Fréttablaðið - 21.06.2012, Blaðsíða 10
21. júní 2012 FIMMTUDAGUR10
Skuldir sveitarfélaga lækk-
uðu á milli áranna 2009 og
2010, en eru þó enn of háar.
Tuttugu sveitarfélög fara
yfir viðmið eftirlitsnefndar
um fjármál sveitarfélaga
þegar kemur að skuldum A-
hluta og 29 þegar kemur að
allri samstæðunni. Nefndin
átelur Íbúðalánasjóð harð-
lega.
Heildarskuldbindingar sveitarfé-
laga hafa lækkað og staða þeirra
batnað sem því nemur. Þegar litið
er til A-hlutans, aðalsjóðs sveitar-
félaga sem rekstur þeirra grund-
vallast á, hafa heildarskuldir og
skuldbindingar lækkað úr 154%
af heildartekjum árið 2009 í 146%
árið 2010. Það er lækkun um 8
milljarða, úr 262 milljörðum árið
2009 í 254 árið eftir.
Þegar B-hlutanum er bætt við,
en inni í honum eru meðal ann-
ars fyrirtæki í eigu sveitarfélaga,
er það sama uppi á teningnum. A-
og B-hluti eru oft nefndir sam-
stæða sveitarfélaga og heildar-
skuldir hennar lækkuðu úr 269%
af heildartekjum árið 2009 í 255%
árið 2010. Það er lækkun upp á 13
milljarða, úr 599 milljörðum í 586
milljarða.
Þetta má sjá í nýrri skýrslu sem
eftirlitsnefnd um fjármál sveitar-
félaga hefur sent frá sér.
Enn of skuldsett
Þrátt fyrir batnandi rekstraraf-
komu eru enn tuttugu sveitarfélög
sem fara yfir viðmið eftirlitsnefnd-
arinnar þegar kemur að A-
hlutanum. Samkvæmt þeim mega
heildarskuldir og skuldbindingar
þess hluta ekki fara yfir 150% af
heildartekjum sveitarfélaganna.
Þegar litið er til samstæðunnar eru
29 sveitarfélög yfir viðmiðunum.
Sé horft til nettóskulda sveitar-
félaganna eru fjórtán þeirra
með skuldir umfram viðmið
nefndarinnar í A-hlutanum en
22 í samstæðunni. Á árinu 2010
var rekstrartap á A-hluta hjá 38
sveitar félögum.
Viðmiðin voru sett í nýjum
sveitar félögum, en þau tóku ekki
gildi fyrr en 1. janúar 2012. Sam-
kvæmt þeim mega samanlögð
heildarútgjöld til rekstrar vegna
A- og B-hluta á hverju þriggja ára
tímabili ekki vera hærri en sem
nemur samanlögðum reglu legum
tekjum þeirra. Ekki er komin
reynsla á það ákvæði.
Heimildir til inngripa
Eftirlitsnefnd um fjármál sveitar-
félaga hefur ýmsar leiðir til að
grípa inn í þegar í óefni virðist
stefna. Sveitarstjórn skal tilkynna
nefndinni sjái hún fram á að geta
ekki staðið í skilum. Telji nefndin
að sveitarfélög geti ekki staðið
undir lögboðnum útgjöldum, eða
öðrum skuldbindingum, er henni
heimilt að meta ýmsar aðgerðir í
stöðunni.
Meðal þeirra er að leggja fyrir
sveitarstjórn að leggja á útsvar og
fasteignaskatt sem nemur allt að
25%. Ef ljóst er að greiðslubyrði
umfram greiðslugetu sé svo mikil
að ekki leysist úr í bráð, getur ráð-
herra, að tillögu nefndarinnar,
svipt sveitarstjórn fjárforráðum
og skipað sveitarfélaginu fjár-
haldsstjórn.
Ráðuneytið hefur nú sett nýjar
viðmiðunarreglur þar sem þetta
kemur fram.
Tekjur lækka, útgjöld hækka
Í skýrslunni kemur fram að í
áætlun um heildartekjur árið 2011
er gert ráð fyrir hækkun um 1,6%
frá árinu 2010. Sú hækkun kemur
hins vegar eingöngu til vegna yfir-
færslu á málefnum fatlaðra frá ríki
til sveitarfélaga, en henni fylgja
10,7 milljarðar króna.
Ef ekki kæmi til þeirra tekna
gerðu áætlanir ráð fyrir 4,6%
lækkun á tekjum A-hluta.
„Þegar horft er til þróunar á
heildartekjum og verðlagsþróunar
á tímabilinu 2007-2010 er ljóst að
rauntekjur sveitarfélaganna hafa
lækkað verulega.
FRÉTTASKÝRING: Fjárhagsstaða sveitarfélaga
Betri staða en enn of miklar skuldir
HAFNARFJÖRÐUR Gjaldfallin lán Hafnarfjarðar hjá þýska bankanum DEPFA námu
árið 2011 12,3 milljörðum íslenskra króna, en samið hefur verið um endurfjár-
mögnun til fjögurra ára. Skuldir sveitarfélaga fara lækkandi. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Eftirlitsnefndin greip ekki til sér-
stakra aðgerða vegna slæmrar fjár-
hagsstöðu neins sveitarfélags árið
2011. Hún gerði þó samninga við
þrjú sveitarfélög um fjárhagslegar
úttektir sem unnið var að, auk þess
að vinna áfram með samning við
eitt sveitarfélag.
Svalbarðshreppur
Sveitarstjórn óskaði formlega eftir
aðstoð nefndarinnar við úrlausn
á fjárhagsvanda sveitarfélagsins
með bréfi dagsettu 27. janúar 2011.
Óháður ráðgjafi var fenginn til að gera
fjárhagslega úttekt. Í skýrslu hans kom
fram að fjárhagsstaða sveitarfélagsins
væri viðunandi að teknu tilliti til leið-
réttinga á uppgjöri vegna samrekstrar
sveitarfélaganna. Nauðsynlegt þykir
að því uppgjöri ljúki sem fyrst.
Vesturbyggð
Samningur var gerður 15. ágúst 2011
um úttekt á fjármálum sveitarfélags-
ins og möguleika á hagræðingu í
rekstri. Óháður aðili vann úttektina
og bæjarstjórnin lagði fram fjár-
hagsáætlun fyrir árin 2012 til 2015
á grundvelli hennar. Ekki var talin
ástæða til frekari aðkomu að
fjármálum Vesturbyggðar að svo
stöddu.
Álftanes
Sveitarfélaginu var skipuð fjárhalds-
stjórn árið 2010 og er hún enn að
störfum. Unnið er að endurskipu-
lagningu fjármála sveitarfélagsins.
Í skýrslu eftirlitsnefndarinnar segir
að samningar við lánardrottna hafi
reynst tímafrekari en gert hafði verið
ráð fyrir.
Bolungarvíkurkaupstaður
Líkt og Fréttablaðið greindi frá í gær
átelur eftirlitsnefndin Íbúðalánasjóð
harðlega fyrir að hafa ekki staðið við
samkomulag við kaupstaðinn um
niðurfærslu skulda.
Sérstakar aðgerðir vegna sveitarfélaga20 sveitarfélög
yfir mörkum árið 2010
Kópavogsbær 201*
Hafnarfjörður 243
Svf. Álftanes 399
Mosfellsbær 183
Reykjanesbær 395
Grindavík 154
Sandgerðisbær 411
Svf. Vogar 334
Grundarfjarðarbær 236
Stykkishólmsbær 179
Blönduósbær 157
Norðurþing 178
Fjarðabyggð 275
Djúpavogshreppur 173
Fljótsdalshérað 257
Vestmannaeyjabær 197
Svf. Árborg 205
Rangárþing ytra 153
Hveragerðisbær 165
Svf. Ölfus 195
*2010 Skuldir og skuldbindingar í
prósentum
Samkvæmt viðmiðum eftirlitsnefndar
um fjármál sveitarfélaga mega skuldir og
skuldbindingar A-hluta sveitarfélaga, aðal-
sjóðs sveitarfélaganna, vera yfir 150% af
heildartekjum þeirra.
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
Þróun heildartekna
A-hluti
2007 2008 2009 2010 2011
200
150
100
50
0
■ Heildartekjur
■ Skatttekjur
■ Jöfnunarsjóður
■ Þjónustu - og aðrar tekjurM
ill
ja
rð
ar
k
ró
na
Lexus RX400H
Árgerð 2007, hybrid
Ekinn 139.000 km, sjálfsk.
Audi A5 Coupe 3,2
Árgerð 2008, bensín
Ekinn 54.000 km, sjálfsk.
Ásett verð 5.690.000
Tilboðsverð
4.790.000,-
Porsche Cayenne Turbo
Árg. 2003, bensín
Ekinn 145.000 km, sjálfsk.
VW Sharan TDi 1,9
Árgerð 2008, dísel
Ekinn 79.000 km, beinsk.
Ásett verð 3.990.000
Tilboðsverð
2.990.000,-
Ásett verð
3.390.000,-
Komdu og skoðaðu úrvalið!
Laugavegi 174 | Sími 590 5040
Opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga kl. 12-16
Audi A6 2,0 TFSi
Árgerð 2006, bensín
Ekinn 115.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð
3.150.000,-
GOTT ÚRVAL
AF NÝLEGUM
GÆÐABÍLUM
Ásett verð
6.290.000,-
Á sama tíma hafa rekstrarút-
gjöld sveitarfélaganna aukist. Á
tímabilinu 2007 til 2010 jukust
útgjöld A-hluta úr 137 mill jörðum
króna í áætlaða 162 milljarða
króna og samstæðunnar allrar úr
158 milljörðum í 191 milljarð. Það
er 18,2% hækkun á rekstrarút-
gjöldum A-hluta og 20,4% hjá sam-
stæðunni. Ítrekað skal að hér er
um áætlun fyrir árið 2011 að ræða.
Standist kostnaðarmat við yfir-
færslu málefna fatlaðra er gert
ráð fyrir nær óbreyttum rekstrar-
útgjöldum A-hluta á milli áranna
2010 til 2011.