Fréttablaðið - 19.06.2012, Síða 15

Fréttablaðið - 19.06.2012, Síða 15
ÞRIÐJUDAGUR 19. júní 2012 Það er áhugavert að fylgjast með þeirri umræðu sem verið hefur um samtengda rafræna sjúkraskrá undanfarin ár og seinaganginn í því verkefni. Við höfum um nokkurt skeið verið með því sem næst sama sjúkra- skrárkerfið á öllum heilsugæslu- stöðvum, heilbrigðisstofnunum og sjúkrahúsum hérlendis, þá hafa einnig sérfræðilæknar og einkareknar læknastöðvar verið að notast við sama kerfið en það heitir Saga. Ég ætla ekki að fara sérstak- lega ofan í kosti og galla þessa kerfis, en staðreyndin er sú að menn eru ekki allir sammála um ágæti þess. Það sem hins vegar er ótvíræður kostur er að það eru allir að vinna meira og minna í sama kerfinu sem gerir okkur auðvelt fyrir að tengja það saman. Það hafa lengi verið uppi hugmyndir um að bjóða út nýtt kerfi og skipta en einnig að reyna að nýta sem best það sem fyrir er. Þarna skiptast menn í fylkingar aftur svo það er flókið úrlausnarefni fyrir heilbrigð- isyfirvöld að komast að niður- stöðu, að minnsta kosti hefur það ekki tekist enn og óljóst hvenær verður. En á meðan þessu stendur má velta því fyrir sér hvort öryggi sjúklinga geti verið ógnað þar sem upplýsingar um sjúklinga geta verið býsna mikilvægar og á stundum er sjúklingurinn ekki fær um að veita þær sjálfur, t.d. þegar hann er meðvitundarlaus í kjölfar lyfjaeitrunar þar sem hann hefur reynt að svipta sig lífi, en það getur verið mannbjörg að vita hvaða lyf viðkomandi inn- byrti, eða jafnvel eftir slys eða alvarleg veikindi. Það þarf hins vegar ekki að vera svo drama- tískt heldur getur sjúklingur- inn einfaldlega verið að biðja um endurnýjun reglubundinna lyfja sinna eða leita eftir rannsóknar- svörum. Þarna myndi samtengd rafræn sjúkraskrá bæta verulega úr og hjálpa læknum og öðru heilbrigð- isstarfssfólki að glíma við þessi verkefni og leysa þau á farsælan hátt, fyrir utan þann geysilega sparnað sem felst í að forða tví- verknaði. Umræða um persónuvernd og ýmis önnur tæknileg og hags- munatengd atriði hefur tafið framgang þessa máls á lands- vísu, en þó hefur tekist í nokkr- um heilbrigðisumdæmum að klára þessa hugsun og tengja saman þjónustuaðila. Þar má til dæmis nefna Norðurland, Vestur land og Austurland. Íbúar á þessum svæðum geta treyst því að læknir þeirra geti nálgast upplýsingar um þá frá mismunandi stöðum innan hvers umdæmis fyrir sig til að geta veitt bestu mögulegu heilbrigð- isjónustu sem völ er á hverju sinni. Á Norðurlandi get ég sem læknir séð rannsóknar svör, lyfjaútskriftir og samskipti við aðra lækna um mína skjólstæð- inga milliliðalaust í gegnum hið rafræna fyrirkomulag. Þetta getur skipt sköpum og sér- staklega þegar um er að ræða alvarleg veikindi eða jafnvel svo einfaldan hlut sem endurnýjun lyfja viðkomandi. Þar sem ég er búsettur á höf- uðborgarsvæðinu get ég hins vegar verið þess fullviss að engin slík samskipti eru milli heilsugæslu minnar, sérfræði- læknisins eða Landspítala – háskólasjúkrahúss sem er auð- vitað forkastanlegt og reyndar má segja með öllu ólíðandi að sjúklingar, aðstandendur og ekki síst heilbrigðisstarfsfólk skuli sætta sig við slíka mis- munum sem í þessu felst. Þessu þarf að breyta og það hratt! Öryggi sjúklinga – dæmisaga úr kerfinu Teitur Guðmundsson læknir HEILSA Umræða um persónuvernd og ýmis önnur tæknileg og hagsmunatengd atriði hefur tafið framgang … Árið 1981 birtist stutt grein í Árbók Hins íslenzka forn- leifafélags. Hún lét ekki mikið yfir sér en var þó að mörgu leyti tímamótaverk og markaði upphaf á nýrri sýn á landslag og minjar. Í henni var skrá Kristjáns Eldjárns yfir örnefni og sýnilegar fornleif- ar á Bessastöðum á Álftanesi. Þar á meðal var hinn frægi Skans en líka túngarður, sauðaborg, skot- hús og jafnvel nafnlausar minj- ar sem engum sögum fór af. Slík heildarskráning minja á einni jörð var nýmæli en Kristján benti á að minjaskráning samkvæmt nýjum viðhorfum væri mjög brýn og væri vænlegt að gera stefnuskrá um þetta mál, enda væri mörgum stöðum hætta búin því aðeins fáar, útvaldar minjar væru friðlýstar með lögum. Með nýjum þjóðminjalögum árið 1989 var stigið mikið framfaraskref þegar allar fornleifar á Íslandi voru friðaðar. Allt fram til dagsins í dag hefur fornleifaskráning, ekki ósvipuð þeirri sem Kristján gerði á Bessastöðum fyrir rúmum þrjá- tíu árum, vaxið hægt og sígandi en skv. núgildandi þjóðminjalögum er skylt að fornleifaskráning fari fram í tengslum við skipulagsgerð. Aðal- skipulag fæst þannig aðeins sam- þykkt ef fyrir liggur skráning forn- leifa. Þótt vel hafi gengið er enn mikið starf óunnið og hefur verið giskað á að meira en 60% fornleifa á Íslandi séu enn óskráð. Nú liggur fyrir Alþingi frum- varp til nýrra laga um menningar- minjar og stefnir í þriðju umræðu þegar þetta er ritað. Í 16. grein er gerð breyting á ákvæði um forn- leifaskráningu. Samkvæmt því þarf ekki að skrá fornleifar á vettvangi nema þar séu fyrirhugaðar fram- kvæmdir af einhverju tagi. Forn- leifaskráning er þar með orðin að heldur leiðinlegu og óhjákvæmilegu formsatriði sem þarf að afgreiða áður en framkvæmdaleyfi er gefið út eða deiliskipulag afgreitt. Í þessu er fólgið bæði metnaðarleysi og mikill misskilningur. Fornleifa- skráning er ekki bara nauðsyn- legt tæki til að koma í veg fyrir skemmdir á minjum. Fornleifar eru menningarverðmæti ekki síður en t.d. handrit, örnefni og þjóðsögur og heildarskráning á þeim ætti að vera metnaðarmál hjá íslenskum stjórn- völdum. Fornleifar eru gríðarlega mikilvægur hluti af menningarsögu þjóðarinnar, þær eru víða ráðandi þáttur í landslagi og þær veita nýja innsýn í sögu menningar og búskap- arhátta. Á síðasta ári kom út fyrsta almenna yfirlitsritið um íslensk- ar fornleifar, bók sem ég skrifaði ásamt fleirum og heitir Mannvist - sýnisbók íslenskra fornleifa. Án fornleifaskráningar hefði ekki verið grundvöllur fyrir ritun hennar. Það er óskiljanleg skammsýni að grafa undan skráningu menningarverð- mæta með lagasetningu. Þvert á móti ætti ríkið að beita sér fyrir því að heildarskráning fornleifa í öllu landinu sé tiltæk. Stefnuskrá fyrir fornleifaskráningu á Íslandi óskast. Fornleifaskráning: Stefnuskrá óskast Menning Birna Lárusdóttir fornleifafræðingur Það er óskiljanleg skammsýni að grafa undan skráningu menningarverðmæta með lagasetningu. Frá kr. 34.950 Ótrúlegt tilboð - Allra síðustu sætin Heimsferðir bjóða nú einstakt tilboð á síðustu flugsætunum til Mallorca 26. júní í 14 nætur. Þú kaupir 2 flugsæti en greiðir aðeins fyrir 1. Við bjóðum þér fjölbreytta gistingu meðan á dvölinni stendur. Verð kr. 34.950 Flugsæti með sköttum, m.v. 2 fyrir 1 tilboð 26. júní í 14 nætur. Netverð á mann. Verð áður kr. 69.900. Verðdæmi fyrir gistingu með allt innifalið: Kr. 65.100 á mann m.v. tvo fullorðna og tvö börn á Palma Bay hótelinu 26. júní í 14 nætur með allt innifalið. Verð á mann í tvíbýli kr. 95.800 í 14 nætur með allt innifalið. Allra s íðustu sætin 2 fyrir 1 til Mallorca 26. júní Forsetakosningar 30. júní 2012 Kjörstaðir í Reykjavík Í Reykjavíkurkjördæmi suður: Í Reykjavíkurkjördæmi norður: Hagaskóli Ráðhús Hlíðaskóli Laugardalshöll Breiðagerðisskóli Íþróttamiðstöðin í Grafarvogi Ölduselsskóli Borgaskóli Íþróttamiðstöðin Austurbergi Ingunnarskóli Árbæjarskóli Klébergsskóli Ingunnarskóli Kjörfundur hefst laugardaginn 30. júní kl. 9.00 árdegis og lýkur kl. 22.00. Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á því að fá ekki að greiða atkvæði. Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi suður mun hafa aðsetur í Hagaskóla á kjördegi og þar mun talning atkvæða hefjast að loknum kjörfundi kl. 22.00. Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi norður mun hafa aðsetur í Ráðhúsi Reykjavíkur á kjördegi og þar mun talning atkvæða hefjast að loknum kjörfundi kl. 22.00. Kjörskrár í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður Kjörskrár í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður vegna forsetakosninga 30. júní nk. liggja frammi almenningi til sýnis í Ráðhúsi Reykjavíkur frá 20. júní nk. fram á kjördag. Vakin er athygli á því að hægt er að fá upplýsingar um hvar kjósendur eru á kjörskrá á vefnum www.kosning.is. Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra eru á kjörskrá. Athugasemdum vegna kjörskráa í Reykjavíkurkjördæmum skal beint til skrifstofu borgarstjórnar, Ráðhúsi Reykjavíkur, sími 411 4700, netfang kosningar@reykjavik.is. Þar eru jafnframt veittar nánari upplýsingar. Borgarráð úrskurðar um athugasemdir vegna skráningar í kjörskrá. Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi suður Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi norður Skrifstofa borgarstjórnar Save the Children á Íslandi

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.