Fréttablaðið - 19.06.2012, Side 6

Fréttablaðið - 19.06.2012, Side 6
19. júní 2012 ÞRIÐJUDAGUR6 FISKBOLLUR OG PLOKKFISKUR 990 kr.kg FLOTTUR STÓR HUMAR 5.500 kr.kg ( 1 kg. í öskju ) HEITUR MATUR frá 11.30 - 13.30 og 17.00 - 19.00 Fiskbudinhofdabakka.is ( matseðill ) NIÐURSÖGUÐ LAMBALÆRI 1.390 kr.kg GRILLSAGAÐ LAMBAKJÖT 1.100 kr.kg Hélst þú upp á þjóðhátíðardag- inn með einhverjum hætti? JÁ 36,6% NEI 63,4% SPURNING DAGSINS Í DAG: Vilt þú að sá tími sem einn ein- staklingur getur setið í embætti forseta Íslands verði takmarkaður? Segðu þína skoðun á visir.is SAMFÉLAGSMÁL Hámarksbætur fyrir miska sem ríkissjóður greiðir til dæmis þolendum kynferðisbrota og hafa verið óbreyttar í sextán ár verða hækkaðar úr 600 þúsund krónum í þrjár milljónir króna, samkvæmt lagabreytingu sem á að taka gildi um næstu mánaðamót. Hingað til hafa þolendur kynferð- isbrota sjálfir orðið að innheimta mismuninn á þeirri upphæð sem þeim var dæmd og bótunum sem ríkissjóður greiddi. Samkvæmt nýju lögunum geta þeir sem fá dæmdar bætur fengið aðstoð ríkissjóðs við að innheimta mismuninn í þeim tilvikum sem greiðsla ríkissjóðs nægir ekki fyrir dæmdum bótum. „Ég hugsa að í mörgum tilfellum hafi innheimta aldrei verið reynd. Það er erfitt hugarfarslega að standa í því. Það þarf að ráða lög- mann og innheimtan óviss,“ segir Halldór Þormar, starfsmaður bóta- nefndar vegna þolenda afbrota. Hann tekur fram að ríkissjóði verði heimilt að taka gjald vegna aðstoðar við innheimtu. „Mér þykir líklegt að innheimtan verði gegn málamyndagjaldi.“ Hámarksbætur fyrir líkams- tjón, þar með talið fyrir varan- legan miska og varanlega örorku, verða hækkaðar úr 2,5 milljón- um króna í fimm milljónir króna. Hvorki verða þó greiddar bætur fyrir varanlegan miska nema hann sé að lágmarki fimm prósent né varanlega örorku nema hún sé að lágmarki 15 prósent. Er það í sam- ræmi við það sem tíðkast í skaða- bótalöggjöf til dæmis í Danmörku og Noregi, að sögn Halldórs. Í frumvarpinu, sem samþykkt var í síðustu viku, er bent á að ekki hafi svo kunnugt sé verið farið fram á bætur vegna varanlegra andlegra afleiðinga kynferðisbrota þótt ætla megi að slík tjón séu í mörgum til- vikum veruleg. „Rannsóknir í Dan- mörku sýna að nokkur hluti kvenna sem orðið hefur fyrir kynferðisof- beldi fellur brott af vinnumarkaði,“ greinir Halldór frá. Markmiðið með lagabreyting- unum er að bæta frekar meira tjón en það sem minna er. Miðað við þau mál sem bótanefnd afgreiddi á 36 mánaða tímabili frá 2009 til 2011 er áætlað að aðeins um fimm prósent þeirra sem gera kröfu um varan- legan miska muni ekki ná lágmark- inu. Miðað við kröfur um bætur fyrir varanlega örorku hefur eink- um minni háttar tjón verið bætt en þeir sem orðið hafa fyrir meira tjóni hafa setið með það óbætt. Ríkissjóður hefur árlega greitt 130 til 160 milljónir króna til þol- enda ofbeldisbrota. Hækkun heild- arútgjalda vegna breytinganna er áætluð 9 til 10 milljónir króna. ibs@frettabladid.is Bætur hækkaðar til þolenda ofbeldis Ríkissjóður greiðir þolendum kynferðisbrota þrjár milljónir króna í hámarksbæt- ur í stað 600 þúsunda. Hámarksbætur fyrir líkamstjón hækka úr 2,5 milljónum í 5 milljónir. Aðstoð við innheimtu mismunar dæmdra bóta og greiðslu ríkissjóðs. HÆRRI BÆTUR Um næstu mánaðamót hækka bætur til þolenda ofbeldis. Þær hafa verið óbreyttar í sextán ár. HEILBRIGÐISMÁL Gelið sem notað var til fyllinga í frönsku PIP-brjósta- púðunum er ekki eitrað. Lekatíðni púðanna er þó helmingi meiri en hjá öðrum framleiðendum. Þetta eru lokaniðurstöður sér- fræðihóps á vegum breskra heil- brigðisyfirvalda sem skoðuðu um 240 þúsund brjóstafyllingar af mörgum gerðum sem notaðar eru í Englandi og voru settar í um 130 þúsund konur. Einnig voru notað- ar upplýsingar frá um 5.600 brott- námsaðgerðum í landinu. Í lokaskýrslu hópsins segir að efnasamsetning gelsins í PIP-púð- unum valdi ekki óafturkræfum skaða á heilsufari kvenna, þó það leki út úr fyllingunum. Þó hefur óvissan valdið mörgum kvennanna mikilli streitu og kvíða og segir for- maður rannsóknarhópsins í samtali við BBC slíkt vissulega geta flokk- ast undir langtíma heilsubrest, þó hann komi ekki til af eitrun. Um 47 þúsund konur í Bret- landi hafa fengið PIP-púða í brjóst sín. Hér á landi er talið að fjöldi kvennanna sé yfir 400, en eins og kunnugt er hefur velferð- arráðuneytið boðið 330 konum að láta fjarlægja púðana á Landspít- alanum fyrir lágmarkskostnað. Um hundrað konur undirbúa nú málaferli á hendur Jens Kjart- anssyni lýtalækni, en hann kom PIP-púðunum fyrir í langstærst- um hluta kvennanna hér á landi. - sv Lokaskýrsla breskra heilbrigðisyfirvalda um niðurstöður rannsókna á PIP-púðum: PIP-púðar lekir en ekki eitraðir PÚÐAR FJARLÆGÐIR Bresk heilbrigðisyfirvöld hafa komist að þeirri niðurstöðu að PIP-púðarnir séu ekki krabbameinsvaldandi þó þeir leki. NORDICPHOTOS/AFP VÍSINDI Venjuleg bankarán gefa lítið í aðra hönd og geta vart talist sérlega arðbær sé tekið tillit til áhættunnar af því að nást. Þetta er niðurstaða tveggja breskra hag- fræðinga sem hafa rannsakað arð- semi bankarána. Í meðalbankaráni hafa ræningj- arnir 12.707 pund, jafngildi um 2,5 milljóna íslenskra króna, upp úr krafsinu á mann. Í ljósi þess að meðallaun á almennum vinnu- markaði á Íslandi voru 4,4 millj- ónir á ársgrundvelli á síðasta ári framfleytir bankarán ræningjun- um því ekki einu sinni í eitt ár. Þá kemur fram í rannsóknum tvímenninganna að um þriðjungur allra bankarána mistekst. Þá nást ræningjarnir í þrjátíu prósentum tilvika þótt ránið takist. Það þýðir að illa fer fyrir ræningjunum í um helmingi allra bankarána. - mþl Ný rannsókn á bankaránum: Bankarán gefa lítið í aðra hönd Stálu olíu og steypumótum Lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning um stuld á steypumótum um helgina. Flytja átti steypumótin en voru þau þá horfin. Þá var tilkynnt um stuld á olíu af vinnutækjum á vinnusvæði við Reykjanesvirkjun. Salman nýr krónprins Salman prins hefur verið gerður krónprins í Sádi-Arabíu eftir að Nayef bróðir hans lést. Salman er 76 ára og er talinn frjálslyndari en eldri bróðirinn. Ekki er þó gert ráð fyrir því að nýi krónprinsinn breyti nokkru. SÁDI-ARABÍA Ölvaður á torfæruhjóli Karlmaður á fertugsaldri var stöðv- aður af lögreglunni á Suðurnesjum þegar hann ók torfæruhjóli sínu um Sandgerðisveg á 122 kílómetra hraða. Þar er leyfilegur hámarkshraði 90. Maðurinn var ölvaður og var því handtekinn og sviptur ökuréttindum. LÖGREGLUFRÉTTIR BJÖRGUN Rúmlega fertugur karl- maður og tólf ára gömul dótt- ir hans voru hætt komin þegar bát þeirra hvolfdi á Borgarfirði skammt frá Borgarnesi á sunnu- dagskvöld. Stúlkan náði að koma sér upp á sker og beið þar björg- unar. Faðir hennar rak hins vegar rúmlega tíu kílómetra út fjörðinn áður en áhöfn TF-LÍF, björgunar- þyrlu Landhelgisgæslunnar, kom honum til bjargar þremur tímum eftir að hann lenti í sjónum. Henning Þór Aðalmundsson, sig- og stýrimaður hjá LHG, lýsti því í viðtali við fréttastofu stöðv- ar 2 í gærkvöldi að maðurinn hafi verið orðinn mjög kaldur og hrak- inn þegar hann náðist upp í þyrl- una, en hann var fluttur rakleiðis á Landspítalann. Að hans mati þarf ekki að velkjast í vafa um það að flotgalli mannsins og dóttur hans urðu þeim til lífs. TF-LÍF fór í loftið frá Reykja- vík klukkan 22.37 og hafði fundið manninn aðeins rúmum hálftíma síðar. Stúlkuna og bátinn hafði borið upp á Borgareyjar svokallað- ar þar sem maður, sem einnig var á skemmtisiglingu, fann hana. Hún var ágætlega á sig komin. - shá Bjargaðist eftir að hafa rekið tíu kílómetra með stríðum straumi Borgarfjarðar: Ótrúleg björgun á Borgarfirði GÆSLAN AÐ STÖRFUM Eftir að hafa bjargað telpunni hófst leitin að föður hennar, en hann hafði rekið rúma tíu kílómetra þegar hann fannst. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM KJARAMÁL Stjórn BSRB hefur sent frá sér ályktun þar sem farið er fram á að félagsmenn njóti sömu launaleiðréttinga og þingmenn, ráðherrar, embættismenn og margir sveitarstjórnarmenn hafa fengið undanfarið. Í kjölfar ákvörðunar kjararáðs um að draga launalækkanir til baka í desember var fjármálaráð- herra sent bréf þar sem óskað var eftir sambærilegri launaleiðrétt- ingu fyrir félagsmenn BSRB. Í ályktuninni er sú krafa enn frem- ur ítrekuð. - shá Stjórn BSRB ályktar: Launaleiðrétt- ingar krafist KJÖRKASSINN Rannsóknir í Dan- mörku sýna að nokkur hluti kvenna sem orðið hefur fyrir kynferðis- ofbeldi fellur brott af vinnu- markaði. HALLDÓR ÞORMAR STARFSMAÐUR BÓTANEFNDAR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.