Fréttablaðið - 10.08.2012, Blaðsíða 4
10. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR4
DANMÖRK Ríkissaksóknari í Dan-
mörku hefur látið mál gegn dönsk-
um lögregluþjónum niður falla
vegna þess hversu erfitt reyndist
að bera kennsl á þá.
Lögreglumennirnir fóru manna-
villt í handtöku þegar loftslagsráð-
stefnan í Kaupmannahöfn stóð yfir
árið 2009.
Maðurinn sem tekinn var hönd-
um var klæddur í hvítan búning,
hendur hans bundnar fyrir aftan
bak og honum haldið í nokkrar
klukkustundir í lögreglubifreið.
Ekki hefur reynst unnt að bera
kennsl á lögreglumennina sem
um ræðir og í þokkabót virðast
starfsmenn lögreglunnar tregir
til að segja hver til annars. Þetta
kemur fram á vef danska Ríkis-
útvarpsins.
Stjórnmálamenn í Danmörku
deila nú um hvort merkja eigi
lögregluþjóna með númeri.
Danski einingarflokkurinn
hefur gefið út þá yfirlýsingu að
flokkurinn vilji láta hvern lög-
reglumann bera ákveðna tölu-
stafi, svo almenningur geti borið
kennsl á þá. Danski þjóðarflokk-
urinn er þessu hins vegar algjör-
lega andsnúinn og Íhaldsflokk-
urinn vill láta málið í hendur
lögreglunnar.
- ktg
Danskir stjórnmálamenn deila um hvort merkja eigi lögregluþjóna með númeri:
Lögregluþjónar óþekkjanlegir
ÓÞEKKJANLEGIR Lögregluþjónarnir eru
allir eins klæddir og því er almenningi
nær ógerlegt að bera kennsl á þá.
Steikjandi hiti austanlands
Hitastig mældist 28 gráður á Eskifirði
í gær, í Neskaupstað mældist hann
27,9 gráður og 27,8 gráður á
Fáskrúðsfirði. Þetta er ekki langt frá
hitameti ágústmánaðar sem náðist
árið 2004 þegar hiti á Egilsstöðum fór
í 29,2 gráður. Búist er við fyrirtaks-
veðri fyrir austan í dag.
NÁTTÚRA
GENGIÐ 09.08.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
206,57
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
119,35 119,91
186,68 187,58
146,88 147,70
19,733 19,849
20,185 20,303
17,782 17,886
1,523 1,532
179,97 181,05
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR
SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
FÉLAGSMÁL Dæmi eru um að börn
fá ekki inni á frístundaheimilum
Reykjavíkurborgar ef foreldrar
þeirra skulda þjónustugjöld til
langs tíma. Um undantekningar-
tilfelli er að ræða en borgin gefur
skuldugum foreldrum rúm tæki-
færi til að semja um greiðslur.
Mannréttindaskrifstofa borgar-
innar hefur fengið málið inn á sitt
borð.
Oddný Sturludóttir, formaður
skóla- og frístundaráðs, segir að
þær upplýsingar sem hafa verið
birtar um málið taki ekki tillit til
þess hversu fátítt þetta er, og ekki
hins að lengi sé hægt að komast
hjá því að lenda í þeirri stöðu að
börn fái ekki þjónustuna sem um
ræðir.
„Ég tek undir það að hvert til-
felli sem þetta er alvarlegt og sorg-
legt. Það sem gerist hins vegar
eftir hrun er að allir greiðslufrest-
ir hafa verið lengdir. Eins erum
við að niðurgreiða þessa þjónustu
meira en í öðrum sveitarfélögum
sem kemur öllum fjölskyldum vel.
Það er of mikið sagt að börn for-
eldra sem skulda fái ekki inni og
við hvetjum til þess að fólk semji
um sín mál. Um leið og það er gert
er engum vísað frá. Samningur
getur þýtt að fólk greiði skuldina
á löngum tíma og ég vil meina að
samningar náist í nær öllum til-
fellum,“ segir Oddný.
„Þegar vanskil þjónustugjalda
eru skoðuð kemur í ljós að þau eru
minni nú en var mánuðina fyrir
hrun, en mun fleiri nýta þjónustu
eins og skólamáltíðir og veru á frí-
stundaheimilum. Um þrjú prósent
allra foreldra sem greiða þjón-
ustugjöld skulda meira en sem
nemur greiðslum í sex mánuði og
brotabrot af þeim hópi hefur lent
í þeirri stöðu að vera neitað um
þjónustu. Þær tölur liggja þó ekki
nákvæmlega fyrir en ljóst er að
þau eru undantekningartilfelli. Við
vinnum þessi mál náið með vel-
ferðarsviði og þjónustumiðstöðv-
um í hverju hverfi.“
Mannréttindaskrifstofa Reykja-
víkurborgar hefur fengið eitt mál
inn á sitt borð en það er Margrét
Sverrisdóttir sem veitir skrif-
stofunni forstöðu. Hún segist
hafa fengið þær upplýsingar í
gær að ef vilji er til sátta þá hafi
mál sem þessi verið leyst innan
borgarinnar.
„Þetta er einangrað mál og
ástæðan fyrir því að því var
vísað til okkar er að vekja athygli
á því að svona erfið tilfelli geta
komið upp og hvað beri þá að
gera. Í því samhengi hefur verið
vísað í Barnasáttmálann sem á
sér ekki lagastoð hér á landi,“
segir Margrét.
svavar@frettabladid.is
Börnum vísað frá ef
foreldrar semja ekki
Brögð eru að því að börn foreldra sem skulda borginni þjónustugjöld fái ekki
inni á frístundaheimilum. Um undantekningartilfelli er að ræða. Vanskil á
þjónustugjöldum borgarinnar eru minni núna en mánuðina fyrir hrun.
FRÍ STUND Foreldrar geta í nær öllum tilfellum komið í veg fyrir að börnum sé vísað
frá frístundaheimilum ef þeir semja um skuldir sínar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
UTANRÍKISMÁL Kristín A. Árna-
dóttir, sendiherra Íslands í
Kína, er stödd í Taílandi og
miðlar málum
milli taílenskra
stjórnvalda og
Brynjars Mett-
inissonar sem
setið hefur í
fangelsi þar í
landi í fjórtán
mánuði.
Máli Brynjars
var vísað frá á
fyrsta dómstigi
þann 31. júlí en
hann situr inni þar til ákvörðun
um áfrýjun málsins hefur verið
tekin af saksóknara.
„Töluverður hluti okkar
vinnu fer í að sinna hagsmunum
íslenskra ríkisborgara,“ segir
Kristín sem tímasetti embætt-
isferð sína til Bangkok núna
þegar hugsanlega er hægt að
hafa áhrif á framvindu máls-
ins. Markmiðið sé að ná honum
úr fangelsi. „Enda hefur málinu
verið vísað frá og því eru áhöld
um það hvort taílensk yfir-
völd haldi honum í fangelsi með
réttu,“ segir Kristín.
- bþh
Sendiherra Íslands í Taílandi:
Brynjar sleppi
úr fangelsi
NOREGUR Norska lögreglan hefur
nú birt myndir úr eftirlitsmynda-
vélum af Sigrid Giskegjerde
Schjetne. Með myndbirtingunni
vonast lögreglan til að fólk geri
sér betri mynd af Schjetne.
Schjetne sem er sextán ára,
hefur verið saknað frá aðfaranótt
sunnudags.
Norska lögreglan lýsir enn
eftir bílstjóra á silfurlituðum
Golf. Bíllinn sást á sama stað og
síðustu spor Schjetne fundust, en
bílstjórans er nú leitað.
Mikil áhersla hefur einnig
verið lögð á að komast inn á
Facebook-aðgang stúlkunnar í
von um að þar leynist frekari vís-
bendingar um afdrif hennar.
Enn er stúlkan ófundin. - ktg
Mannshvarfið í Noregi:
Lögreglan opin-
berar myndir
MANNSHVARF Myndin er tekin úr eftir-
litsmyndavél í strætisvagni, nokkrum
klukkustundum fyrir hvarf Schjetne.
MYND/NORSKA LÖGREGLAN
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
35°
25°
20°
20°
23°
19°
20°
20°
30°
25°
34°
27°
34°
18°
27°
27°
20°Á MORGUN
8-20 m/s
Hægast austan til.
SUNNUDAGUR
Strekkingur með S-
ströndinni annars frem-
ur hægur vindur.
14 14
18
17 22
15 14
2318
15
14
13
15
15
22
19
20
19
16
15
12
7
9
8
8
6
4
3
7
3
8
7 13
RYKMISTUR
Áframhald verður á
hlýindum á Norð-
austurlandi næstu
daga en rykmistur
getur dregið úr
birtu enda mjög
þurrt og þarf því
ekki mikinn vind
til að þyrla upp
ryki. Ekki er hætta
á þessu um landið
vestanvert enda
er þar rigningartíð
fram undan.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
BRYNJAR
METTINISON
LANDBÚNAÐUR Tveir sláturleyfis-
hafar, Norðlenska og SS, hafa
hækkað verðskrá sína fyrir kom-
andi sláturtíð. Norðlenska mun
hækka verðið um 6,3 prósent á
dilkakjöti og SS hækkar grunn-
verðskrá sína um þrjú prósent.
Hvorugt fyrirtækið mun
hækka verð fyrir kjöt á fullorðnu
fé. Skessuhorn greinir frá. - kóp
Sláturleyfishafar hækka verð:
Hærra verð
fyrir dilkakjöt
MENNING Danski rithöfundurinn
Erik Valeur hlaut Glerlykilinn,
norrænu glæpasagnaverðlaun-
in, árið 2012 fyrir bók sína Det
syvende barn. Þetta er í 21. skipti
sem verðlaunin eru veitt.
Af Íslands hálfu var Yrsa Sig-
urðardóttir tilnefnd fyrir bók
sína Ég man þig. Finnar tilnefndu
bókina Paranaja, eða Helaren á
sænsku, eftir Antti Puoamainen,
Svíar Viskleken eftir Arne Dahl,
sem er dulnefni Jans Arland og
Norðmenn bókina Ildmannen eftir
Torkil Draumhaug. - kóp
Verðlaun veitt í 21. skipti:
Valeur hlaut
Glerlykilinn