Fréttablaðið - 19.06.2012, Síða 36

Fréttablaðið - 19.06.2012, Síða 36
19. júní 2012 ÞRIÐJUDAGUR24 24 menning@frettabladid.is Á miðvikudag opnar Hrafnkell Sigurðsson myndlistarmaður sýningu í Galtarvita á Vestfjörð- um. Opnun sýningarinnar verður fagnað við varðeld og súpu á þess- um lengsta degi ársins, sumarsól- stöðum. Hrafnkell hefur dvalið einsam- all í faðmi náttúrunnar á Galtar- vita um nokkra hríð, en sýninguna vann hann alfarið á staðnum. Hann lýsir vinnufyrirkomulag- inu, sem er honum nýlunda, sem eins konar klausturvist, eins og segir í tilkynningu um viðburð- inn. Segir hann tilhugsunina um einsemdina, að horfa niður úr fjallinu út á óendanlegt hafið, sem hvelfist um jarðarkúluna, vekja upp tilfinningu um að súpa sálrænar hveljur. Á sjötta tug listamanna hefur dvalið og unnið að sinni listsköp- un á Galtarvita síðan núverandi landeigendur keyptu jörðina og vitann, nokkrum árum eftir að vitavarsla var þar formlega lögð niður, árið 1996. Leiðin út að Galtarvita er greiðust sé gengið úr Skálavík. Farið er frá Bolungarvík, ekið í Skálavík og gengið þaðan um Bakkadal og um Bakkaskarð. Gott er að reikna með um þrem- ur til fjórum tímum í gönguna, sé farið yfir á þægilegum hraða. Á staðnum er boðið upp á tjaldstæði eða svefnpokapláss og algert net-, síma- og tímaleysi. Sýningin stendur til 7. ágúst 2012. - hhs Sýpur sálarhveljur í Galtarvita HRAFNKELL Á GALTARVITA Sýning Hrafnkels Sigurðssonar verður opnuð í Galtarvita á sumarsólstöðum. Gestir þurfa að ganga þriggja tíma leið til að vera þar viðstaddir. Frystiklefinn er leikhús á Rifi á Snæfellsnesi þar sem Kári Viðarsson leik- ari hefur komið upp góðri aðstöðu. Um þessar mund- ir sýnir leikhúsið Trúðleik sem hefur fengið lof gagn- rýnenda. Flestir gestir leik- hússins eru af höfuðborgar- svæðinu. Í leikhúsinu Frystiklefanum á Rifi á Snæfellsnesi er um þessar mundir sýndur Trúðleikur í leikstjórn Hall- dórs Gylfasonar. Kári Viðarsson rekur leikhúsið í húsi þar sem eitt sinn var fiskvinnsla. Hann er alinn upp á Hellissandi og starfar því í heimabyggð sinni á Snæfellsnesi. Trúðleikur er þriðja leiksýningin sem sett er á svið í Frystiklefanum. Ásamt Kára leikur Benedikt Karl Gröndal í sýningunni sem hefur fengið mikið lof meðal gagnrýn- enda. Kári útskrifaðist frá Rose Bru- ford College í Lundúnum árið 2009 og starfaði þar í eitt ár eftir útskrift. Þá kom hann heim og fékk hugmyndina að Frystiklefanum. „Ég var að vinna hérna þegar ég var fjórtán ára,“ segir Kári. „Húsið hefur verið nýtt sem geymsla síðan um aldamótin. Fólkið sem á húsið geymdi bara fullt af dóti hérna svo ég spurði hvort ég mætti ekki nýta það undir leikhús. Það var vel tekið í það og vinna hófst strax við að breyta því í leikhús.“ Gestirnir aðallega úr borginni Frystiklefinn hefur því verið starf- ræktur í þrjú sumur. Í leikhúsinu eru tvö leikrými auk forsals sem hentar vel undir tónleikahald og þess lags skemmtanir. „Stærra leikrýmið sem við erum með er alveg 240 fermetrar,“ bendir Kári á. Fyrsta sýningin fór fram í minna rýminu þar sem eitt sinn var frysti- klefi fiskvinnslunnar sem starf- rækt var í byggingunni. „Aðsóknin er mjög góð. Við erum núna með sæti fyrir sextíu manns,“ segir Kári. „Við höfum verið með fleiri sæti, áður en við minnkuðum rýmið. Þá voru sæti fyrir níutíu. Við getum auðvitað haft mikið fleiri, en hér er svo lítill markaður fyrir leiksýningar að ef við myndum full- nýta rýmið með 100 eða 200 sætum gætum við kannski bara fyllt eina sýningu.“ Uppselt var á sýningu Trúð- leiks á sunnudag og næst er sýnt á fimmtudag. Frumsýnt var þann 1. júní. „Mikill meirihluti gest- anna á sýninguna sem við erum með núna er af höfuðborgarsvæð- inu. Hingað ekur fólk til að kíkja í leikhúsið. Það fer svo um svæðið og tekur hringinn um Nesið.“ Spurður hvort hann höfði til ferðamanna sem sækja Snæfells- nesið segir Kári að það sé ekki gert með markvissum hætti „Við erum aðallega að stíla inn á íslenska ferðamenn. En við látum starfsfólk- ið á tjaldstæðunum og á hótelunum hér í kring vita. Það vita allir þjón- ustuaðilar af þessu og segja ferða- fólki af því.“ „Við höfum ekki skipulagt sér- stakar ferðir hingað í leikhúsið. En það er alltaf einhver slæðingur af túristum sem kíkir hingað inn.“ Fjölskylduvæn sýning Kári segir sýninguna höfða til allra aldurshópa. Hann hafi þó rekið sig á að vera með örlítið blóðuga sýningu í fyrrasumar. „Þetta er mjög fjölskylduvæn sýning og hentar fyrir alla aldurs- hópa,“ segir Kári. „Síðast vorum við með sýningu sem var eiginlega bönnuð börnum. Góðir hálsar var svolítið blóðug enda fjallaði hún um Axlar-Björn, einhvern þekkt- asta raðmorðingja Íslandsögunnar.“ Trúðleikur verður sýndur fram í miðjan júlí en stefnt er að því að ljúka sýningum þegar bæjarhátíð á Hellissandi fer fram. „Við sýnum aðallega um helgar og ætlum að klára þessa sýningu á bæjarhátíð hér á Hellissandi,“ segir Kári. „Á Sandaragleðinni 13. til 15. júlí verð- um við með þrjár sýningar, fimmtu- dag, föstudag og laugardag.“ Miklar framtíðaráætlanir Í Frystiklefanum leynast mikl- ir möguleikar. Kári á sér þann draum að innrétta húsið svo hægt sé að bjóða leikurum og leiklistar- nemum upp á fullkomna æfingaað- stöðu, með svefnplássi, leikrýmum og öðrum vistarverum. Þannig sér hann fram á að geta haft starfsemi í húsinu á veturna. „Þá geta leikarar komist út úr sínu reglulega umhverfi,“ segir Kári. birgirh@frettabladid.is Frystiklefinn undir Jökli GENGUR VEL Kári er hér með hundi sínum Sólu en hann hefur umbreytt húsi gamallar fiskvinnslu á Rifi í leikhús. Hann vann í fiskvinnslunni þegar hann var fjórtán ára. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FYRIR HELGI hófst bókauppboð Bókarinnar á Klapparstíg og Gallerí Foldar á vefnum Uppboð.is. Alls verða 115 bækur úr einkabókasafni Lúdviks Storr, ræðismanns og stórkaupmanns í Reykjavík, boðnar upp. Bækurnar eru margar hverjar áritaðar, flestar í vönduðu skinnbandi og bundnar af bókbandsmeisturum. Uppboðið stendur til 8. júlí. Heilsueldhúsið KEEPING UP WITH THE KARDASHIANS E! ENTERTAINMENT ER Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á STOD2.IS

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.