Fréttablaðið - 21.06.2012, Blaðsíða 4
21. júní 2012 FIMMTUDAGUR4
GENGIÐ 20.06.2016
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
218,3935
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
124,38 124,98
195,63 196,59
157,8 158,68
21,227 21,351
20,978 21,102
17,852 17,956
1,5746 1,5838
189,54 190,66
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR
SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
FRÉTTASKÝRING
Hvað fæst fyrir IPA-styrkina?
Tæplega tveir milljarðar króna af
IPA-styrkjum Evrópusambands-
ins verða nýttir á næstu þremur
árum í sjö ólík verkefni. Ljóst er að
styrkirnir munu gerbreyta lands-
laginu hjá þeim stofnunum sem fá
þá. Á meðal verkefna sem verða
að veruleika er jarðvangur á Eyja-
fjallajökulssvæðinu.
Alþingi samþykkti á mánudag
heimild fyrir ríkisstjórnina um
að undirrita rammasamning um
styrkina. Búist var við þeirri sam-
þykkt í vor, en drátturinn hefur
þó ekki afgerandi áhrif á starf-
semina. Alls er um 12 milljónir
evra að ræða, eða rúmlega 1,9
milljarða króna á núverandi gengi.
Styrkirnir eru óaftur kræfir.
Þó upp úr viðræðum við ESB
slitni eða aðild verði felld í
þjóðar atkvæðagreiðslu, standa
greiðslurnar. Skiptir þá engu þótt
sjálfum rammasamningnum verði
sagt upp, samningur hvers verk-
efnis stendur.
Fréttablaðið leit yfir þau verk-
efni sem fá styrk.
Náttúrufræðistofnun
Fær 3 milljónir, 685 þúsund evrur,
ásamt Landmælingum og fleiri, til
að kortleggja vistkerfi og fuglalíf
á Íslandi. Auðkennd verða svæði
sem þarfnast verndar.
Skrifstofa landtengiliðs
1,5 milljón evra fara í landtengilið
sem annast samræmingu, stjórn
og eftirlit með stuðningi ESB á
sviði byggðamála og atvinnuupp-
byggingar.
Háskólafélag Suðurlands
Fær 560 þúsund evrur til að
vinna að verkefninu Katla jarð-
vangur. Ætlunin er að vinna
þróunar áætlun fyrir Eyjafjalla-
jökulssvæðið og uppbyggingu á
þekkingarsetri fyrir svæðið.
Óákveðið (Matís)
1,9 milljónir evra fara til að fram-
fylgja reglugerðum um matvæla-
öryggi sem þegar hafa verið inn-
leiddar í gegnum EES. Markmiðið
er að tryggja matvælaöryggi og
styrkja neytendavernd. Bæta þarf
tækjabúnað og þjálfun starfsfólks.
Styrkurinn var eyrnamerktur
Matís en andstaða þáverandi ráð-
herra, Jóns Bjarnasonar, veldur
því að nú er hann óskilgreindur.
Þýðingarmiðstöð
Þýðingarmiðstöð utanríkisráðu-
neytisins og Háskóli Íslands fá
1,5 milljóna evra styrk til að þýða
regluverk ESB á íslensku. Hluti fer
í tækjakaup við nýja námsbraut
fyrir ráðstefnutúlka í HÍ.
Hagstofan
Fær 825 þúsund evrur til að endur-
bæta gerð þjóðhagsreikninga, en
skortur á mikilvægum hagtölum
er talinn valda erfiðleikum við
að meta stöðu einstakra atvinnu-
greina. Styrkurinn gerir Hagstof-
unni kleift að fjölga starfsmönnum
sem er forsenda verkefnisins.
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
Fær 1.875 þúsund evrur til að efla
starfshæfni fullorðinna með litla
formlega menntun. Þróað verður
raunfærnimat sem nýtist við mat
í framhaldsskóla.
Tveir milljarðar í IPA-styrki
Sjö verkefni eru í startholunum eftir að Alþingi samþykkti frumvarp um IPA-styrki frá Evrópusamband-
inu. Alls koma tæpir 2 milljarðar króna inn í hagkerfið. Matvælaeftirlit og jarðvangur á meðal verkefna.
EYJAFJALLAJÖKULL Meðal verkefna sem IPA-styrkirnir verða nýttir í er að koma upp
jarðvangi og þekkingarsetri á Eyjafjallasvæðinu. Vonast er til að það efli ferða-
mennsku á svæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Háskólafélag Suðurlands fær 90 milljóna króna IPA-styrk
til að koma upp Kötlu-jarðvangi og vinna þróunaráætlun
fyrir Eyjafjallajökulssvæðið. Hafist verður handa í sumar,
verkefnisstjóri ráðinn og einn til tveir starfsmenn til að
sinna gerð fræðsluverkefnis. Heimamenn verða síðan
ráðnir í uppsetningu fræðsluskilta og fleira. Til að setja
90 milljóna króna styrkinn í samhengi fékk háskóla-
félagið hálfa milljón króna úr ríkissjóði árið 2012.
„Þessi styrkur er algjör forsenda þess að við getum
farið í þessar framkvæmdir og gerð fræðsluefnisins. Við
vonumst til þess að ferðamennskan eflist við þetta, sérstaklega utan hins
hefðbundna ferðamannatíma,“ segir Sigurður Sigursveinsson, fram-
kvæmdastjóri háskólafélagsins.
Styrkurinn forsenda verkefnisins
Verkefni Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins byggir á að
þróa raunfærnimat, sem er leið til að meta þekkingu
fólks. Um þriðjungur fólks á vinnumarkaði hefur ekki
lokið framhaldsskóla. Með matinu er raunveruleg þekk-
ing metin sem þýðir styttra nám, snúi það aftur í skóla.
Alls fara 300 milljónir króna af IPA-styrkjum í verkefnið,
en til að setja það í samhengi fær Fræðslumiðstöðin
sem sér um verkefnið 110 milljónir árlega á fjárlögum.
„Þetta er mjög mikilvægt verkefni,“ segir Ingibjörg
E. Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fræðslumið-
stöðvarinnar. „Fólk finnur að það hefur lært eitthvað í atvinnulífinu og þróað
styrkleika sína. Þetta eflir atvinnulíf í landinu og einstaklingana og stuðlar að
hærra menntunarstigi.“
Hækkar menntunarstig þjóðarinnar
Suðurstrandarvegur verður opnaður
formlega í dag en ekki í gær eins og
ranghermt var í blaði gærdagsins.
LEIÐRÉTT
Vegna fréttar af Esjugöngu Gunnlaugs
Júlíussonar, sem birtist í blaðinu í
gær, skal áréttað að gangan verður
næstkomandi laugardag. Áætlað er
að gangan taki 15 stundir og er fram-
takið liður í baráttu Rótarý-hreyfingar-
innar í baráttunni gegn lömunarveiki.
Gosdrykkurinn Kók mun fáanlegur á
Kúbu en þarlendir munu flytja drykk-
inn inn frá ríkjum S-Ameríku þótt gos-
drykkjaframleiðandinn Coca-Cola eigi
ekki í beinum viðskiptum við landið.
HALDIÐ TIL HAGA
FULLKOMINN FERÐAFÉLAGI!
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
31°
30°
21°
20°
25°
26°
23°
23°
26°
21°
30°
34°
29°
21°
25°
19°
20°Á MORGUN
Hægur vindur
eða hafgola.
LAUGARDAGUR
Hæglætisveður,
skúrir síðdegis
13
12
9
14
12
11
12
8
11
10
5
4
2
2
3
2
3
6
4
4
10
3
14
12
16
17
14 14
12
13
14
14
HLÝNAR Spá
næstu daga er
ljómandi góð.
Horfur eru á
hægum vindi eða
hafgolu og sú
gula lætur sjá sig í
öllum landshlutum.
Úrkoma verður
með minnsta
móti en þó horfur
á stöku skúrum,
einkum inn til
landsins síðdegis.
Heldur hlýnar í
veðri.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
EFNAHAGSMÁL Gengi íslensku
krónunnar hefur styrkst nokkuð
síðustu daga eftir að hafa staðið
nokkurn veginn í stað síðan í
byrjun maí. Hefur krónan ekki
verið jafn sterk og um þessar
mundir frá miðjum janúar.
Gengisvísitalan stóð í 219,04
stigum í lok dags í gær og hefur
styrkst um 2,2 prósent á einni
viku. Þess má geta að gengi
krónunnar styrkist þegar vísi-
talan lækkar.
Lægst hefur gengið mælst í
rúmum 229 stigum á árinu og
hefur krónan því styrkst um tæp
5% frá botni í lok mars. - mþl
Styrkst um 5% frá botni:
Krónan styrkst
síðustu daga
FERÐAMENN Gjaldeyrisflæði frá
erlendum ferðamönnum skýrir hluta
styrkingar krónunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SJÁVARÚTVEGUR Full starfsemi
verður í fiskiðjuverum HB Granda
í Reykjavík og á Akranesi í sumar.
Á meðan starfsfólk fiskiðju-
veranna er í sumarleyfum standa
skólanemar vaktina.
Á Vopnafirði hefur vinnsla á
uppsjávarfiski legið niðri frá því
að vinnslu á loðnu lauk þann 4.
mars og hefur starfsfólkið verið
í sumarfríi að undanförnu. Stefnt
er að því að hefja veiðar á síld og
makríl í lok mánaðarins og vinnsla
ætti því að hefjast þar að nýju í
byrjun næsta mánaðar, að því er
fram kemur á vef fyrirtækisins.
Að sögn Torfa Þorsteins sonar,
framleiðslustjóra HB Granda,
hafa um 60 ungmenni verið ráðin
til starfa í fiskiðjuverinu á Norður-
garði í Reykjavík í sumar og á
Akranesi er fjöldinn um tuttugu og
fimm. Líkt og í fyrra verður ekki
gert hlé á starfseminni á þessum
stöðum.
Magnús Róbertsson, vinnslu-
stjóri HB Granda á Vopnafirði,
segir að vinnsla í uppsjávarfrysti-
húsinu hefjist í byrjun júlí en
flestir starfsmanna í vinnslunni
nýttu hléið, sem verið hefur frá
því að loðnuvertíðinni lauk, til að
fara í sumarleyfi.
Þrátt fyrir vinnsluhlé munu
um 40 til 45 ungmenni starfa við
vinnslu á síld og makríl á Vopna-
firði í sumar þannig að þegar á
heildina er litið munu allt að 130
skólanemar starfa við sumaraf-
leysingar hjá félaginu í sumar.
- shá
Engar sumarlokanir í fiskiðjuverum HB Granda í Reykjavík og á Akranesi:
Unga fólkið heldur uppi vinnslu
ungmenni hið
minnsta starfa við
vinnslu á síld og
makríl á Vopnafirði í sumar.
40 UTANRÍKISMÁL Ísland þarf að styrkja reglur um jafnrétti á vinnumarkaði, að áliti ESA, eftir-
litsstofnunar EFTA. Stofnunin
hefur sent frá sér rökstutt álit, sem
telst lokaviðvörun í málinu. ESA
getur vísað málinu til EFTA-dóm-
stólsins fari Ísland ekki að álitinu.
ESA telur að Íslendingar hafi
ekki hrint tilskipun um jöfn tæki-
færi og jafna meðferð karla og
kvenna á vinnumarkaði nægilega
vel í framkvæmd og að íslensk
lög endurspegli ekki nægilega vel
orðalag í tilskipuninni. - kóp
ESA segir lög ekki nógu skýr:
Styrkja þarf
jafnréttisreglur