Fréttablaðið - 19.06.2012, Side 2
19. júní 2012 ÞRIÐJUDAGUR2
HVER ÞREMILLINN? Sendið okkur myndir og upplýsingar um sóðaskap, hirðuleysi, slysagildrur og fleira. ritstjorn@frettabladid.is
SPURNING DAGSINS
Alveg mátulegur
Heimilis
GRJÓNAGRAUTUR
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
VIÐSKIPTI Bræðurnir Ólafur og
Tyrfingur Leóssynir á bílaverk-
stæðinu Jeppasmiðjunni eiga fjöl-
marga trygga viðskiptavini af
höfuðborgarsvæðinu, sem leggja
á sig að keyra þónokkurn spöl eftir
sérfræðiþekkingu þeirra. Verk-
stæðið þeirra er ekki beinlínis í
alfararleið, en það er að finna á
Ljónsstöðum, um fimm kílómetra
suður af Selfossi. Þeir kannast þó
ekkert við það sjálfir að vera út úr.
„Þetta er styttri vegalengd held-
ur en stórborgarbúinn víðast hvar
ferðast til vinnu á hverjum degi,“
segir Ólafur og hefur nokkuð til
síns máls.
Jeppasmiðjan er sérhæfð í sjálf-
skiptiviðgerðum, varahlutasölu og
jeppaviðgerðum. Alls starfa um
tuttugu manns á verkstæðinu að
þeim bræðrum meðtöldum. Eig-
inkona Ólafs er fjármálastjóri,
eiginkona Tyrfings var þar líka
um tíma, auk þess sem aðrir fjöl-
skyldumeðlimir stíga inn eftir
þörfum. „Þessi er víst eitthvað
ættaður frá mér,“ segir Ólafur og
bendir á ungan mann sem stend-
ur einbeittur við sjálfskiptingu
úr jeppa og setur hana saman
eftir leiðbeiningum á tölvuskjá.
Hans starf er einkennandi fyrir
breytta tíma í þessum bransa, þar
sem tölvurnar leika stöðugt mikil-
vægara hlutverk. „Þegar við byrj-
uðum var nýjasta tækið í brans-
anum faxtæki. Í dag er þetta allt
orðið tölvustýrt.“
Þeir segja breytingarnar svo
örar að þeir hafi verið í stöð-
ugri endurmenntun alla tíð. Það
sé helst núna sem hægt hafi á,
enda lítið um bílainnflutning, þó
þeir hafi enn þá nóg að gera. „Við
erum mikið í sjálfskiptiviðgerð-
um, sem geta kostað allt að 600
þúsund krónur. Einhvern veginn
virðist fólki þó ekki ganga verr að
borga núna en fyrir hrun,“ segir
Ólafur.
Jeppasmiðjuna stofnuðu þeir
bræður árið 1990. „Við vorum
báðir í vinnu hjá Ræktunarsam-
bandinu uppi á Selfossi. Á þeim
árum var ekki unnið á veturna
svo við vorum alltaf eitthvað að
dútla í bílunum á sumrin. Svo var
þetta orðið þannig að maður mátti
ekki vera að því að hætta í hobbí-
inu til að byrja að vinna á haust-
in. Þá stofnuðum við fyrirtækið,“
rifjar Tyrfingur upp.
Þeir bræður búa báðir tveir
með sínum fjölskyldum á jörð-
inni. Þar býr einnig systir þeirra,
en hún er með búskap á bænum
sem þau ólust upp á. En fá þeir
bræður aldrei nóg af nærveru
hvor annars? „Þú sérð að við
stöndum hér hvor á sínum staðn-
um,“ segir Ólafur og Tyrfingur
botnar: „Eins langt í burtu hvor
frá öðrum og mögulegt er.“ Þeir
brosa samt báðir glettnislega og
sjá má að lítil alvara er að baki
orða þeirra. Þeir kunna enda vel
við sig á æskuslóðum, segja Suð-
urlandsundirlendið prýðilegan
stað til að búa á og sjá því enga
ástæðu til að flytja.
holmfridur@frettabladid.is
Hrunið hafði lítil
áhrif á viðskiptin
Bræðurnir Ólafur og Tyrfingur Leóssynir reka Jeppasmiðjuna sem er að finna
skammt suður af Selfossi. Þeir eiga stóran hóp viðskiptavina á höfuðborgarsvæð-
inu sem setur það ekki fyrir sig að keyra tugi kílómetra eftir þjónustu þeirra.
SAMSTÍGA BRÆÐUR Þeir Ólafur og Tyrfingur Leóssynir reka Jeppasmiðjuna á Ljóns-
stöðum við Selfoss, þar sem þeir ólust upp og hafa búið alla tíð. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ragnheiður, ertu nokkuð að
drukkna úr áhyggjum?
„Nei, ég er ekki að drukkna úr
áhyggjum en ég er á kafi í þessu
enn þá.“
Ragnheiður Ragnarsdóttir, sundkona
úr KR, er vongóð um að komast á
Ólympíuleikana þrátt fyrir að hafa enn
ekki náð lágmarkinu.
„Við erum ekki enn komin hringinn, en þess verður
ekki langt að bíða úr þessu. Þetta stingur í augað
en svona eru þessi blankheit“, segir Þorgrímur
Hallgrímsson, rekstrarstjóri hverfastöðvarinnar
á Njarðargötu, spurður um óslegnar umferðareyj-
ar við Lönguhlíð. Þar virðist sem grasið sé að hafa
betur en grenihríslurnar sem gróðursettar voru til
að prýða umhverfið.
Þorgrímur útskýrir að starfsfólk hverfisstöðvar-
innar sinni fyrst hreinsunarstörfum á opnum svæð-
um þar sem fólk kemur gjarnan saman. Verklagið sé
jafnframt með þeim hætti að byrjað sé austast á því
svæði sem hverfisstöðin sinnir og haldið sé vest-
ur úr. Þorgrímur segir að fyrsti dagur sláttar hjá
starfsmönnum á Njarðargötunni hafi verið 29. maí,
en svæðið sem stöðin sinnir er allur vesturbærinn og
miðbærinn frá Kringlumýrarbraut og vestur á Sel-
tjarnarnes. „Ég er með tuttugu krakka í slætti fyrir
allt þetta svæði. En auðvitað myndi ég vilja vera
fljótari að þessu eins og fyrir þremur, fjórum árum
þegar ég var með um 60 manns í vinnu“, segir Þor-
grímur. - shá
Langur hringur fyrir 20 manns
VIÐ LÖNGUHLÍÐ Grasið er að hafa betur en grenið á þessari
umferðareyju. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
MENNING Íslenskir og kanadískir
fornleifafræðingar vinna nú að
uppgreftri á Svalbarði við Þistil-
fjörð. Í sumar stendur til að grafa
upp öskuhaug í Hjálmarsvík í
Svalbarðstungu, en hann nær að
minnsta kosti yfir tímabilið frá
þjóðveldisöld og fram á þá fimm-
tándu.
Unnið hefur verið að rannsókn
á byggðarsögu og landnotkun í
Svalbarðstungu síðastliðin fjög-
ur sumur. Í ár fékkst þriggja ára
styrkur frá kanadíska ríkinu til
fornleifarannsókna á svæðinu,
en það eru fornleifafræðingar á
vegum Forn-
leifastofnun-
ar Íslands og
Laval-háskóla
í Quebec sem
s t a nd a a ð
rannsókninni.
Fundist
hafa níu tafl-
menn úr hval-
beini í ösku-
haugnum,
teningur, fer-
hyrnd plata úr hvalbeini sem
á hefur verið rituð krossmynd
og helmingur hringlaga hval-
beinsplötu með útskornu dýri.
„Þótt rannsóknin sé stutt á veg
komin er einsýnt að um geysi-
lega merkilegan fund er að ræða,
segir í tilkynningu frá Fornleifa-
stofnun Íslands.
Flett hefur verið ofan af tólf
fermetra holu og hefur fjöldi
dýrabeina komið í ljós. Vonast
er til þess að hægt sé að fá upp-
lýsingar um lífsviðurværi íbúa á
norðausturhorni landsins á þjóð-
veldisöld, með tilliti til mataræð-
is og gripa sem týnst hafa í rusli
eða verið fleygt.
- kóp
Þriggja ára styrkur frá Kanada til fornleifauppgraftar í Þistilfirði:
Grafið í öskuhaug frá þjóðveldisöld
GRAFIÐ Í HAUGINN Fornleifafræð-
ingar grafa í öskuhaug í Hjálmarsvík í
Svalbarðstungu. MYND/UGGI ÆVARSSON
KROSSMYND Á
HVALBEINSPLÖTU
EGYPTALAND, AP Mohammed Morsi
hefur lýst yfir sigri sem for-
seti Egyptalands. Kosningarnar
voru fyrstu forsetakosningarnar
í landinu eftir að Hosni Mubarak
var komið frá völdum fyrir sext-
án mánuðum.
Opinber
úrslit verða
ekki kunn fyrr
en á fimmtu-
dag. Nokkr-
um klukku-
stundum eftir
að Morsi, sem
var frambjóð-
andi Bræðra-
lags múslima,
lýsti yfir sigri
tilkynnti herráð landsins að það
hygðist standa við skuldbind-
ingar sínar og afhenda nýjum
forseta völdin fyrir lok mán-
aðarins. Þrátt fyrir þetta hafði
herráðið þegar gert nýja bráða-
birgðastjórnarskrá, sem gefur
hershöfðingjum mikil völd. Því
er ekki víst hversu mikil völd nýi
forsetinn mun hafa í raun.
- þeb
Herráðið tók völdin:
Segjast afhenda
forseta völdin
MOHAMMED
MORSI
LÖGREGLUMÁL Þrettán ára stúlka
varð valdur að umferðaróhappi
í Reykjavík í gær. Hún ók fjöl-
skyldubílnum, sem hún hafði
tekið ófrjálsri hendi, aftan á
annan bíl. Með henni í för var
stúlka á svipuðum aldri. Stúlk-
urnar, og fimm sem voru í hinum
bílnum, sluppu ómeiddir.
Stúlkurnar reyndu að komast
undan á hlaupum en vegfarendur
hindruðu för þeirra. Þær voru
fluttar á lögreglustöð. Haft var
samband við forráðamenn sem og
fulltrúa barnaverndaryfirvalda.
- shá
Reyndu að flýja af slysstað:
13 ára stal bíl
og olli óhappi
STJÓRNMÁL Rammasamningur rík-
isstjórnarinnar við framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins (ESB)
um svonefnda IPA-styrki var sam-
þykktur á Alþingi í gær. IPA-styrk-
irnir eru veittir vegna aðildar-
umsóknar Íslands að ESB og eru
hugsaðir sem fjárhagsaðstoð til
Íslands vegna umsóknarferlisins.
Afgreiðsla málsins var hluti af
samkomulagi stjórnar og stjórnar-
andstöðu um þinglok sem náðist
í gær. Alls 30 þingmenn greiddu
atkvæði með samningnum en 18
gegn honum. Fjórir þingmenn
greiddu ekki atkvæði en aðrir voru
fjarverandi. - mþl
Hluti af samningi um þinglok:
Staðfestu við-
töku IPA-styrkja
ESB IPA-styrkir eru veittir ríkjum sem sótt
hafa um ESB-aðild og eru hugsaðir sem
fjárhagsaðstoð vegna umsóknarferlisins.
Þegar við byrjuðum
var nýjasta tækið í
bransanum faxtæki. Í dag er
þetta allt orðið tölvustýrt.
ÓLAFUR LEÓSSON
ANNAR EIGENDA JEPPASMIÐJUNNAR
VIÐSKIPTI Alþjóðlega matsfyrir-
tækið Moody‘s hefur fært láns-
hæfiseinkunn finnska símarisans
Nokia í ruslflokk. Þetta er í annað
sinn á tveimur mánuðum sem
Moody‘s lækkar lánshæfismat
Nokia sem tilkynnti nýverið um
umfangsmiklar hagræðingarað-
gerðir í rekstri sínum. Mun fyrir-
tækið meðal annars loka verk-
smiðjum og segja upp 10 þúsund
starfsmönnum fyrir árið 2014.
Erfiðleikana í rekstri fyrirtæk-
isins má rekja til hratt lækkandi
markaðshlutdeildar á farsíma-
markaðnum sem hefur tekið hröð-
um breytingum síðustu ár. - mþl
Matsfyrirtækið Moody’s:
Skuldir Nokia
settar í ruslflokk