Fréttablaðið - 21.06.2012, Blaðsíða 33
KYNNING − AUGLÝSING Kassakerfi & sjóðsvélar21. JÚNÍ 2012 FIMMTUDAGUR 3
dk hugbúnaður er nú leiðandi fyrir tæki á sviði viðskiptahug-búnaðar fyrir smærri og meðal-
stór fyrirtæki. „dkPos-afgreiðslukerfið er
viðbót við bókhaldskerfi dk hug búnaðar. Af-
greiðslukerfið kom á markað 2006 og hefur
verið í mikilli sókn síðan, mest þó síðustu
þrjú árin. Uppsettir kassar eru að nálgast
sex hundruð svo við teljum okkur vera með
mjög góða lausn fyrir íslenskan markað,“
segir Hafsteinn Róbertsson, kerfis fræðingur
hjá dk hugbúnaði.
„Við höfum fundið fyrir því að þegar
fyrir tæki eru komin með mörg útibú og það
þarf að hafa einfalt og gott aðgengi að öllum
gögnum, skipta þau yfir til okkar. Viðskipta-
vinir okkar sem nota dkPos eru til dæmis
veitingahús, fataverslanir, margs konar
sérvöruverslanir, apótek, heilbrigðisþjón-
usta og ferðaþjónustufyrirtæki. Öll almenn
vinnsla er einföld og þægileg í kerfinu, hvort
sem þarf að skanna inn lyfseðil, geyma sölu
á borð, prenta eldhúsbommur eða skrifa út
farmiða.“
Hafsteinn segir mikla vinnu hafa verið
lagða í kerfið svo hægt hafi verið að tengja
það við önnur kerfi, hvort sem það er inn-
eða útlestur. „Dæmi um tengingar er hótel-
bókunarkerfi dk hugbúnaðar, Sjúkratrygg-
ingar Íslands, Saga og alls kyns bókunarvél-
ar. Allt gerir þetta það að verkum að vinna
við innslátt minnkar stórlega og hættan á
misfærslum hverfur,“ segir Hafsteinn.
Einn af kostum dkPos afgreiðslu-
kerfisins er að það er algerlega samtengt
dk bókhaldskerfinu. Til dæmis fer öll um-
sýsla birgða og viðskiptamanna fram á
einum miðlægum stað. „Lítið mál er að
breyta eigin leikum vöru
og senda á afgreiðslu-
kassa og skiptir þá ekki
máli hvar afgreiðslu-
kassarnir eru staddir á land-
inu. Afsláttarvinnslur og verð-
breytingar verða leikur einn með kerfinu
svo og utanumhald viðskiptavina, hvort
sem það er að senda reikninga á þá í gegn-
um innheimtukerfi banka eða umsýsla í
vildarkerfum. Boðið er upp á margs konar
útfærslur á vildarkerfum allt eftir kröfum
hvers og eins. Þegar kemur að uppgjöri frá
kassa yfir í bókhald er nægjanlegt að ýta á
takka og er þá allt komið og uppfært í fjár-
hagsbókhaldinu. Allur innsláttur á dags-
uppgjöri er óþarfur, sem sparar mikinn
tíma og yfirsýn yfir reksturinn verður betri.“
Hafsteinn segir bakvinnslu-
hluta dkPos gera rekstrar-
stjórum kleift að fylgjast
nákvæmlega með sölu- og
birgðahreyfingum. „Hægt
er að fylgjast með út frá auð-
læsilegum súluritum. Maður
þarf ekki að vera sérfræðingur í
Excel til að geta nýtt sér upplýs-
ingarnar sem koma frá kössunum
yfir í bakvinnsluna.“
Ekki eru gerðar kröfur um öflugan
vélbúnað eða netkerfi, langoftast er
hægt að nota það sem verslunin notar
í dag þegar uppfært er í dkPos.
Leiðandi fyrirtæki á sviði viðskipta-
hugbúnaðar og upplýsingakerfa
Fyrirtækið dk hugbúnaður er framleiðandi dk viðskipta- og upplýsingakerfa. Starfsmenn dk hugbúnaðar veita aðstoð við úttekt á
þörfum fyrirtækja og gefa góð ráð við endurskipulagningu þeirra.
Starfsfólk dk hugbúnaðar gerir mikið af
því að uppfæra eldri viðskiptavini með
nýjustu kortalausnina. Pinnið á minnið er
það sem koma skal í kortaviðskiptum.
Afgreiðslukerfisteymið hjá dk hugbúnaði, þau Hrönn, Hafsteinn, Rúdolf og Atli Már, hefur
það að markmiði að viðskiptavinir fyrirtækisins njóti bestu lausna og þjónustu hverju sinni.
MYND/GVA
hugbúnaður
Sími: 510-5800 | dk@dk.is | www.dk.is
dk Pos
fyrirtækisins og þannig náð fram aukinni hagkvæmni í rekstri.
Auðveldari leið til að reka fyrirtæki