Fréttablaðið - 10.08.2012, Page 1
veðrið í dag
STJÓRNSÝSLA Framlög á afskrifta-
reikning útlána hjá Lánasjóði
íslenskra námsmanna (LÍN) voru
8,9 milljarðar króna í fyrra. Á
fjárlögum ársins 2011 hafði verið
gert ráð fyrir að þau yrðu 3,5
milljarðar króna. Því skeikaði 5,4
milljörðum króna á því sem áætl-
að var og raunverulegum færslum
á afskriftaeikning. Um er að ræða
hæsta árlega framlag á afskrift-
arreikning sem átt hefur sér stað
hjá LÍN. Þetta kemur fram í ríkis-
reikningi ársins 2011.
Haraldur Guðni Eiðsson,
stjórnarformaður LÍN, segir
þrjár aðalástæður fyrir þessu.
„Í fyrsta lagi breyttum við for-
sendum reiknimódels sjóðsins.
Þær eru endurskoðaðar reglu-
lega. Þetta er einskiptisaðgerð
sem útskýrir tæplega fjóra millj-
arða króna af þessari hækkun á
framlagi. Í öðru lagi eru áhrif
af því að launaþróun lánþeg-
anna, eða greiðenda námslána,
var neikvæð á árinu um 1,77 pró-
sent. Vegna verðbólgu og verð-
bóta hækkuðu hins vegar náms-
lánin. Þetta er líka svolítið stór
þáttur í þessu.
Þriðja atriðið er breytt sam-
setning og hegðun lántaka. Fólk
er almennt lengur í námi. Marg-
ir fóru til dæmis aftur í nám eftir
hrunið en voru kannski með náms-
lán fyrir. Þá hækkaði fall krónunn-
ar lán þeirra sem stunda háskóla-
nám erlendis í krónum talið. Það
er því sístækkandi hópur sem er
komin með svolítið há lán og lík-
urnar á því að þau endurgreiðist
að fullu verða minni.“
Á fjárlögum ársins 2011 var gert
ráð fyrir að hagnaður LÍN á síð-
asta ári yrði 8,6 milljarðar króna.
Vegna hinna miklu afskriftar-
framlaga varð hann hins vegar
239 milljónir króna. LÍN hagnað-
ist um 5,3 milljarða króna á árinu
2010, en þá var framlag á afskrift-
arreikning 2,9 milljarðar króna og
hækkun framlagsins því um sex
milljarðar króna á milli ára.
Að sögn Haraldar Guðna voru
áhrif þeirra þátta sem taldir eru
upp hér að ofan einfaldlega ekki
fyrirséð þegar fjárlög ársins 2011
voru lögð fram.
Á fjárlögum ársins 2012 er
reiknað með að hagnaður LÍN
verði 4,6 milljarðar króna á þessu
ári. Þar er einnig gengið út frá
því að 3,2 milljarðar króna verði
færðir í afskriftarsjóð til að mæta
framtíðarafskriftum útlána.
Haraldur Guðni segir eigin-
fjárstöðu LÍN vera mjög sterka
og að hann sé vel í stakk búinn til
að mæta framtíðaráföllum, skelli
þau á. „Stór hluti af þessu í fyrra
var einskiptishækkun og hann
kemur ekki aftur á þessu ári. Þá
hefur launaþróun verið jákvæð og
hún ætti ekki að vera jafn áhrifa-
mikill þáttur og í fyrra. Það sem
lifir áfram eru áhrif af samsetn-
ingu greiðenda. Það eru einfald-
lega fleiri með há lán og óvíst er
hvort þeim muni takast að greiða
þau öll til baka.“ - þsj
Við lyfjaeftirlit
Sif Jónsdóttir líffræðingur er ein
af sex Íslendingum sem starfa
við lyfjaeftirlit á ÓL í London.
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Sími: 512 5000
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Föstudagur
skoðun 16
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Fólk
Lífið
10. ágúst 2012
186. tölublað 12. árgangur
milljarðar króna
er áætlaður
hagnaður LÍN á
þessu ári.
4,6
ELDAÐ MEÐ HOLTAHOLTA KYNNIR Sjónvarpskokkurinn Kristján Hlöðversson úr þáttunum Eldað
með Holta á ÍNN gefur kjúklingauppskriftir alla föstudaga. Hér er hann með
rifsberjamarineraðar Holtabringur með fylltum paprikum og mintusalsa.
SJARMÖR Í HÖRPUStórsöngvarinn Tony Bennett verður með tónleika í
Eldborgarsal Hörpu í kvöld. Bennett á að baki 60 ára
feril en hann hefur sautján sinnum fengið Grammy-
verðlaun og Emmy-verðlaun tvisvar. Hann hefur selt
um 50 milljónir platna um allan heim.
MARINERING OGKJÚKLI FYLL
RIFSBERJAMARINERAÐAR HOLTABRINGUR
MEÐ FYLLTUM PAPRIKUM OG MINTUSALSA
M atreiðslumaðurinn Kristján Þór Hlöðversson sér um þátt-inn Eldað með Holta á sjón-varpsstöðinni ÍNN. Þar matreiðir hann skemmtilega og litríka rétti úr Holtak-júklingi frá Reykjagarði. Á föstudögum birtast þessar uppskriftir hér í blaðinu. Í dag er hann með rifsberjamarineraðar
Holtabringur ásamt fylltum paprikum
og mintusalsa. Hægt er að fylgjast með
Kristjáni matreiða þennan girnilega rétt
í kvöld klukkan 21.30 á sjónvarpsstöð-
inni ÍNN.
Þættirnir eru endursýndir yfir helgina en einnig er hægt að horfa á þá
á heimasíðu ÍNN, www.inntv.is.
TILBOÐSDAGAR
15-30% AFSLÁTTURAF BLOMBERG HEIMILISTÆKJUMOfnar, helluborð, uppþvottavélar, kæliskápar og fleiri heimilistæki frá Blomberg á frábærum tilboðsverðum.
Blomberg BEO9444X BÖKUNAROFN
Áður 109.990 Nú 89.990
Blomberg MIN54306NSPANHELLUBORÐ
Áður 99.990 Nú 79.990
Blomberg WNF7462A20ÞVOTT
Nokkur
verðdæmi
10. ÁGÚST 2012
BYRJAÐ Í RÆKTINNI
EFTIR SUMARIÐ
BUBBI SLÓ Í GEGN Í
SUMARBRÚÐKAUPI
ÞÓRUNN ANTONÍA MEÐ
KELLY OSBOURNE
LOKSIN
S
FÁANL
EG
AFTUR
!
Með nýtt popprokklag
Greta Salóme gefur út lagið
Everywhere Around Me í dag.
popp 38
Milljarða afskriftaþörf LÍN
LÍN færði metupphæð, 8,9 milljarða, á afskriftareikning í fyrra. Fjárlög gerðu ráð fyrir 3,5 milljörðum.
Breyttar forsendur reiknimódels, neikvæð launaþróun og breytt samsetning og hegðun lántaka er ástæðan.
HEILBRIGÐISMÁL Unnið er að því
á vegum heilbrigðisyfirvalda að
tryggja neyðarlyfjabirgðir í landinu.
Vinnan er hluti af mótun lyfjastefnu
stjórnvalda til ársins 2020. Listi
hefur verið útbúinn yfir nokkra tugi
lyfja sem aldrei mega klárast, þrátt
fyrir að landið lokist vegna neyðar-
ástands.
Flestir kannast við þann viðbúnað
sem gripið var til árið 2009 vegna
svínainflúensu. Þá voru tryggðar
birgðir um allt land af nauðsyn-
legum vökvum og bóluefnum. Þess
utan eru ákveðin lyf sem landsmenn
geta ekki verið án ef allt lokast.
Hefur insúlín verið nefnt sem dæmi.
Samkvæmt upplýsingum frá
velferðarráðuneytinu er tilurð
vinnunnar sú að á undanförn-
um árum hafa komið upp dæmi
sem vöktu menn til umhugsun-
ar; svínaflensan, fuglaflensan og
hrunið hafi ýtt undir mikilvægi
þess að þessi mál séu öll örugg-
lega í lagi.
Birgðahald mikils fjölda lyfja
er kostnaðarsamt. Þess vegna
hefur verið útbúinn sérstakur
lágmarkslisti nauðsynlegra lyfja.
Í reglugerð verður kveðið á um
hvaða lyf þetta eiga að vera en
um tugi lyfja er að ræða en ekki
hundruð.
Gengið er út frá því að á hverj-
um tíma séu til þriggja mánaða
birgðir hið minnsta af allra nauð-
synlegustu lyfjunum.
Neyðarlyfjabirgðir eru hluti
af almannavarnakerfi landsins.
Því snýst vinnan við gerð lyfja-
áætlunar í og með um að ákvarða
hvar slíkar birgðir verða stað-
settar.
Í dag eru lyfjabirgðir geymdar
á einum stað en hins vegar er það
skýrt skilgreint hvernig brugðist
skal við ef neyð skapast, en dreifi-
kerfi neyðarlyfja tengist 15 aðilum
innan sóttvarnasvæðanna um allt
land. - shá
Heilbrigðisyfirvöld skilgreina neyðarlyfjalista sem hluta af mótun lyfjastefnu:
Helstu neyðarlyf verða alltaf til
HLÝINDI áfram á landinu norð-
austanverðu og sólríkt. Vestan
til verður dálítil rigning eða súld.
Vindur víða fremur hægur en
heldur meiri allra vestast og með
suðausturströndinni.
VEÐUR 4
14
15
22
2016
veðrið í dag
Mótlætið styrkir menn
Björgvin Páll ræðir örlög
handboltalandsliðsins í
London.
sport 34
SÁ FLJÓTASTI Í HEIMI Engum blöðum er um það að fletta að Usain Bolt er stjarna Ólympíu-
leikanna í London. Hann varð í gær fyrstur í sögunni til að sigra í 200 metra hlaupi á tveimur leikum í röð, en
áður hafði hann varið Ólympíutitil sinn í 100 metra hlaupi. Bolt ætti að vera farinn að njóta sín á verðlauna-
pallinum og ekki skemmir fyrir að landar hans, Blake og Weir, fengu silfur og brons í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Stríðsfréttaritari tekur
þátt í Gleðigöngu
Bay Fang var lengi á
vettvangi stríðsátaka og er
hingað komin til að fagna
með samkynhneigðum.
föstudagsviðtal 12
ÓL 2012 Spjótkastarinn Ásdís
Hjálmsdóttir varð í 11. sæti í
úrslitum spjótkastskeppninnar á
Ólympíuleikunum í London í gær.
Ásdís náði sínu besta kasti í
fyrsta kastinu þegar hún kastaði
spjótinu 59,08 metra. Ásdís kast-
aði 57,35 metra í öðru kasti sínu
og þriðja kastið var ógilt.
„Þetta er alls ekki lélegur
árangur þó svo að ég hafi verið að
kasta 62,77 metra fyrir tveimur
dögum,“ sagði Ásdís. „Undirbún-
ingurinn fyrir [Ólympíuleikana] í
Ríó hefst á morgun.
- esá, óój / sjá síðu 32
Úrslit í spjótkasti á ÓL í gær:
Ásdís í 11. sæti