Fréttablaðið - 21.06.2012, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 21.06.2012, Blaðsíða 8
21. júní 2012 FIMMTUDAGUR8 EVRÓPUMÁL: Hvað verður efst á baugi á ríkjaráð- stefnu Íslands og ESB? Fimmta ríkjaráðstefnan í aðildar- viðræðum Íslands við ESB verður haldin í Brussel á föstu- dag. Þessar ráðstefnur eru vett- vangur formlegra viðræðna milli íslensku samninganefndarinnar og ESB og á þeim hefjast eigin- legar viðræður í hinum 33 mála- flokkum tengdum löggjöf ESB, svo kölluðum samningsköflum, en þar er samningsköflum einnig lokað ef samkomulag hefur náðst. Í millitíðinni hefur mikil vinna farið fram þar sem ESB útlistar annars vegar hvernig íslensk lög- gjöf samræmist ESB, og Ísland leggur fram samningsafstöðu sem í mörgum tilfellum inni- heldur, eftir atvikum, óskir um sérlausnir eða aðlögunartíma. Mislangur tími getur liðið milli þess sem samningskafli er „opn- aður“ þar til honum er lokað með samkomulagi, enda eru mála- flokkar misjafnlega samrýman- legir. Til dæmis heyra um tveir þriðju samningskafla að öllu eða nokkru leyti undir EES-samning- inn, en það er þó ekki ávísun á skjótari afgreiðslu. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins munu viðræður um þrjá samningskafla hefjast á föstu- dag. Það eru kaflarnir um flutn- ingastarfsemi, félags- og vinnu- mál og fjárhagslegt eftirlit. Ekki er þó útlit fyrir að neinum köflum verði lokað að þessu sinni. Ef svo fer, hafa átján af samn- ingsköflunum 33 verið opnaðir frá fyrstu ríkjaráðstefnunni í júní 2011 þegar efnislegar samninga- viðræður hófust formlega. Þar af hefur tíu köflum verið lokað. Í samningsafstöðu Íslands um kaflann um flutningastarfsemi er beðið um undanþágur vegna hvíldar tíma ökumanna hópbifreiða og einnig er þess óskað að Ísland þurfi ekki að taka upp sumartíma. Í kaflanum um félags- og vinnumál er ekki farið fram á sérlausnir eða undanþágur og einnig er fallist á að taka yfir regluverk ESB um fjár- hagslegt eftirlit eins og það stóð á síðasta ári. Ekkert launungarmál er að þetta ferli hefur tekið lengri tíma en vonir íslenskra ráðamanna stóðu til. Fleiri kaflar standa út af og munar þá sérstaklega um veiga- mestu málaflokkana, til dæmis landbúnað, sjávarútveg og mat- vælaöryggi. Tafirnar má rekja til ýmissa þátta beggja vegna borðs. Til dæmis er enn beðið rýni- skýrslu frá ESB um íslenskan sjávar útveg og þá er áætlun um breytingar á íslensku landbún- aðarkerfi, ef til aðildar kemur og með tilliti til niðurstöðu samninga, í vinnslu í íslensku stjórnsýslunni. Áætlunin ætti að liggja fyrir áður en langt um líður, en óljóst er hvenær rýniskýrslan um sjávarút- veg verður tilbúin. Því er ekki ljóst hvenær hægt verður að hefja við- ræður um þá kafla, en sjötta ríkja- ráðstefnan verður haldin undir lok þessa árs. thorgils@frettabladid.is Þrír opnaðir en engum lokað Formlegar viðræður hefjast um þrjá samningskafla á fimmtu ríkjaráðstefnu Íslands og ESB á föstudag. 15 kaflar hafa þegar verið opnaðir. Ólíklegt að köflum verði lokað. Átta kaflar opnir eftir ríkjaráðstefnuna. SAMNINGAVIÐRÆÐUR Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður Íslands, og hans fólk við samningsborðið í Brussel. MYND/RÁÐHERRARÁÐ EVRÓPU GRIKKLAND, AP Antonis Samaras sór í gær embættiseið sem forsætisráð- herra Grikklands. Flokkur hans, Nýi lýðræðisflokkurinn, myndaði stjórn með sósíalistaflokknum Pakos og Lýðræðislega vinstri- flokknum. „Ég bið nýja ríkisstjórn, sem verður mynduð á morgun [í dag], að leggja hart að sér svo við getum veitt fólkinu okkar áþreifan- lega von,“ sagði Samaras í gær. Hann er fjórði forsætisráðherra Grikkja á 8 mánuðum. Flokkarnir þrír styðja allir björg- unaráætlun Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins og Evrópusambandsins, Þriggja flokka ríkisstjórn verður mynduð í Grikklandi í dag: Samaras orðinn forsætisráðherra Í AÞENU Antonis Samaras sór emb- ættiseið í forsetahöllinni í Aþenu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FORSETAKOSNINGAR Herdís Þor- geirsdóttir forsetaframbjóðandi segir að ummæli hennar í Vísi árið 1977 séu ekki rétt eftir henni höfð. Svar hennar við því hver hennar fyrstu viðbrögð yrðu ef hingað til lands flyttust 10 þúsund svertingjar má sjá hér fyrir ofan. Herdís segir að blaðamað- ur Vísis hafi afbakað ummæli hennar. „Ég man vel eftir þessu. Svar mitt var: „Fáránleg spurn- ing. Ég ætla ekki að svara eins og ríkisstjóri Alabama, George Wallace, ku hafa sagt: „Ég mundi senda þá á lekum bát aftur út á haf.“,“ segir Herdís. Hún segist hafa kvartað yfir þessu við blaðamann á sínum tíma enda sé áhugi hennar á mannrétt- indum ekki nýtilkominn. - kóp Gömul ummæli rifjuð upp: Segir að um- mæli séu röng SVAR HERDÍSAR FYRIR 35 ÁRUM SJÁVARÚTVEGUR Heildarafli íslenska flotans í lok þriðja árs- fjórðungs fiskveiðiársins var 1.180 þúsund tonn. Á sama tíma í fyrra var aflinn 858 þúsund tonn. Aukning í heildarafla nemur sam- kvæmt því um 37,5%. Munurinn liggur einkum í um 306 þúsund tonna aukningu á upp- sjávarafla. Botnfiskaflinn er um 22 þúsund tonnum meiri en á sama tíma í fyrra eða tæp 362 þúsund tonn samanborið við 345 þúsund tonn á fyrra ári. Aflaaukningin í botnfiski er um 4,9%. - shá Heildarafli eykst um 37,5%: Miklu meiri uppsjávarafli MENNING Árleg skákhátíð á Ströndum hefst klukkan fjögur síðdegis á morgun þegar Róbert Lagerman, heiðursgestur hátíðarinnar í ár, teflir fjöltefli við gesti á Hólmavík. Um helgina verða Strandirnar svo undirlagðar margvíslegum skákviðburðum sem skákmeistarar, áhugamenn jafnt og heimamenn, taka þátt í. „Þetta er í fimmta sinn sem þessi hátíð er haldin og hún er að festast í sessi sem fastur punktur, bæði í íslensku skáklífi og mannlífinu á Ströndum,“ segir Hrafn Jökulsson sem er einn aðstandenda hátíðarinnar. „Á þessum árum hefur hún vaxið jafnt og þétt og er eiginlega orðin ómissandi, bæði fyrir skáklífið og svo fyrir vini Stranda sem hafa þarna kærkomið til- efni til að koma saman,“ bætir hann við. Það er skákfélagið Hrókurinn sem hefur staðið að hátíðinni frá upphafi en meðal viðburða í ár má nefna fjöltefli á Hólmavík og skákmót í Djúpuvík, Trékyllisvík og Norðurfirði. Stórmeistararnir Helgi Ólafsson, Jóhann Hjartar- son og Þröstur Þórhallsson hafa boðað þátttöku sína á Ströndum í ár auk þess sem skákáhugamenn víða að munu taka þátt í hátíðinni. Þá munu mörg af efni- legustu börnum landsins í skák taka þátt í hátíðinni en hún er öllum opin. Alls munu því tugir einstaklinga setjast við skák- borðið. Að sögn aðstandenda skákhátíðarinnar á Hólmavík er búist við því að hátíðin í ár verði sú fjöl- mennasta sem hingað til hefur verið haldin. - mþl Búist er við fjölmennari skákhátíð en nokkru sinni fyrr í sögu hennar: Fastur punktur í mann- og skáklífi SETIÐ AÐ TAFLI Jóhann Hjartarson stórmeistari er meðal kepp- enda á mótinu en þessi mynd er tekin á mótinu árið 2010 þar sem Jóhann sigraði. 1. Hvaða sveitarfélag vill fá niður- fellingu skulda á félagslegu húsnæði? 2. Hver vill fá hæli í Ekvador? 3. Hvað heitir ríkisskattstjóri? SVÖRIN sem felur í sér mikinn niðurskurð á mörgum sviðum. Flokkarnir hafa þó lýst því yfir að þeir vilji semja við AGS og ESB á nýjan leik um skil- málana. Samaras hefur til dæmis sagst vilja lækka skatta og koma hagkerfinu af stað á ný. Hinir flokkarnir tveir hafa talað fyrir tveggja ára framlengingu á frestum sem ríkið hefur fengið til að skera niður. Fotis Kouvelis, leið- togi Lýðræðislega vinstriflokksins, segir Grikki á endanum eiga að losa sig undan skuldbindingunum. Búist er við að markaðir taki fagnandi myndun ríkisstjórnar. - þeb1. Bolungarvíkurkaupstaður. 2. Julian Assange. 3. Skúli Eggert Þórðarson. VEISTU SVARIÐ? samningskaflar af 33 hafa í lok vikunnar verið opnaðir, fari svo að þrír kaflar til viðbótar verði opnaðir á fimmtu ríkjaráð- stefnu Íslands og Evrópusam- bandsins á morgun, föstudag. 18 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? IÐNAÐARRYKSUGUR Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Akureyri Húsavík Vestmannaeyjum Ryk/blautsuga Drive ZD10- 50L 1000W, 50 lítrar 27.900,- Ryk/blautsuga Drive ZD98A- 2B 2000W, 70 lítrar 42.890,- Drive Bískúrsryksugan 1200W, 20 lítrar 6.990,- Arges HKV-100GS15 1000W, 15 lítrar 21.900,-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.