Fréttablaðið - 19.06.2012, Síða 34

Fréttablaðið - 19.06.2012, Síða 34
19. júní 2012 ÞRIÐJUDAGUR22 BAKÞANKAR Erlu Hlynsdóttur ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Pondus Eftir Frode Overli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta Það er opinberlega byrjað að lýsa eftir honum! Í útvarpinu, á netinu,í blaðinu og hjá Interpol! Og Fríða er búin að gera plaköt! Þá verðum við bara að bíða og vona það be... Týndur hundur, já? í lítilli flugvél? Það hljómar kunnuglega! Er hann að fljúga yfir þér núna? Hvar ertu? Thank you god! Á Reyðarfirði? Einmitt... For nothing! Hvað er í kassanum Jeremy? Ég var að fá mér nýja skó. Má ég sjá? Auðvitað. Ég fer og næ í hinn. Hér með hefur matvörureikn- ingur mánaðarins tvöfaldast. Væntanlegt: „Allsberir á ísnum“ Hvað er allsber? Jæja, beygðu hnén og slappaðu af í öxlunum.... Pabbi!! Ég kubba mér til skemmtunar og gleði! Ég þarf ekki þjálfara! Viltu ekki verða best í að kubba? Nei! Ég vil bara hafa gaman! Hvurslags hugsunar- háttur er það? LÁRÉTT 2. ílát, 6. samanburðart., 8. hesta- skítur, 9. aum, 11. ónefndur, 12. táknmynd, 14. skýli, 16. í röð, 17. fiskilína, 18. upphaf, 20. tvíhljóði, 21. engi. LÓÐRÉTT 1. mælieining, 3. bardagi, 4. fugl, 5. fag, 7. kennslubók, 10. ar, 13. holu- fiskur, 15. innyfli, 16. geislahjúpur, 19. í röð. LAUSN LÁRÉTT: 2. vasi, 6. en, 8. tað, 9. sár, 11. nn, 12. ímynd, 14. skáli, 16. áb, 17. lóð, 18. rót, 20. au, 21. akur. LÓÐRÉTT: 1. desí, 3. at, 4. sandlóa, 5. iðn, 7. námsbók, 10. ryk, 13. nál, 15. iður, 16. ára, 19. tu. Vinkonu minni hefur verið nauðgað þrisvar. Hún lagði aldrei fram kæru. Hún er lesbía. Einn af þeim sem nauðg- uðu henni var æskuvinur hennar. Hann vissi að hún var lesbía en var samt sann- færður um að ef hún fengi alvöru karl- mann inn í sig þá myndi hún skipta um skoðun. Hún var áfengisdauð þegar hann tók þessa ákvörðun. Þegar hún vaknaði með hann inni í sér fannst henni sem heimur hennar hefði hrunið. Hún hætti að tala við „vin“ sinn. En hún vissi að hann var góður gaur og lagði ekki fram kæru. Hún vissi að hann meinti þetta ekki. ÉG VAR um tvítugt þegar ég húkkaði mér far eftir djammið. Þeir voru tveir sem stoppuðu, afskaplega indælir. Annar keyrði og hinn sat aftur í hjá mér. Þegar hann reyndi að nauðga mér fór ég að gráta. Hann stoppaði samt ekki og ég man hvað ég var hissa. Ég var svo hissa á því að einhver vildi ríða grátandi stelpu. Á meðan hann var að klæða mig úr buxunum reyndi ég að finna símann minn. Ég barðist með fót- unum en leitaði að símanum mínum því í einhverjum veruleika sá ég fyrir mér að ég myndi geta hringt á hjálp. Ég kýldi hann og sparkaði, ég opnaði hurðina á bílnum á meðan við vorum á ferð og ég reyndi að henda mér út úr bílnum á allt of mikilli ferð. Það endaði með því að bíl- stjórinn stoppaði og ég hljóp út. Honum hefur væntanlega verið annt um bílhurð- ina. Aldrei sagði ég mínum nánustu frá þessu. Þeim fannst ég óábyrg að týna símanum mínum. ÞAÐ VAR löngu áður sem ég fór á mína fyrstu útihátíð. Þar hitti ég stelpu sem ég kannaðist við. Hún var í fylgd nokkurra drengja. Hún var full. Ég kastaði kveðju á hana og hélt áfram. Ég gleymi því aldrei þegar ég heyrði að henni hefði verið nauðgað af átta karlmönnum. Mér fannst ég hafa átt að koma henni til bjargar. En þetta var ekki mér að kenna. Þetta var ekki henni að kenna. Þetta voru þeir, sem ákváðu saman, átta drengir, að nauðga einni stelpu. ÞETTA ERU bara svona örfá dæmi. Hvað þekkir þú marga sem hefur verið nauðgað? P.S.: Kunningjakona mín sagði mér um daginn að hún þekkti engan sem hefði verið nauðgað. Ég sagði henni að hún vissi þá bara ekki af því. Bara örfá dæmi

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.