Fréttablaðið - 21.06.2012, Blaðsíða 27
MIÐNÆTURHLAUP
Tuttugasta miðnæturhlaup Suzuki fer fram í Laugardalnum annað
kvöld og hefst kl. 21.20.
Hlaupið verður hálft maraþon í fyrsta sinn og nýjar hlaupaleiðir
eru 5 og 10 kílómetrar. Fjölmargir hlaupa á hverju ári enda
einstök stemning að hlaupa í fallegu umhverfi Laugar-
dalsins og nágrenni seint að kvöldi í miðnætursól.
Óskabönd eru handunnir íslenskir skartgripir úr náttúrulegum orkusteinum, silfri, eðalmálmi,
hrauni, kristöllum og skrautsteinum.
Þeir eru hannaðir af Hlín Ósk Þorsteins-
dóttur. „Mér finnst ofboðslega gefandi
og skemmtilegt að sjá skartgripina
mína verða til og hugmyndirnar eru
óþrjótandi,“ segir Hlín Ósk.
Hún býr til hálsfestar, bæði stuttar
og síðar, armbönd fyrir konur, karla
og börn, bæði einföld og tvöföld, og
eyrnalokka með ekta silfurkrókum.
Hver gripur er einstakur og kemur í
gjafaöskju með lesningu um orkuna sem
hver gripur býr yfir. „Mér finnst orku-
steinarnir ofsalega fallegir og svo hef
ég mikla trú á að þeir geri okkur gott,
bæði fyrir líkama og sál. Ég trúi að þeir
jarðtengi okkur, verndi okkur fyrir raf-
bylgjum og hjálpi okkur að vera skipu-
lögð og jákvæð. Ég hef lesið mér mikið
til um orkusteina og er oft spurð að því
hvaða orku hver steinn gefi. Svo eru
einnig margir sem velja sér armband og
lesa svo um steininn og þá er það akk-
úrat sá rétti fyrir viðkomandi.“
„Öll börnin mín hafa hjálpað mér á
einhvern hátt við Óskaböndin nema
kannski sú yngsta sem er þriggja ára,
hún er aðallega í því að róta í stein-
unum. Strákurinn minn sem er að
verða fimmtán ára sér alveg um
að gera fyrir mig kassana og
pakka fyrir mig. Mér finnst
alveg ómetanlegt að geta
leyft þeim að taka að-
eins þátt í þessu með
mér. Það er helst að
það vanti aðeins fleiri
tíma í sólarhringinn til
að geta framkvæmt allt
sem mig langar til að gera í
Óskaböndunum mínum.“
Hluti af söluandvirðinu
á Óskaböndum rennur
til góðs málefnis sem tengist
börnum á Íslandi. „Mér
finnst alveg ómetanlegt
að geta látið gott af
mér leiða með hönn-
uninni. Ég hef styrkt
ýmis félög og börn sem
eiga um sárt að binda
og valið það sem er í
brennidepli hverju sinni.“
Nánari upplýsingar um
Óskaböndin má finna á heima-
síðunni oskabond.is og á facebook.
■ lilja.bjork@365.is
VANTAR FLEIRI TÍMA
Í SÓLARHRINGINN
ORKUSTEINAR Hlín Ósk Þorsteinsdóttir hannar Óskabönd sem eru skartgripir
fullir af orku. Börnin hennar taka virkan þátt í gerð skartgripanna með henni.
SÖLUANDVIRÐIÐ
TIL GÓÐA
Hluti af söluandvirðinu á
Óskaböndum rennur til
góðs málefnis sem teng-
ist börnum á Íslandi.
MYND/GVA
FULL AF ORKU
Hlín Ósk hannar skartgripi úr orku-
steinum sem eiga meðal annars að
hjálpa fólki að vera skipulagt og jákvætt.
MYND/GVA
NÝKOMINN AFTUR !!
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Þú mætir - við mælum og aðstoðum
www.misty.is
Opið frá 10-18 virka daga.
Lokað á laugardögum í sumar
Teg. DECO - létt fóðraður og saumlaus
í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 9.660,-
SUMAR ÚTSALA
Gerið gæða- og verðsamanburð
SAGA/FREYJA OG ÞÓR
Hágæða heilsudýnur
Queen rúm nú aðeins kr. 179.900
20-50%
AFSLÁTTUR
Lök, sængurverasett,
heilsukoddar,
viðhaldskoddar,
gaflar, náttborð,
teppasett og fleira.
ÚRVAL STILLANLEGRA
HEILSURÚMA
2x90x200
299.900 með okkar bestu
IQ-CARE heilsudýnum
12 mánaða
vaxtalausar
greiðslur*
*3,5% lántökugjald
TERNABOX - ÚTSALA
SAGA/FREYJA
Queen rúm, nú aðeins 129.900
ÞÓR Queen rúm, nú aðeins 149.900
-20% afsláttur af
ÖLLUM buxum
yfir 150 tegundir
Kvartbuxur – Bómullarstretchbuxur
Gallabuxur – Sparibuxur
vandaðar buxur í mismunandi síddum fyrir hávaxnar
sem og lágvaxnar konur í stærðum 36-52
Tilboðsverð frá 7.190
Opið virka daga í sumar frá kl. 9 -18 Stórhöfða 25 569 3100 eirberg.is
Nuddrúlla
-mýkir upp stífa vöðva
Verð: 5.470 kr.