Fréttablaðið - 24.07.2012, Page 27

Fréttablaðið - 24.07.2012, Page 27
ÞRIÐJUDAGUR 24. júlí 2012 23 Allt um leiki gærkvöldsins er að fi nna á Pepsi-deild karla ÍBV - Selfoss 1-0 1-0 Rasmus Christiansen (25.). Keflavík - Fylkir 0-2 0-1 Jóhann Þórhallsson (76.), 0-2 Ingimundur Níels Óskarsson (88.). Valur - Fram 0-2 0-1 Sam Tillen, víti (64.), 0-2 Steven Lennon (66.). ÍA - Breiðablik 1-1 0-1 Árni Vilhjálmsson (87.), 1-1 Jóhannes Karl Guðjónsson, víti (90.). Einkunnir og tölfræði má finna á Vísi. STAÐAN KR 12 7 3 2 24-15 24 FH 11 7 2 2 29-12 23 Stjarnan 12 5 6 1 25-19 21 ÍBV 11 6 2 3 21-11 20 Fylkir 12 5 4 3 16-19 19 ÍA 12 5 3 4 19-23 18 Breiðablik 12 4 4 4 10-14 16 Keflavík 12 4 3 5 19-18 15 Valur 12 5 0 7 16-17 15 Fram 12 4 0 8 15-19 12 Selfoss 12 2 2 8 13-25 8 Grindavík 12 1 3 8 15-30 6 Pepsi-deild kvenna Þór/KA - KR 2-1 1-0 Katrín Ásbjörnsdóttir (9.), 2-0 Sandra María Jessen (19.), 2-1 Anna Garðarsdóttir (53.). ÚRSLIT VOLVO XC90 DÍSIL Notar aðeins 6,8 lítra á hundraðið í langkeyrslu. Veldu yfirburðatækni. Verð frá 11.490.000 kr. FÓTBOLTI Fjórir leikir fóru fram í Pepsi-deild karla í gær. ÍBV nálgaðist toppinn og þá unnu Fram og Fylkir góða útisigra. ÍA og Breiðablik skildu jöfn, 1-1. Eyjamenn sendu skýr skilaboð til annarra liða í Pepsi-deild karla í gær með góðum 1-0 sigri á Selfossi á heimavelli í gær þrátt fyrir að hafa misst mann af velli með rautt spjald á fyrstu mínútu. En samt stýrðu Eyjamenn leiknum allt til loka og 1-0 sigur liðsins var síst of stór. „Ég held að leikurinn hafi verið einn sá besti hjá okkur í sumar,“ sagði þjálfar- inn Magnús Gylfason en ÍBV hefur nú unnið sex leiki í röð í deildinni. Leikur ÍA og Breiðabliks var ekki mikið fyrir augað en bæði mörkin komu á lokamínútum leiksins. Blikar komust yfir en heimamenn jöfnuðu úr vítaspyrnu. „Við áttum að vera löngu búnir að klára þennan leik. Það var algjör klaufaskapur að hleypa Blikum inn í hann,“ sagði Þórður Þórðarson, þjálfari ÍA. Fylkir gerði svo góða ferð til Keflavíkur þar sem liðið vann 2-0 sigur á heimamönnum í miklum rokleik með tveimur mörkum á síðasta stundarfjórðungnum. „Við vorum yfir á öllum sviðum í seinni hálfleik og þetta var sanngjarn sigur heilt yfir,“ sagði Ásmundur Arnarsson, þjálfari ÍA. Framarar voru sannfærandi gegn Val en Sam Tillen og Steven Lennon skoruðu mörk þeirra blá- klæddu í síðari hálfleik. Fyrir seinna markið missti Valur mann af velli með rautt spjald. „Við vorum ágætir í fyrri hálf- leik en komum svo sterkir inn í síðari hálfleikinn og unnum að mínu mati sanngjarnan sigur,“ sagði Tillen. - esá, shf, gmi, bg Sex í röð hjá sjóðheitum Eyjapeyjum ÍBV nálgast toppbaráttu Pepsi-deildar karla óðfluga eftir sjötta sigur liðsins í röð í Pepsi-deild karla. Liðið fékk tvö stig úr fyrstu fimm umferðunum. Fylkir og Fram unnu útisigra en ÍA og Breiðablik skildu jöfn. ÖFLUGUR Steven Lennon átti mjög góðan leik með Fram í gær en gaf ekki kost á sér í viðtöl að honum loknum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.