Fréttablaðið - 21.06.2012, Blaðsíða 28
FÓLK|TÍSKA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Það er komið sumar sem þýðir ekkert annað en að útilegurnar eru byrjaðar. Vandamálið við úti-
legur á Íslandi er að veðrið er fljótt að
breytast. Myndir birtast af stjörnunum
á netinu þar sem þær eru á útihátíðum í
flottum og léttum fötum, enda venjulega
hlýrra handan hafsins.
Íslendingar mega þó ekki láta kalda
veðrið á sig fá heldur finna út hvernig
hægt er að vera flottur í tauinu þótt kalt
sé í veðri.
Ef byrjað er á höfðinu er klassískt að
hafa hárband, helst með blómum eða
öðru sumarlegu. Aviator-sólgleraugu
eru alltaf töff á sumrin, sérstaklega ef
maður er með hárbandið. Vertu spör
á andlitsfarðann, leiðin liggur ekki út á
lífið í miðbænum.
Sýndu þjóðlegu hliðina og vertu í
lopapeysu. Það er alltaf jafn flott að
klæðast fallegri, íslenskri peysu úr ull
og ekki skemmir fyrir að hún er hlý.
Hafðu vettlinga til öryggis ef kólnar
snögglega í veðri sem gerist oft.
Gott er að vera í leggings
undir buxunum en við mælum
með því, ef ætlunin er að vera
í flottum fötum, að vera ekki
í víðum íþróttabuxum. Vertu frekar í
gallabuxum eða nokkrum leggings.
Timberland-skórnir voru mikið í tísku
í vetur og ef þú átt slíka skaltu endilega
vera í þeim. Annars er flott að vera
í gúmmístígvélum eða annars konar
hlýjum skóm. Við bendum þó á að ef
markmiðið er að vera flott klæddur
er best að sleppa göngu-
skónum.
■ gunnhildur@365.is
KLÆDDU ÞIG FLOTT
FYRIR ÚTILEGUNA
VERTU SMART Í HLÝJUM FÖTUM Þó svo að það sé kalt í útilegum er vel
hægt að fylgja tískustraumunum og vera vel klæddur.
GAMAN SAMAN Hægt er að klæðast þægilegum en flottum fötum í útilegunni.
GÖNGUSKÓR
Nauðsynlegt er
að vera vel skó-
aður í sveitinni.
LOPAPEYSAN GÓÐA
Engum verður kalt í
góðri, íslenskri lopa-
peysu.
SÓLGLERAUGUN
Nauðsynlegt er að
verjast sólinni.
Franska hönnunarhúsið, vefverslunin og -tímaritið Jardins
Florian hefur sent frá sér náttúruvæna handtösku í samstarfi
við bandaríska handverksmenn, The Good Flock.
The Good Flock framleiðir einungis vörur
úr umhverfisvænum efnum. Vörurnar eru ekki
fjöldaframleiddar í vélum heldur unnar af hand-
verksfólki en Jardins Florian leitaði eftir sam-
starfi við The Good Flock einmitt vegna þess að
ætlunin var að hanna endingargóða og nota-
drjúga tösku. Taskan átti ekki endilega að vera
hátískuvara heldur taska fyrir bæði kyn sem hægt
væri að grípa með sér við hvaða tækifæri sem er
en vera þó stælleg líka. Einungis 25 stykki hafa
verið framleidd. Taskan fæst í tveimur útgáfum
– einlit svört og svo blá og brún – á vefverslun
Jardins Florian, www.jardinsflorian.com.
■ heida@365.is
HANDGERT
Taskan er úr
vaxbornum striga
og leðri.
HÁTÍSKA OG HANDVERK Í HANDTÖSKU
Jardins Florian hannar náttúruvænar töskur í samstarfi við The Good Flock.
■ SPENNANDI SÝNING
Tískuvikan í Berlín stendur nú
sem hæst. Þar sýna íslensku
fatamerkin Mundi, Eygló og
Dísdís hönnun sína og hafa
einnig sett upp Pop up-
verslunina Dóttir dóttir
í félagi við grænlenska
og færeyska hönnuði.
Hulda Rós Guðna-
dóttir myndlistar-
maður í Berlín er
sýningarstjóri. Á
www.vogue.de segir
Hulda tilganginn
að sýna hversu
spennandi og
einstök norræn
hönnun er. Einkum
sé íslenska hönn-
unarsamfélagið
ótrúlega lifandi.
ÍSLENSK
HÖNNUN Í
BERLÍN
Bíldshöfða 18 | Sími 567 1466 | Opið frá kl. 8–22
Skipholti 29b • S. 551 0770
ÚTSALA
HAFIN!
www.saft.is
RÆDDU UM ÞÁ
ÁHÆTTU SEM FYLGIR
ÞVÍ AÐ HITTA NETVIN
KEEPING UP WITH THE KARDASHIANS
E! ENTERTAINMENT ER Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á STOD2.IS
með Smutty Smiff föstudagskvöld kl. 22
Glymskrattinn