank-
ans búið að greiða rúman helming
hinnar svokölluðu Icesave-skuldar.
Þegar samið var um greiðslur
nýja Landsbankans fyrir þær eign-
ir sem hann fékk frá þeim gamla
voru meðal annars gefin út verð-
tryggð skuldabréf sem gátu hækk-
að samhliða virði eignanna. Endur-
greiðslur á skuldabréfunum, sem
metin voru á um 290 milljarða
króna í lok mars síðastliðins, áttu
að hefjast í janúar 2014 og standa
fram í október 2018.
Fyrir helgi samdist um að nýi
Landsbankinn fyrirframgreiddi
fjórðung skuldabréfanna, alls um
73 milljarða króna, strax og frest-
aði þar með fyrsta gjalddaga fram í
apríl 2015. Upphæðin var öll greidd
í evrum, pundum og dollurum. Við
það sparar nýi bankinn sér umtals-
verðan fjármagnskostnað, enda
voru vextir á skuldabréfunum mun
hærri en sú ávöxtun sem hann fékk
á erlent laust fé sitt.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins verður upphæðin greidd
út til kröfuhafa gamla Landsbank-
ans mjög fljótlega og bætist þar
með við þá 594 milljarða króna
sem áður hafa verið greiddar út til
þeirra frá því í desember síðast-
liðnum. Þar með hefur þrotabúið
greitt rúmlega 50 prósent af for-
gangskröfum sínum, sem nema
samtals 1.323 milljörðum króna.
Af þeim eru kröfur tryggingar-
sjóðs innstæðueigenda í Hollandi
og Bretlandi vegna innlánasöfnunar
Landsbankans í þeim löndum, meðal
annars á Icesave-netreikninga, 86
prósent upphæðarinnar. Trygging-
arsjóður innstæðueigenda á Íslandi
(TIF) er í ábyrgð fyrir 674 milljörð-
um króna, eða helmingi allra sam-
þykktra forgangskrafna. Sú greiðsla
sem þrotabúið verður búið að greiða
út á næstu vikum er nánast jafnhá
og sem nemur ábyrgð TIF.
Samkvæmt eignamati slitastjórn-
ar Landsbankans frá því í mars síð-
astliðnum mun þrotabúið eiga fyrir
öllum forgangskröfum og eiga 122
milljarða króna umfram þær til að
greiða almennum kröfuhöfum.
- þsj
Hálf Icesave skuld greidd
Landsbankinn greiddi þrotabúi gamla bankans 73 milljarða fyrir helgi, einu og hálfu ári á undan áætlun.
Eftir að það fé verður afhent kröfuhöfum er rúmlega helmingur af Icesave-skuldinni svokölluðu greiddur.
milljarðar hafa
verið greiddir
kröfuhöfum. Á
næstunni verða 73 milljarðar
til viðbótar greiddir út.
594Í Reykjavík um helgar
Tom Cruise eyðir frítíma
sínum í Reykjavík á meðan
hann dvelur á Íslandi.
fólk 28
SKÝJAÐ Í dag verður fremur hæg
vestlæg átt víðast hvar. Lítilsháttar
úrkoma A-til og víða síðdegisskúrir
V-til. Hiti 5-15 stig, svalast NA-til.
VEÐUR 4
8
10
8
7
11
RAGNHILDUR STEIN-
UNN JÓNSDÓTTIR
Stelpurnar fara á EM
Íslenska kvennalandsliðið
í handbolta kemst
bakdyramegin inn á EM í
desember.
sport 30
Sigrar í jafnréttismálum
Kvenréttindadagurinn er
greyptur í sögu jafnréttis
kynjanna, segir Jóhanna
Sigurðardóttir.
skoðun 14
ALDREI FYRR FJÖGUR Fjögur farþegaskip komu til hafnar í Reykjavík fyrri part dags í gær og með þeim um þrettán þúsund manns. Árið
1990 komu tíu þúsund farþegar með skemmtiferðaskipum en árið 2000 voru þeir þrjátíu þúsund. Í sumar verða þeir ríflega hundrað þúsund. Þegar
hafa Faxaflóahafnir bókað 65 skipakomur fyrir sumarið 2013 og fjögur skip verða þá næst samtíða í höfn 9. júlí. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA